Morgunblaðið - 14.04.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.04.2020, Blaðsíða 20
✝ Bjarni Tóm-asson fæddist á Fljótshólum í Gaulverjabæj- arhreppi 7. febr- úar 1937. Hann lést 14. mars síð- astliðinn á hjúkr- unarheimilinu Fossheimum, Sel- fossi. Foreldrar hans voru Tómas Tóm- asson og Guðríður Jónsdóttir, bændur á Fljótshólum. Systkini Bjarna í aldursröð eru Jóna Sigríður, Jón Guðmundur, Gunnar Yngvi og Þuríður Sig- urbjörg. Hinn 19. nóvember 1960 17.5. 1967, börn hans eru Bryndís og Guðmundur Bjarni, móðir þeirra er Steinunn Alda Guðmundsdóttir, f. 1970. Bjarni ólst upp á Fljóts- hólum og sinnti þar bústörfum þar til hann fluttist til Selfoss árið 1957. Hann starfaði í Mjólkurbúi Flóamanna þar til hann hóf störf hjá Kaupfélagi Árnesinga 1966 og samhliða því hóf hann nám í rafvirkjun. Hann lauk námi í rafvirkjun árið 1970 og síðar meistara- gráðu í iðninni. Árið 1986 hóf hann störf hjá Rafseli hf. á Sel- fossi og starfaði þar til ársins 1994 en þá varð hann að hætta störfum vegna heilsubrests. Útför Bjarna fer fram frá Selfosskirkju í dag, 14. apríl 2020, klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni út í bíla á útvarpsrás 101,6. kvæntist Bjarni eiginkonu sinni, Hjördísi Þorsteins- dóttur, f. á Sel- fossi 16. mars 1942. Foreldrar hennar eru Þor- steinn Bjarnason og Ingigerður Þórðardóttir. Börn Bjarna og Hördís- ar eru: 1) Þor- steinn, f. 4. júní 1961, eiginkona hans er Janni Högh, f. 1964. 2) Laufey Ása, f. 26. október 1965, eiginmaður hennar er Guðmundur Þorri Jóhannesson, f. 1966. Börn þeirra eru Hjördís Ásta, Jó- hannes og Þórunn. 3) Arnar, f. „Elsku afi, takk fyrir allar dýr- mætu stundirnar. Okkur systk- inunum þótti alltaf gott að koma á Selfoss. Þú sast ávallt yfirveg- aður í hægindastól að lesa frétt- irnar og gafst okkur hlý knús. Á sama máta og knúsin fékk skop- skynið að njóta sín enda var sjaldan dauf stund með þér. Nokkur sumur skipulagðir þú ferðir í Veiðivötn og kenndir okk- ur systkinunum að veiða. Á ferðalögum okkar fjölskyldunnar flúðum við tjaldvagninn inn í hlýja góða húsbílinn ykkar ömmu. Þar beið okkar alltaf ynd- islegur félagsskapur, góð knús og konfektmolar. Hjördís minnist allra stund- anna úti í hesthúsi þar sem þið amma leyfðuð þeim Bryndísi frænku að kynnast hestunum og þá sérstaklega Rúbín. Mér þótti alltaf rosalega mikið sport að fá að gista hjá ykkur ömmu á Sel- fossi og var algjör harðstjóri í að láta ömmu kenna mér nýjar bæn- ir. Svo fékk ég að tína rifsber al- veg eins og mig lysti. Ég man að einu sinni vaknaði ég um nóttina og brá svo því ég hafði aldrei heyrt neinn hrjóta jafn hátt, en fannst það samt óstjórnlega fyndið líka. Á seinni árum fannst mér alltaf gott að hafa þig í hæg- indastólunum þar sem þú fylgd- ist með okkur öllum spila rommí í fjölskylduboðum og ég veit að þið langamma sitjið ábyggilega á einhverjum góðum stað með bros á vör og fylgist með næstu rommíspilum. Mér þykir ótrú- lega gaman að þú skulir hafa kennt mér að elda skötu, þú skildir ekkert í því hvað mér þótti það merkilegt. Ég eldaði hana í fyrsta skipti sjálf síðustu jól og þykir vænt um að geta haldið áfram að gera það. Þú kenndir mér eitt annað sem er ekki síður mikilvægt; að mennt verður aldr- ei frá þér tekin. Ég mun vonandi nýta mína menntun svo fleiri fái að hafa yndislega afa hjá sér jafn lengi og við. Við munum ávallt líta aftur með