Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Síða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2020 Við erum góð í að búa til orð sem erubara til á íslensku, eiga sér ekki ræt-ur í öðrum tungumálum og eru greinilega ekki dregin af neinu. Orð eins og sími, tölva og þota eigum við skuldlaust, en margar aðrar þjóðir nota einhverja útgáfu af telephone, computer og jet. En ekki við. Við redduðum þessu bara alveg sjálf. Íslenskan er nefnilega merkilegt tungumál. En það eru fleiri orð sem eru mögulega einkennandi fyrir okkur Íslendinga. Einna helst orðið séríslenskt. Það notum við gjarn- an þegar við erum að lýsa einhverju sem gæti hvergi gerst nema á Íslandi. Því miður oftar í neikvæðri merkingu en jákvæðri. Oft- ast þegar við upplifum okkur sem svo mikla bjána, að engri annarri þjóð myndi nokkurn tíma detta í hug að gera eitthvað svona heimskulegt. Á timarit.is finn ég fyrsta dæmið um notk- un þessa orðs árið 1974. Í sjómannablaðinu Víkingi. Þá er talað um dans Íslendinga á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn, þegar við fögnuðum 1100 ára afmælinu, sem sér- íslenska athöfn. Svo koma nokkur dæmi að- eins seinna. Til dæmis brilljantínæðið sem reið yfir Ísland 1979, að ráðherrar á Íslandi fengju sérstaka bíla og að pönktískan hér væri séríslensk. Samtals finn ég um tvö þús- und tilvísanir þegar ég leita að þessu orði. Að vísu flestar um að eitthvað sé bara alls ekki séríslenskt. Ég verð að viðurkenna að stundum finnst mér fólk ganga of langt í að lýsa því yfir að hitt og þetta sé nú algjörlega séríslenskt og það er eins og það hafi aukist. Mögulega vegna þess að við tjáum okkur meira eða kannski af því að við virðumst vera pirraðri nú en áður. Þetta orð er nefnilega oft verk- færi hins pirraða manns. Og stundum þess sem er rökþrota í erfiðu rifrildi á Facebook. Þá getur verið gott að grípa til þess að segja að þetta gæti hvergi gerst annars staðar en á þessu auma skeri. Bara í þessari viku hef ég rekist á, við mjög óskipulagða leit, nokkur merkileg dæmi um það sem fólk vill kalla séríslenskt. Verkföllin, Söngvakeppnina, afgreiðslugjöld Íslandspósts og viðbrögð stjórnvalda við kór- ónuveirunni. Að undanskilinni rukkunarþrá Íslands- pósts, þá held ég að aðrar þjóðir glími við mjög svipaða hluti og við. Þær þurfa að þola verkföll, kynna í söngvakeppni sem reyna að skemmta áhorfendum og skipulagða leit að smituðu fólki með hættulega veiru. Það þarf engan sér- fræðing til að finna það út að í nánast hverri einustu söngva- keppni sem er haldin eru kynnar sem fá það hlutverk að brúa bilið milli atriða og skemmta fólki. Og mögulega gerist það að ekki hafi allir sama smekk. Verkföll höfum við séð út um allan heim og jafnvel lent í þeim í útlöndum og kórónuveiran virðist ekki þekkja nein landamæri. En af hverju erum við þá alltaf að segja þetta? Er það kannski vegna þess að við vit- um ekki hvað er að gerast í útlöndum? Finnst okkur bara allt merkilegra sem gerist á Íslandi? Eða er þetta bara þægileg leið sem við notum til að afgreiða hluti? En við eigum hluti sem sannarlega fara að minnsta kosti nálægt því að vera sér- íslenskir. Bjórbannið, verðtrygginguna, fyrstu konuna á forsetastóli, kæstan hákarl og Gísla Einarsson. Og svo held ég að þetta merkilega orð, séríslenskt hljóti að vera algjörlega sér- íslenskt. ’Þetta orð er nefnilega oft verkfæri hins pirraðamanns. Og stundum þesssem er rökþrota í erfiðu rifr- ildi á Facebook. Þá getur verið gott að grípa til þess að segja að þetta gæti hvergi gerst annars staðar en á þessu auma skeri. Á meðan ég man Logi Bergmann Eiðsson logi@mbl.is Séríslensk orð Ekki er nema rúm vika frá því aðfyrsta kórónuveirusmitiðgreindist á Íslandi föstudaginn 28. febrúar. Viðbrögð almennings og yfirvalda hafa einkennst af yfirvegun og skynsemi. Engum blöðum er um það að fletta að við eigum mikið verk fyrir höndum til að lágmarka skað- ann, sem er ekki allur kominn fram. Viðbrögð almannavarna og heilbrigðisyfirvalda Í heila viku frá því að fyrsta smitið greindist hér á landi barst ekkert smit á milli manna hér innanlands. Með öðrum orðum: Allir sem greind- ust fyrstu vikuna höfðu fengið veiruna erlendis. (Raunar allir á sömu tveim- ur stöðunum.) Þetta breyttist viku síðar, sl. föstudag, sem lá vissulega fyrir að væri aðeins tíma- spursmál. Það er til marks um traust við- brögð almannavarna og heilbrigðisyfirvalda að það skyldi takast að koma veg fyrir þetta eins lengi og raun bar vitni. Það hlífði heil- brigðisþjónustunni við