Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 12
Þ að var vorið 1974 að sextán ára gamall piltur, Ragnar Guðni Ax- elsson að nafni, hoppaði upp í strætó í Árbænum og hélt með leið 10 niður í miðbæ Reykjavíkur, þangað sem hann átti metnaðarfullt erindi. „Ég man þetta eins og gerst hefði í gær,“ rifjar hann upp nú, 46 árum síðar. „Lagið When I’m a Kid með Demis Roussos var í útvarpinu og það ómaði í höfðinu á mér allan daginn. Svei mér þá ef ég heyri það ekki ennþá. Þetta var grískur söngvari, mjög vinsæll á þessum tíma. Svona Kristján Jóhannsson á sterum.“ Ragnar fór úr vagninum á Lækjartorgi, ásamt Bjarna Óskarssyni æskuvini sínum, og hélt tindilfættur sem leið lá í vestur í átt að Morgunblaðshöllinni í Aðalstræti. Vopnaður myndavél föður síns. Tilgangurinn var að sækja um sumarstarf sem íþróttaljósmyndari á Morg- unblaðinu. Hans fyrsta mynd hafði þá þegar birtst í blaðinu en skömmu áður hafði Ágúst Ingi Jónsson blaðamaður gefið sig á tal við Ragnar á handboltaleik með liðinu hans, Fylki, í Laugardalshöllinni. Ágúst Inga vantaði mynd úr leiknum og sá þennan unga pilt með mynda- vél á áhorfendapöllunum. Úr varð að Ragnar kom með filmuna niður á Mogga og myndin var birt. Í því ljósi átti Ragnar ekki von á þeim hóf- stilltu viðtökum sem hann fékk á ljós- myndadeild blaðsins. Sveinn Þormóðsson ljós- myndari varð fyrir svörum og þegar Ragnar bar brattur upp erindið svaraði hann, stuttur í spuna: „Nei, vertu úti, vinur.“ Fékk Óla K. í fangið Ekki var um annað að ræða en að halda aftur sem leið lá upp í Árbæ en á leiðinni út úr hús- inu rakst Ragnar á annan mann, í orðsins fyllstu merkingu. Hann kom hlaupandi fyrir hornið og keyrði beint á unga manninn. Eftir að hafa náð áttum rak maðurinn upp stór augu. „Rosalega ertu með fína myndavél!“ Það varð til þess að þeir tóku tal saman en mað- urinn var enginn annar en Ólafur K. Magn- ússon, ljósmyndari Morgunblaðsins til áratuga og þá þegar goðsögn í lifanda lífi. Ólafur fór með Ragnar inn á íþróttadeild blaðsins, þar sem hann hitti blaðamennina Steinar J. Lúðvíksson og téðan Ágúst Inga. „Það varð mér til happs að Kristinn Bene- diktsson ljósmyndari var nýhættur og ákveð- ið var að senda mig á Víkingsleik í fótbolt- anum til reynslu. Þar náði ég mynd af umdeildu atviki, þar sem sást að leikmaður hafði látið sig falla til að krækja í víti. Ætli það sé ekki besta íþróttamynd sem ég hef tek- ið,“ rifjar Ragnar upp hlæjandi. „Myndin hitti í mark og ég var ráðinn áfram um sumarið.“ Auk þess að mynda kappleiki fékk Ragnar það hlutverk fyrsta sumarið á Mogganum að framkalla filmur fyrir Ólaf K. og Svein. „Óli var frábær maður og varð minn lærifaðir. Sveinn var erfiðari. Fljótlega hafði Steinar J. Lúðvíksson á orði við mig að ég tæki ekki leng- ur eins góðar myndir og í upphafi. Ég svaraði því til að það væri ekki skrýtið, Sveinn léti vall- arverðina alltaf reka mig upp í stúku. Það mál var leyst.“ Íþróttir voru ær og kýr Ragnars þetta fyrsta sumar en hann spreytti sig þó á öðrum verkefnum; skundaði til dæmis á Þingvöll og myndaði 1.100 ára afmæli Íslandsbyggðar í gríð og erg. „Pabbi skutlaði mér þangað og það var ógleymanlegur dagur.“ Keyrði próflaus til að byrja með Þegar Ragnar er spurður hvort ekki hafi verið flókið fyrir sextán ára gamlan ljósmyndara að koma sér milli staða færist glott yfir andlit hans. „Ég skammast mín fyrir það í dag en ég keyrði próflaus á Austin Mini í nokkra mánuði fram að sautján ára afmælinu. Réð svo sem al- veg við það enda hafði ég lært að keyra í sveit- inni austur í Öræfum og var orðinn fullnuma ökumaður. Metnaðurinn var mikill og ég lét ekki prófleysið stöðva mig; keyrði hins vegar alltaf mjög hratt svo löggan tryði því að ég væri með bílpróf. Það slapp. Ætli þetta sé ekki öruggleg fyrnt?