Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2020
LESBÓK
METNAÐUR Þrátt fyrir erfið veikindi, hann glímir við
Parkinson-sjúkdóminn, þá vonast Ozzy Osbourne til að
geta haldið tónleika á ný. „Ósk mín er að standa aftur á
sviði. Ég er ekki tilbúinn að leggja hljóðnemann á hill-
una. Þetta er það sem ég lifi fyrir – að troða upp,“ sagði
hann í samtali við sjónvarpsþáttinn Good Morning
Britain. Svo sem fram hefur komið er Ozzy búinn að af-
lýsa öllu tónleikahaldi á þessu ári, eins og hann gerði á
því síðasta. „Ég hreyfi mig eins mikið og ég get; er með
þjálfara og iðka Pilates. Svo er ég með nuddara og
hjúkrunarfræðinga öllum stundum. Besta meðalið yrði
samt að geta staðið frammi fyrir áhorfendum að nýju;
ég finn til í hjartanu út af þessu, svo ég segi nú bara eins
og er,“ bætti hann við.
Finnur til í hjartanu
AFP
Ozzy Osbourne vonast
til að standa aftur á sviði.
SJÓNVARP Enski leikurinn (The English Game)
nefnist ný þáttaröð í sex hlutum sem hefur göngu
sína á efnisveitunni Netflix 20. mars næstkomandi.
Svo sem nafnið gefur til kynna fjalla þættirnir um
hinn ástsæla og geysivinsæla leik knattspyrnu og
hvernig hún varð til á áttunda áratugi nítjándu
aldarinnar. Handritshöfundur er Julian
Fellowes, sem frægastur er fyrir að hafa
skrifað Downton Abbey. Í þáttunum fylgj-
umst við með tveimur leikmönnum, hvorum
úr sínu liðinu, þegar þeir freista þess að
gera knattspyrnu, sem í upphafi var ætluð
körlum úr efri stétt, að íþrótt við
alþýðuskap.
Julian Fellowes
skrifar handritið
að þáttunum.
AFP
Breska leikkonan Miriam Margolyes.
Get ég breyst?
VIGT „Ég hef verið feit allt mitt líf
og langaði að skilja hvers vegna.
Get ég breyst?“ segir hin 78 ára
gamla breska leikkona Miriam
Margolyes í samtali við dagblaðið
The Guardian. Tilefnið er ný heim-
ildarmynd sem hún hefur gert fyrir
breska ríkisútvarpið, BBC, Miri-
am’s Big Fat Adventure. Hana
langaði líka að kynna sér hvernig
annað fólk glímir við sína yfirvigt.
„Það að vera of þung hefur haft
áhrif á og litað allt mitt líf. Það hef-
ur gert mig minna aðlaðandi, kyn-
ferðislega, og olli mér oft og tíðum
vanlíðan á unglingsaldri,“ segir
Margolyes en bætir við að yfirvigt-
in hafi líka átt þátt í að þróa húm-
orinn sem hún býr að. „Maður get-
ur ekki stöðugt verið miður sín.“
Við byrjum þennan trymbla-þátt í Virginíu í Bandaríkj-unum en málmbandið Lamb
of God sendir frá sér nýja plötu í
maí, sem heitir eftir sveitinni, en sú
síðasta, VII: Sturm Und Drang,
fékk glimrandi dóma fyrir fimm ár-
um. Í millitíðinni hafa þeir lamb-
ungar skipt um trymbil, Art nokkur
Cruz er tekinn við kjuðunum af
Chris Adler, sem leikið hafði með
bandinu frá því það var stofnað, árið
1994.
Í samtali við bandaríska útvarps-
þáttinn Full Metal Jackie fer Mark
Morton, gítarleikari Lamb of God,
lofsamlegum orðum um Cruz og
segir hann hafa komið með kraft og
ferskar hugmyndir að borðinu. Tja,
eða settinu. „Það hefur verið frá-
bært að vinna með Art og fylgjast
með honum finna sig,“ sagði Mor-
ton.
Ekki liggur alveg eins vel á Adler
en fram kom, þegar hann yfirgaf
Lamb of God síðasta haust, að hann
hefði ekki sjálfur ákveðið að segja
skilið við lífsverk sitt. Á móti kæmi
að hann hefði engan áhuga á að
„mála eftir númerum“.
Athygli vekur að yngri bróðir Ad-
lers, gítarleikarinn Willie, sem gekk
til liðs við Lamb of God árið 2000, er
áfram um borð. Ugglaust stuð í fjöl-
skylduboðunum um þessar mundir.
Ef bræðurnir talast þá yfirhöfuð
við. Við munum að Max og Iggor
Cavalera yrtu ekki hvor á annan í
áratug eftir að þeim fyrrnefnda var
bolað burt úr Sepultura og sá síðar-
nefndi varð eftir. Að lokum hvarf
Iggor einnig á braut og bræðurnir
starfa nú saman í Cavalera Con-
spiracy. Hver veit nema við eigum
eftir að sjá Adler Conspiracy síðar?
Annars er tómt vesen að heita
Adler og leika á trommur. Spyrjið
bara Steven, hinn upprunalega
trymbil Guns N’ Roses. Þegar Axl
Rose, Slash og Duff McKagan sam-
einuðust á ný nennti enginn að
hringja í Adlerinn, sem sat heima
með sárt ennið meðan hinir hlóðu í
einn stærsta túr tónlistarsögunnar,
sem skilaði goðsögnunum alla leið
út á Laugardalsvöll. Í hans stað
lamdi Frank Ferrer húðir á túrnum
en hann hefur lengi starfað með
Axl.
Engum sögum fer af skyldleika
Chris og Stevens. Svo því sé til haga
haldið.
Bók frá Matt Sorum
Talandi um GNR-trommara þá til-
kynnti Matt Sorum, sem var í band-
inu frá 1990-97, í vikunni að hann
hefði seinkað útgáfu endurminninga
sinna frá apríl og fram í júlí. Bókin
heitir hvorki meira né minna en
Double Talkin’ Jive: True Rock ’N’
Roll Stories From The Drummer Of
Chris Adler málar ekki
myndir eftir númerum.
Titringur í
trymblalandi
Trymblar voru áberandi í fréttum úr rokkheimum
í vikunni, af hinum ýmsu og ólíkustu ástæðum.
Sumir eru hættir, aðrir byrjaðir, enn aðrir að gefa
út bækur og heimildarmyndir, einhverjir veikir
eða smeykir við veikindi. Og sumir fá hrós. Gott
fólk, trymblar. Án þeirra væri ekkert rokk og ról.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Lars Ulrich fékk klapp á bakið frá gömlum vopnabróður í málmi í vikunni.
AFP
Þættir um upphaf knattspyrnunnar
FYLGIST ÞÚ
VEL MEÐ?
LEITUM AÐ TOPPFÓLKI
Í SUMARSTÖRF
Sæktu um á
www.securitas.is