Morgunblaðið - 14.04.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.04.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2020 www.flugger.is*Tilboðið gildir frá 6.-30. apríl 2020 á meðan birgðir endast á öllum stærðum og gljástigum af áðurnefndum vörum í tilboðinu Langar þig að lakka glugga, húsgögn eða innréttingar? Flügger Interior Fix Primer og Interior High Finish leysir það verkefni með þér. 30% afsláttur út apríl* Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við höfum viljað að innflytjendur heilbrigðisvara fari eftir svipuðu fyr- irkomulagi og innflytjendur lyfja,“ segir Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ). Vísar hann í máli sínu til ósamræmis er varðar endur- greiðslu ríkisins til innflutningsaðila heilbrigðisvara vegna gengisveiking- ar íslensku krónunnar. Sökum mik- illar veikingar íslensku krónunnar undanfarnar vikur ákvað íslenska ríkið að koma til móts við innflytjend- ur lyfja og fá þeir nú örari uppgjör vegna þessa. Var þetta gert til að tryggja nægar birgðir lyfja hér á landi. Slíkt stendur innflytjendum ann- arra heilbrigðisvara ekki til boða. „Þetta nær eingöngu til lyfja og því er einungis verið að koma til móts við innflytjendur í þeim flokki. Sambæri- legar forsendur eiga ekki við um inn- flutning á öðrum heilbrigðisvörum,“ segir Andrés og bætir við að miðað sé við miðgengi Seðlabanka Íslands. Gert er upp einu sinni í mánuði, en sökum þess hafa umrædd fyrirtæki orðið af háum fjárhæðum. „Við höfum sagt að miða eigi gengið við sölugeng- ið þannig að fyrirtækin beri ekki skarðan hlut frá borði. Viðkomandi fyrirtæki hafa verið að tapa gífurleg- um fjárhæðum vegna gengisáhrifa. Okkur finnst eðlilegt að það sé komið til móts við þau enda eru þetta fyrir- tæki sem þurfa að birgja sig upp vegna ástandsins,“ segir Andrés. Gríðarleg veiking krónunnar Að sögn Andrésar er alvarleiki málsins fólginn í því að umrætt mið- gengi dekkar ekki veikingu íslensku krónunnar, en hún hefur veikst um- talsvert á skömmum tíma. Þá segir Andrés að fyrirtækin séu að flytja inn mikilvægar vörur fyrir heilbrigðis- kerfið sem nýtast eiga í baráttunni við kórónuveiruna. „Þetta er gríðarlega mikil veiking á stuttum tíma eða í kringum 15%. Þetta eru jafnframt vörur sem verið er að flytja inn fyrir heilbrigðiskerfið. Okkur finnst að koma eigi móts við þessa innflytjendur á sambærilegum forsendum og innflytjendur lyfja,“ segir Andrés. Ósamræmi í endurgreiðslu  Veiking krónunnar hefur mikil áhrif Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Einasta vonin að útrýma kór- ónaveirunni er að nægilega stór fjöldi fólks verði með mótefni. Sú náttúrulega vörn fæst eingöngu með bólusetningu eða smiti. Þeg- ar nógu stór hópur er kominn með mótefni á veiran erfiðara með að dreifa sér. Slíkt kallast hjarðónæmi. Í þessu máli þurfa þjóðir að setjast niður og skipu- leggja málin. Sitthvað er því til í þeim orðum menntamálaráð- herra í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum að ósennilegt sé að opnast muni fyrir flæði fólks til og frá landinu fyrr en hægt verður að bólusetja fólk gegn kórónuveirunni,“ segir Svein- björn Gizurarson prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Skynsamlegar aðgerðir á Íslandi Kórónuveikifaraldurinn og COVID-19 er mál málanna og til þeirra þekkir Sveinbjörn vel sem vísindamaður. Hann hefur í tím- ans rás komið að margvíslegu vísindastarfi og þróun lyfja jafn- framt því að þekkja vel til heil- brigðismála almennt. Í lok janúar síðastliðins kallaði Sveinbjörn ör- yggisnefnd HÍ til, þar sem að kórónafaraldurinn væri að fær- ast allur í aukana í Kína og gæti valdið skaða víða um heim, sam- anber viðbrögð Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar (WHO). Þetta varð til þess að öryggis- nefndin boðaði neyðarstjórn skól- ans saman í byrjun febrúar og setti í gang vinnuhóp til að fara yfir þann hluta neyðaráætluna sem snýr að farsóttum . Hefur því plaggi verið fylgt síðan. „Mér finnast aðgerðir hér á Íslandi, í ljósi reynslunnar af öðr- um faröldrum, hafa verið mjög skynsamar og vel hugsaðar. Það er líka ánægjulegt að sjá hve vel ráðamenn hafa tekið mark á Al- mannavörnum, sóttvarnarlækni og landlækni sem hafa þurft að taka erfiðar ákvarðanir sem mik- il ábyrgð fylgir.