Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 32
SUNNUDAGUR 8. MARS 2020 Skeifunni 8 Sími 588 0640 casa.is Borðstofuborð DESALTO SKIN Hönnun: Marco Acerbis NAVER COLLECTION PLANK GM3200 Hönnun: Nissen & Gehl KNOLL INTERNATIONAL TULIP Hönnun: Eero Saarinen RODAM CAMPA Hönnun: Designschneider Berlin DEXO COCOON Hönnun:Tonetti design Í heimildamyndinni Vasulka- áhrifunum er tvinnað saman lífi og list þessara heimsfrægu og óvenjulegu listamanna, Steinu og Woody Va- sulka, en Woody lést í desember á síð- asta ári. Leikstjóri myndarinnar, Hrafnhild- ur Gunnarsdóttir, er þessa dagana á faraldsfæti á milli kvikmyndahátíða með myndina sem hefur verið vel tek- ið alls staðar. „Þau voru enduruppgötvuð nýlega, en ég hef þekkt Steinu frá árinu 1987. Ég hef alltaf kunnað að meta hennar bardús og grúsk, eins og hún myndi orða það,“ segir hún. „Þau hafa alltaf verið í mikilli tilraunamennsku og eru miklir frumkvöðlar í sinni list. Steinu fannst hún gleymd í seinni tíð og ég ákvað að mynda þau, en þau áttu gríð- arlega mikið efni, enda miklir safnarar. Ég byrjaði á myndinni árið 2014 og svo fóru hlutirnir að gerast,“ segir hún. „Steina sagði við áhorfendur beint á Skype þegar við frumsýndum myndina í Tékklandi: „ég vissi ekki að Hrabba ætlaði að búa til sápuóperu um okkur“,“ segir Hrafnhildur og hlær en bætir við að Steina hafi verið sátt. Bardús og grúsk Hrafnhildur Gunnarsdóttir Vasulka-áhrifin, ný íslensk heimildamynd um vídeólistamennina og hjónin Steinu og Woody Vasulka, verður sýnd á RÚV 9. mars. Listamennirnir Steina og Woody Vasulka voru miklir frumkvöðlar í vídeólist. „Þú hefur ekkert að gera á Wil- lys, þú færð þér einhvern lítinn penan bíl sem eyðir litlu.“ Þetta var svarið sem Íris nokkur fékk frá karlmönnum í kringum sig þegar hún viðraði þá von sína að eignast Willys-jeppa. Sá hún ástæðu til að deila þessu með Velvakanda í Morgunblaðinu fyr- ir þrjátíu árum, 8. mars 1990. „Alveg dæmigert fyrir karla hvað bílarnir skipta þá miklu. Þú getur búið við hliðina á manni sem á Fiat Uno og þú tekur eftir honum nokkrum mánuðum seinna en ef hann væri á nýjum BMW þá vissir þú ættartöluna fyrir kvöldmat. Karlar virðast vera metnir núorðið eftir bíl- unum,“ sagði Íris. „Svo var það einn vinur minn sem keypti sér bíl af nýjustu gerð. Var hann marga klukkutíma að bóna hann og pússa. Hitti ég hann að máli daginn eftir. Settist ég inn í bíl- inn með kókflösku í hendi. Sýnd- ist mér pilturinn vera á nálum og bað hann mig kurteislega að drekka kókið úti.“ En einhvern veginn varð Íris að komast yfir Willys-jeppann sinn. Og fékk hugmynd: „Kannski ég ætti að setja auglýs- ingu í einkamál. Óska eftir að kynnast ungum manni sem á Willys-jeppa. Vinsamlegast sendið mynd af jeppanum ásamt frekari upplýsingum ...“ GAMLA FRÉTTIN Ekkert að gera á Willys Íris okkar hefði örugglega fílað sig í strimla í þessum forláta Willys-jeppa. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Stephen Colbert sjónvarpsmaður og spéfugl Ólafur Elíasson myndlistarmaður Óskar Guðjónsson tónlistarmaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.