Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2020, Blaðsíða 29
Guns N’ Roses, The Cult, And Vel- vet Revolver. Það verður að lík- indum einhver veisla. Minna verður um veislur hjá Sons of Apollo í bráð en trommarinn og goðsögnin Mike Portnoy, sem lengi var í Dream Theater, varði í vikunni þá ákvörðun bandsins að aflýsa Evróputúr sínum vegna kórónuveir- unnar. Portnoy tók skýrt fram að hann væri ekki vísindamaður (hann hefði getað blekkt mig!) en ógnin væri eigi að síður raunveruleg og ótti mikill í álfunni. Þess vegna væri ekkert vit í því að halda til Evrópu upp á von og óvon. Allar líkur væru á því að fleiri giggum þyrfti að af- lýsa en hitt þegar á hólminn væri komið. Talandi um veikindi þá upplýsti Geoff Tate, fyrrverandi söngvari progggoðanna (hvað eru mörg g í því?) í Queensryche, í viðtali við vef- ritið Metal Rules í vikunni að óvíst væri hvort Scott Rockenfield, upp- runalegi trommari sveitarinnar, ætti nokkurn tíma eftir að setjast aftur við settið en hann mun eiga við vanheilsu að stríða. Rockenfield tók sér frí árið 2017 en hefur ekki snúið aftur. Í viðtalinu er að sjálf- sögðu spurt um endurfundi Tate og Queensryche en söngvarinn segir þá ólíklega í ljósi þess hvernig kom- ið sé fyrir Rockenfield, auk þess sem Chris DeGarmio hafi lagt gít- arinn á hilluna. Aðeins eru tveir upprunalegir meðlimir eftir í Queensryche, Michael Wilton gít- arleikari og bassaleikarinn Eddie Jackson. Sem frægt er tókust þeir og Tate á um sjálft nafn sveit- arinnar fyrir dómstólum fyrir sex árum. Og Tate tapaði. Rós í hnappagat Ulrichs Lars Ulrich, trymbill Metallica, fékk betri fréttir í vikunni en Char- lie gamli Benante, aldavinur hans og kollegi úr Anthrax, tók óvænt upp á því að hæla Dananum á hvert reipi fyrir hæfni sína við settið. Í samtali við tímaritið Revolver nefnir Benante Ulrich sem einn af fimm uppáhaldstrymblum sínum. „Ég dýrka hvernig hann hugsar í lög- um,“ segir hann. Hinir fjórir sem Benante nefnir eru Neil Peart (Rush), Alex Van Halen (Van Ha- len), Jerry Gaskill (King’s X) og Ringo Starr úr Bítlunum. Þetta hefur án efa kætt Ulrich en trommuleikur hans hefur löngum verið umdeildur og í bók sinni En- ter Night gerir málmvísindamað- urinn Mick Wall því skóna að James Hetfield og Cliff Burton hafi lagt á ráðin um það árið 1986 að losa sig við Ulrich og krækja í Dave Lomb- ardo úr Slayer í staðinn. Þau áform hafi runnið út í sandinn þegar Bur- ton lést í rútuslysi um haustið. Þessi kenning hefur aldrei fengist stað- fest. Dave Grohl er vitaskuld ekki trymbill lengur, nema þá helst á tyllidögum, en hann byrjaði sem slíkur, rétt eins og Raggi heitinn Bjarna. Grohl komst í fréttirnar í vikunni en von er á heimildarmynd eftir hann sem kallast What Drives Us. Þar kannar Grohl hvað fær tón- listarmenn til að fleygja öllu frá sér og henda sér upp í sendiferðabíl eða rútu og leggja land undir fót í þeim tilgangi að meika’ða. Í myndinni ræðir hann meðal annars við með- limi hljómsveita á borð við Bítlana, Metallica og Dead Kennedys. „Öll bönd sem þú hefur séð eða hlustað á hafa byrjað í sendiferðabíl,“ sagði Grohl í samtali við útvarpsstöðina DC101 vestra. „Þannig gerum við þetta bara.“ Það eru ekki verri lokaorð en hver önnur. AFP Mike Portnoy er hættur við að fara til Evrópu út af kórónuveirunni. AFP 8.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 POPP Leik- og söngkonan Mandy Moore hefur verið að fá fína dóma fyrir fyrstu breiðskífu sína í ellefu ár, Silver Linings. Þannig gefur gagnrýnandi breska blaðsins The Independent plötunni fjórar stjörn- ur og segir hana skilja mikið eftir sig sem sé Moore einni að þakka. Alltof langt sé síðan hún hafi sent frá sér nýja tónlist en Moore, sem naut mikillar hylli sem söngkona á sínum tíma, er líklega betur þekkt sem leikkona í dag, svo sem í hinum vinsælu þáttum This Is Us. Moore fær góða dóma fyrir söng Mandy Moore syngur og leikur. AFP BÓKSALA 4.