Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Side 24
Hvernig væri að nota tímann og prófa alls kyns nýjar uppskriftir? Fáðu ætt- ingja til að kaupa í baksturinn og skilja eftir við útidyrnar og þá er bara að hefjast handa. Nóg af kökuuppskriftum má finna á netinu og ef þið eruð fleiri saman í sóttkví er tilvalið að vera með eitt kökuboð á dag. Einnig er tilvalið að prófa alls kyns upp- skriftir að góðum kvöldverði. Til dæmis mætti hafa rétti frá fjórtán mismunandi löndum, fjór- tán daga í röð! Ein kaka á dag kemur skapinu í lagTil eru ýmsar bækur sem mætti lesa til að stytta sér stundirnar. Til dæmis bækur um heimsfaraldra! Ein er sú bók sem mikið er talað um um þessar mundir og nefnist The Eyes of Darkness eftir Dean Koontz frá 1981. Þar lýsir höfundur veiru sem á að hafa verið bú- in til af kínverskum stjórnvöldum, rétt fyrir utan Wuhan-borg og nefnist Wuhan-400. Einnig má bæta á listann bókunum Superbugs, eftir Matt McCarthy, Plágan eftir Albert Camus, The Stand eftir Stephen King og Ástin á tímum kólerunnar eftir Gabriel García Márquez. Þetta ætti að duga í hálfan mánuð. Bækur um faraldra 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2020 LÍFSSTÍLL Það er róandi að sitja og prjóna. Ef þú kannt handtökin er tilvalið að prjóna loksins sokkana sem þú hefur lengið ætlað þér að prjóna. Fyrir lengra komna eru fjórtán dagar nægur tími til að prjóna eina lopapeysu. Auðvitað má líka sauma út og hekla og ef þú kannt það ekki er alveg víst að það má læra af netinu. Sokkarnir sem þú ætlaðir alltaf að prjóna Þótt maður sé heima í sóttkví er það engin afsökun fyrir að hreyfa sig ekki. Það eru jú 24 tímar í sólar- hringnum og það þarf að fylla þá alla. Taktu einn tíma á dag frá fyrir lík- amsrækt. Eina sem þú þarft er motta á gólfið, tónlistina í botn og byrja að hamast. Hlauptu á staðnum, sippaðu, gerðu hnébeygjur, armbeygjur og „burpees“. Ekki er verra að lyfta léttum lóðum. Þú þarft jú að brenna öllum kök- unum sem ég stakk upp á að þú bakaðir! Engin afsökun Föndur er alltaf skemmtilegt og þar sem styttist í páskana er tilvalið að blása úr nokkrum eggjum, skella í góða omme- lettu og mála svo eggin í öllum regnbog- ans litum. Fyrir þá metnaðarfyllri er sniðugt að útvega sér trönur, pensla og olíuliti og reyna fyrir sér í myndlistinni. Nóg er að stilla upp flösku, ávöxtum og blómum á viskustykki og byrja svo! Að sjálfsögðu er líka hægt að byrja á verkefnum sem setið hafa lengi á hak- anum, eins og að mála barnaherbergið eða þvottahúsið. Páskaegg eða þvottahúsið? Líklega er sú dægrastytting sem flestir kjósa sér sú að horfa á skjá af einhverju tagi ef maður er fastur heima í hálfan mánuð. Þá er gott að hámhorfa á allar þær seríur sem einhvern veginn fóru framhjá þér. Þeir sem eiga eftir að horfa á Peaky Blinders, Crown eða Game of Thrones eiga notalegar stundir framundan í sóttkvínni. Einnig skaltu horfa á Exit, norska þáttinn sem er að gera allt vit- laust. Hvernig væri svo að setjast niður og „skæpa“ við vini og vandamenn, bæði innanlands og utan! Loksins gefst góður tími til að spjalla við fólk sem þú hefur trassað lengi. Tölvan verður lífsnauðsynleg í sóttkví. Maður þarf jú að fylgjast með fréttum af kórónuveirunni og lífinu fyrir utan veggina. Samfélagsmiðlarnir verða bjargvættir til að fá að vera með í samfélagi mannanna, að minnsta kosti rafrænt. Hámhorf og skype Að lifa af sóttkví Mörg hundruð Íslendingar eru nú í sóttkví af völdum kórónuveirunnar; sumir smitaðir og lasnir en flestir eru í sóttkví til að fyrirbyggja útbreiðslu veirunnar skæðu. Líklegt er að fólki fari fjölgandi sem þarf að þrauka fjórtán daga sóttkví, annaðhvort einir eða fleiri saman. Morgunblaðið ákvað að koma með nokkrar góðar hugmyndir að því hvernig mætti lifa af sóttkví án þess að deyja úr leiðindum! Hótelrúmföt Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Sérhæfum okkur í sölu á rúm- fatnaði og öðru líni fyrir hótel

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.