“ spyr hann sposkur. Vonandi! ljúkum við sundur einum munni. Sem betur fer var Ragnar kominn með bíl- próf þegar hann var stöðvaður fyrir of hraðan akstur. „Það var ein lögga sem lagði mig í ein- elti á þessum tíma og tókst loksins að ná mér fyrir of hraðan akstur. Við hefndum okkar, fé- lagarnir, með því að setja kartöflu í púströrið hjá honum. Þegar við keyrðum framhjá hafði hann tekið megnið af bílnum í sundur til að finna hvað væri að. Hann uppgötvaði það á endanum og lét okkur vera eftir þetta. Við urð- um reyndar ágætis vinir. En þarna lauk glæpaferli mínum.“ Hann hlær. Ragnar gengst við því að hafa verið „svolítill villingur“. „Mest var það þó bara meinlaust grín og svo var okkur ekki alls varnað; ef þannig lá á okkur þá gátum við tekið heilu og hálfu dagana í að hjálpa gömlum konum að fara yfir götuna.“ Íþróttaáhugi Ragnars var ósvikinn en hann æfði sjálfur fótbolta af kappi með Fylki á þess- um tíma og átti eftir að leika með meist- araflokki. „Ég lék líka einn fyrstaflokksleik í handbolta en þá kom eitthvert tröll og steig á tána á mér og ég ákvað að hætta. Handbolti væri ekki fyrir mig. Ég hafði alltaf miklu meira gaman af fótboltanum.“ Það þarf að drepa mig til þess að ég tapi þessum leik Fáir menn hafa sett sterkari svip á Morgunblaðið undanfarna áratugi en Ragnar Axelsson ljósmyndari, RAX, en hann kom fyrst til starfa á blaðinu sumarið 1974. Ragnar sagði starfi sínu lausu um síðustu mánaðamót og snýr sér nú alfarið að lífs- verki sínu; að mynda mannlífið á norðurslóðum. Hann kveður Morgunblaðið með söknuði og virðingu enda hefur vegferðin verið ævintýraleg, svo vægt sé til orða tekið. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Við kennslu í ljósmyndasögu hef ég óhikað sagt Ragnar Axelsson hæfileikaríkasta ljós- myndarann, og þann með „besta augað“ sem fram hefur komið í íslenskri ljós- myndun, allar götur síðan sá fyrsti, Sigfús Eymundsson, var og hét. Stór orð, kann einhver að segja, en ég get vísað í sitthvað til að styðja við þau. Læt þó nægja að benda á að árið 2014 kom út í hinni víðfrægu og áhrifamiklu frönsku ritröð Photo Poche bók um Ragnar og verk hans. Það var 144. bókin í röðinni sem gefin er út á vegum Frönsku ljósmyndamiðstöðvarinnar og fjalla bækurnar um bestu ljósmyndara sög- unnar. Ragnar var einungis fjórði ljós- myndarinn frá Norðurlöndum sem varð þess heiðurs aðnjótandi að verða valinn til útgáfu í þessari ritröð. Það verða vitaskuld viðbrigði fyrir okkur samstarfsfólk Ragnars að hafa hann ekki lengur við hlið okkar á ritstjórninni, því ekki er hann bara besti ljósmyndari lands- ins – og langreyndasti fréttamaður blaðsins úti á vettvangi, heldur er hann líka svo kappasamur og ástríðufullur í starfi að hann hefur alltaf hrifið aðra með sér, með- vitaður um það hlutverk okkar að skrá samtímis flæði daganna fyrir lesendur okk- ar og sögu þjóðarinnar. Og vitaskuld munu lesendur sjá mun á blaðinu, annað væri ekki hægt – en það er ögrandi áskorun fyrir stjórnendur og ljósmyndara blaðsins að fylla skarðið gæðaefni. Það er skiljanlegt eftir hátt í 46 ár hér á Morgunblaðinu að RAX kjósi nú að breiða út vængina og taka flugið, við að taka ein- ungis þær myndir sem hjarta hans kallar á. Hann á nú blómlegan feril á alþjóðlegum vettvangi, virtur og dáður, hefur sent frá sér margrómaðar bækur og fleiri eru í burðarliðnum, auk sýninga sem ferðast milli landa. Hann byrjaði árið 1986 á merkri heimildaskráningu mannlífs og náttúru sem ekki sér fyrir endann á. Um sýn hans skrifaði hinn merki ljósmyndari Mary Ellen Mark: „Ragnar Axelsson er ljós- myndari sem býr í senn yfir djúpri ástríðu og hefur köllun. Í verkum hans mætast vís- indalegur áhugi og merkileg listsköpun. Hann segir okkur sannleikann um það sem er mikilvægast hér í heimi; honum er annt um heiminn og fólkið sem hann byggir – hvað meira er hægt að biðja um?“ Einar Falur Ingólfsson Einstök sýn á heiminn VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.