-10. MARS Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Andlitslausa konan Jónína Leósdóttir 2 Hvítt haf Roy Jacobsen 3 Brúin yfir Tangagötuna Eiríkur Örn Norðdahl 4 Blekkingarleikur Kristina Ohlsson 5 Úlfakreppa B.A. Paris 6 Illvirki Emelie Schepp 7 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler-Olsen 8 Ennþá ég Jojo Moyes 9 Agathe Anne Cathrine Bomann 10 Iceland in a Bag Ýmsir höfundar 1 Dularfulla símahvarfið Brynhildur Þórarinsdóttir 2 Kepler 62 - leyndarmálið Bjørn Sortland 3 Tinni – ferðin til tunglsins Hergé 4 Sombína og dularfulla hvarfið Barbara Cantini 5 Tinni – í myrkum mánafjöllum Hergé 6 Orri óstöðvandi – hefnd glæponanna Bjarni Fritzson 7 Leikskólalögin okkar Jón Ólafsson og fleiri 8 Langelstur að eilífu Bergrún Íris Sævarsdóttir 9 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson 10 Hundalíf – á ferð og flugi Allar bækur Barnabækur Það var smá fúlt að Auður Ava og Jón Kalman sendu ekki frá sér verk um síðustu jól en ég les allar bækur þeirra. Ég held líka tryggð við Vig- dísi Grímsdóttur, Guðrúnu Evu, Bergsvein og Ólaf Jóhann og les allt eftir þau. Ég verð samt að viður- kenna að ég var ekki eins hrifin af bókum þeirra þriggja síðastnefndu sem komu út um síðustu jól eins og af fyrri bókum þeirra. Ég náði ekki alveg að tengja mig við bók- ina hans Bergsveins Lifandilífslækur en Leitin að svarta víkingnum sem hann gaf út árið 2016 er í miklu uppáhaldi hjá mér. Bók Guðrúnar Evu um Aðferð til að lifa af hreif mig en þó ekki eins mikið og verk henn- ar um Skaparann og Skegg Raspút- íns. Ólafur Jóhann fór inn á glæpavettvang- inn í síðustu bók sinni en eldri bækurnar hans eru að mínu mati mun tilfinn- ingaþrungnari. Yfir jólin las ég líka skáld- sögur eftir nýja höfunda, Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Kokkál eftir Dóra DNA. Ólíkir höf- undar en náðu bæði til mín. Ég er ekki búin að lesa bók Vigdísar um Systu en það stendur til bóta. Ég er með fleiri bækur á nátt- borðinu. Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ. Ég er hálfnuð með hana og margt áhugavert sem hann fjallar um í tengslum við loftslags- vandann. Bókin hans Arnars Péturs- sonar, Hlaupabókin, er líka opin. Sú bók fær að vera lengi á náttborðinu. Rosaflott uppflettirit fyrir okkur hlaupafíkla. Fyrir átta árum ákvað ég að hvíla mig á íslenskum glæpasögum. Var alveg komin á yfir- snúning við lestur þeirra en nú fer þörf- in að detta aftur inn. Næsta sumar stefni ég á að lesa nýjustu bók Yrsu og Stelpur sem ljúga eftir Evu Björg Ægisdóttur. Áður en ég byrja á krimmunum er planið að lesa meira í jóga- og hagfræðinni. Í sigtinu eru: The Complete Guide to Yin Yoga eftir Ber- nie Clark, Unbound: How Inequality Constricts Our Eco- nomy eftir Heather Boushey og Stop Mugging Grandma eftir Jennie Bristow. Svo ég komi nú aðeins inn á er- lendar bókmenntir þá hef ég lengi haft dálæti á sögum frá nítjándu öld. Það sem kemur helst upp í hugann núna er ævisaga Balzac sem var uppi á þeim tíma, skrifuð af Stef- an Zweig og Hinir smánuðu og svívirtu eftir Fjodor Dostoj- evski í þýðingu Ingi- bjargar Haralds- dóttur og Gunnars Þ. Péturssonar. Þetta eru sögur um klæki, ljóðræn samtöl, baráttu við fátækt og ástina sem heldur mönn- um einhvern veginn gangandi. Verk sem eiga erindi við samtímann. MARGRÉT SÆMUNDSDÓTTIR ER AÐ LESA Tryggð við höfunda og blæti fyrir 19. öldinni Margrét Sæmunds- dóttir er hagfræðingur hjá Seðla- bankanum og jógakennari. á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.