miklu álagi. Viðbrögð almennings Það er hluti af sjálfsmynd Íslendinga að við séum frekar agalaus þjóð og berum ekki nema hóflega virðingu fyrir boðum og bönnum. Við höfum hins vegar sýnt á okkur allt aðra hlið gagnvart þessari vá; líklega sömu hlið og við sýnum gjarnan gagnvart nátt- úruvá, en í þeim efnum erum við jú eldri en tvævetur. Við höfum tekið málið alvarlega. Almenningur hefur meðtekið leiðbeiningar almannavarna og heilbrigðissérfræðinga, farið eftir þeim og í mörgum tilvikum gengið lengra. Segja má að í þessu máli hafi þjóðin ekki fylgt sínu eigin frægasta mottói – „þetta reddast“ – að minnsta kosti ekki í neikvæðasta skilningi þess, heldur haft vaðið fyrir neðan sig og lagt töluvert á sig til að hefta út- breiðslu vandans. Þetta hefur samt gerst án óþarfa geðshræringar. Við höfum almennt haldið ró okkar og sýnt ábyrgð. Viðbrögð stjórnmálanna Mjög þýðingarmikið var að forystu- fólk ríkisstjórnarinnar steig hratt inn í og náði samkomulagi við aðila vinnu- markaðarins um að eyða óvissu um launagreiðslur til fólks í sóttkví. Sú óvissa hefði hæglega getað spillt veru- lega mikið fyrir viðleitni okkar til að koma böndum á vandann. Ótti er kjörlendi ákveðins hóps stjórnmálamanna. Það er því þakkar- vert að lítið hefur borið á því hér að reynt hafi verið að þyrla upp ryki um málið í pólitísku skyni. Úr röðum stjórnarandstöðunnar hefur meira borið á stuðningi við aðgerðir yfir- valda og áherslu á að hlíta ráðum þeirra sem best þekkja til. Viðbrögð Jürgen Klopp Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, á sér marga aðdáendur og þeim fækk- aði ekki með svari hans við spurningu um kórónuveiruna á dögunum. Klopp sagði: „Mér líkar ekki þegar skoðun knattspyrnustjóra er talin skipta máli um háalvarlegt mál eins og þetta. Ég bara skil það ekki. Það skiptir engu hvað frægu fólki finnst, fólki eins og mér sem hefur enga þekkingu á mál- inu. Spyrjið sérfræðingana sem þekkja til, ekki knattspyrnustjóra. Til hvers að spyrja mig? Ég er bara með derhúfu og illa snyrt skegg. Mitt álit skiptir engu. Þeir sem hafa vit á mál- inu segja til um hvort óhætt sé að spila fótbolta, ekki ég.“ Um svipað leyti lýsti valdamesti stjórnmálamaður heims því yfir að hann hefði „hugboð“ um að helstu sérfræðingar væru að gera of mikið úr hættunni. Viðbrögð vegna ferðaþjónustu Strax næsta virka dag eftir að fyrsta smitið greindist, þ.e. mánudaginn 2. mars, funduðum við í Stjórnstöð ferðamála um áhrif málsins á íslenska ferðaþjónustu, sem var í viðkvæmri stöðu fyrir og mögu- leg viðbrögð. Fund- inn sátu ráðherrar, embættismenn og forystufólk úr ferðaþjónustu og af sveitarstjórnarstiginu. Á fundinum var ákveðið að hefja þegar í stað undirbúning að alþjóð- legu markaðsátaki í þágu ferðaþjón- ustunnar. Það var samdóma álit að gagns- laust væri að hleypa slíku átaki af stokkunum við núverandi óvissu- ástand. Hins vegar væri nauðsynlegt að eiga það tilbúið í handraðanum svo að við gætum sett það í loftið þegar óvissunni létti og markaðurinn yrði aftur móttækilegur. Þetta fyrsta skref var því stigið hratt. Til viðbótar hefur verið ákveðið að ráðast í markaðsátak til að hvetja Íslendinga til ferðalaga innanlands. Fleiri mótvægisaðgerðir í þágu ferða- þjónustunnar hafa verið reifaðar og eru til umfjöllunar. Einnig má minna á að fimm ára að- gerðaáætlun í ferðaþjónustu á grund- velli nýrrar sameiginlegrar stefnu stjórnvalda og atvinnugreinarinnar er nú þegar í vinnslu með víðtækri að- komu hagsmunaaðila. Innspýting í efnahagslífið Fyrr sama dag og fyrsta smitið var staðfest á Íslandi var haldinn blaða- mannafundur sem féll í skuggann. Þar voru kynntar tillögur átaks- hóps ríkisstjórnarinnar um u.þ.b. 1.000 milljarða úrbætur á innviðum í kjölfar fárviðris og snjóflóða. Fram- kvæmdir varðandi rafmagn, hitaveit- ur, fjarskipti, samgöngur, ofanflóða- varnir og fráveitur munu samkvæmt þeim nema um 90 milljörðum á ári fram til 2030 (fyrir utan virkjana- framkvæmdir). Sumt var þegar á dagskrá, sumu er flýtt og sumt er nýtt. Endurskoðun innviðaframkvæmda er auðvitað mikilvægt framlag gagn- vart þeim efnahagslegu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Við bætast sérstakar aðgerðir í þágu ferðaþjónustunnar eins og fyrr segir. Það er því ekki hægt að halda því fram að staðið hafi á viðbrögðum, þó að verkefninu sé ekki lokið. Traust viðbrögð við vágesti ’ Fleiri mótvægis-aðgerðir í þáguferðaþjónustunnarhafa verið reifaðar og eru til umfjöllunar. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.