“ Vírusar margfalda sig Hvað er kórónuveira? Spurn- ingin er stór og Sveinbjörn svar- ar þannig að vírusar eða veirur einkennist af því að þær hertaka ákveðnar frumur, sem þær nýta til að margfalda sjálfa sig. Kór- ónuveiran sé gott dæmi um þetta. Hún sé með brodda, sem mynda eins konar kórónu, sem bindast viðtökum sem er að finna á yfirborði frumna í nefi og lung- um, og þaðan fara þær inn í þessar frumur. „Veiran hertekur frumuna og breytir allri próteinfram- leiðslu sér í hag. Veiran myndar ákveðin prótein sem hindra hina sýktu frumu frá því að framleiða þau vopn sem hún myndi annars framleiða til að verjast árás. Fruman verður því nánast varn- arlaus. Síðan er prótein sem kall- ast ORF7b sem klippir gat á sýktu frumuna, þegar nýfram- leiddu veirurnar vilja dreifa sér. Við þessa aðgerð setur veiran einnig í gang ferli þar sem frum- an slekkur á sér og deyr og með því myndast mörg þau einkenni sem við heyrum um meðal ann- ars bólgur í öndunarfærum með tilheyrandi öndunarerfiðleikum.“ Löng reynsla vísindamanna gefur þeim hugmyndir um hvaða hlutar veirunnar séu ákjósanleg- astir að horfa til við þróun bólu- efnis. Mikilvægast er að mót- efnasvarið sem myndast geti stöðvað og eytt veirunni. Hins vegar tekur mörg ár og jafnveg áratugi að þróa nýtt lyf, segir Sveinbjörn. Bætir við að því sé nú verið að prófa hvort lyf sem eru nú þegar á markaði, geti nýst til að minnka þann skaða sem kórónaveiran veldur eða jafnvel stöðvað hana. Í öðrum til- fellum sé verið að prófa lyf sem hafa verið þróuð til dæmis við ebólu en ekki náð á markað, svo sem hjá lyfjafyrirtækinu Gilead en ekki náð á markað. Þá séu vísindamenn við lyfjafræðideild HÍ með ýmis mál þessu viðvíkj- andi í skoðun. Samskipti við aðrar þjóðir breytast „Nei, ég tel ólíklegt að kór- ónuvírusinn deyi út og hann á efalítið eftir breyta mjög mörgu í samskiptum okkar á Íslandi til dæmis við aðrar þjóðir,“ segir Sveinbjörn Gizurarson og að lokum:„Ekki kæmi á óvart að í framtíðinni verði þess óskað að fólk sýni fram á mótefni gegn veirunni þegar ferðast er milli landa. Erfitt að segja hvenær við getum vænst þess að lyf verði komið gegn veirunni. Ekki eru nema rétt rúmir þrír mánuðir frá því að veiran kom fram í Wuhan í Kína, svo vísindasamfélagið er allt að vinna saman að því koma með nothæfar og öruggar með- ferðir gegn sjúkdómnum CO- VID-19 sem svo miklum skaða hefur valdið.“ Kórónuvírusinn mun breyta mörgu í samskiptum þjóða og ólíklegt að hann deyi út Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lyfjafræði Ekki kæmi á óvart að í framtíðinni verði þess óskað að fólk sýni fram á mótefni þegar ferðast er milli landa, segir Sveinbjörn. Bólusetning er einasta vonin  Sveinbjörn Gizurarson er fæddur árið 1962. Hann nam lyfjafræði við Háskóla Íslands og stundaði svo framhalds- nám í Danmörku og í Japan. Hefur einnig sinnt kennslu við HÍ frá 1991, en einnig við er- lenda háskóla, svo sem í Bandaríkjunum, Danmörku og Malaví.  Hefur sinnt margvíslegum verkefnum við lyfjaþróun og verið prófessor við lyfjafræði- deild HÍ frá 1999. Hver er hann? Framkvæmdir hefjast snemma sum- ars við tvöföldun Vesturlandsvegar milli Skarhólabrautar og Langatanga í Mosfellsbæ. Vegagerðin auglýsti út- boð á þessu verkefni fyrir nokkrum dögum og verða tilboð opnuð snemma í maí. Í kjölfar þess verður hafist handa, en verkefnið felst í að breikka vegsvæðið á kaflanum milli Skarhólabrautar og Langatanga, koma þar fyrir fjórum akreinum og aðskilja akstursstefnur með vegriði. Vegkaflinn er 1,1 km að lengd og hefur reynst flöskuháls þegar umferð er mikil en við framkvæmdina eykst jafnframt umferðaröryggi til muna. Samhliða verða byggðir hljóðvarn- arveggir, hljóðmanir, biðstöð fyrir Strætó og tengingar við stígakerfi Mosfellsbæjar, en sveitarfélagið og Vegagerðin standa sameiginlega að verkinu. Það er sagt fela í sér miklar samgöngubætur, bæði innanbæjar í Mosfellsbæ og eins fyrir þá sem fara í gegnum bæinn. „Með breikkun Vesturlandsvegar í gegnum Mosfellsbæ verður brátt úr sögunni einn mesti flöskuhálsinn á þjóðvegi 1,“ segir Haraldur Sverr- isson bæjarstjóri í Mosfellsbæ. „Langar raðir sem myndast hafa í Mosfellsbæ á álagstímum heyra þá sögunni til. Þessi framkvæmd hefur verið baráttumál Mosfellinga lengi og er ánægjulegt að af henni verði nú.“ sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mosfellsbær Vegurinn verður breikkaður nærri Hulduhólum. Breikkað í Mosfellsbæ  Taka flöskuháls af hringveginum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.