hlýjum augum á heimsókn- irnar í Vallholti. Við minnumst þess þegar við byggðum okkar eigin heima í sandinum við bíl- skúrinn. Þú fylgdist með og gafst okkur ýmsar hugmyndir á meðan þú grillaðir. Við minnumst lam- bakótilettanna sem komu ein- hvern veginn alltaf af grillinu fullkomlega eldaðar. Heimsókn- irnar til ykkar ömmu þurftu allt- af að enda og þá var alltaf erfitt að kveðja. Myndin af ykkur ömmu í dyragættinni að veifa á eftir okkur systkinunum þegar við renndum úr hlaði er brennd í minni okkar, okkur þykir sú mynd einstaklega dýrmæt og fal- leg. Nú er kominn tími til að kveðja þig elsku afi. Hvíldu í friði. Hjördís Ásta, Jóhannes og Þórunn. Bjarni Tómasson 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2020 ✝ Sigrún Hjart-ardóttir fædd- ist 31. maí 1942. Hún lést á heimili sínu Hátúni 12, Rvk. 30. mars 2020. Foreldrar hennar voru þau Hjörtur Jóhanns- son, bóndi og síðar vörubílstjóri í Reykjavík, f. 1901, d. 1996, og Guð- mundína Guðmundsdóttir, hús- freyja f. 1899, d. 1997. Systkini Sigrúnar: 1) Einar Hafsteinn f. 1925, d. 1995, kvæntur Guð- björgu Guðjónsdóttur, f. 1928, d. 2013, 2) Unnur, f. 1928, gift Jóhanni K. Guð- mundssyni f. 1913, d. 1998. 3) Oddur Rúnar, f. 1931, kvæntur Soffíu Ágústsdóttur, f. 1935. Sigrún bjó nánast alla tíð í foreldrahúsum, en við andlát foreldra sinna fluttist hún að Hátúni 12 í Reykjavík og var búsett þar til æviloka. Sigrún var ógift og barnlaus. Í ljósi aðstæðna fór útför Sigrúnar fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu hinn 6. apríl 2020. Nú hefur hún elsku Sigga föð- ursystir mín lokið lífsgöngu sinni. Lífið var henni oft erfitt þar sem hún var fötluð frá fæðingu og varð hún oft fyrir aðkasti. Sem betur fer hefur það breyst til hins betra og höfum við fullorðna fólkið lært margt síðan þá og vitum að við hefðum oft mátt sýna Siggu meiri skilning á okkar yngri árum. Húm missti mikið þegar amma dó, enda var umhyggja hennar fyrir Siggu mikil alla tíð og hennar helsta áhyggjuefni var að Sigga gleymdist ekki þegar hún félli frá. Sigga átti heilmikið safn bóka um ástir og örlög sem voru mjög vinsælar á þeim tíma, það var spennandi fyrir okkur yngri kyn- slóðina að fá lánaða bók hjá frænku og alltaf skrifaði hún nöfn lántakenda í stílabókina sína og minnti mann svo á að nú þyrfti að fara að skila ef henni fannst vera orðinn langur lánstíminn. Henni þótti mjög gaman að spila við okkur frændfólkið og best var að hún ynni, því hún var frekar tapsár blessunin. Á sunnudagsmorgnum kl. 11 var messa í útvarpinu, þá var heil- ög stund, hún var búin að skrifa númerin á sálmunum og söng með. Sigga fór oft með foreldrum sínum til ættingja vestur á Snæ- fellsnes, en föðurbræður hennar bjuggu á Þingvöllum og Helga- felli. Voru þessar ferðir mikil upp- lifun fyrir hana. Sigga keypti sér sjónvarp strax og sjónvarpssendingar hófust 1966. Það var fjölmenni í stofunni í Stórholtinu þegar ríkissjónvarpið sendi út fyrstu útsendinguna. Eftir lát ömmu og afa fluttist hún í Sjálfsbjargarhúsið í Hátúni, sem varð hennar gæfa. Þar leið henni vel með heimilisfólki og starfsfólki sem er einstakt og ber virðingu fyrir íbúum, það sá ég og ber að þakka. Sigga var bráðskemmtileg, dá- lítið stjórnsöm eins og hún á kyn til, var húmoristi og átti til að svara skemmtilega og hafði smit- andi hlátur. Hún kvartaði aldrei, var nægju- söm og bað aldrei um neitt og þeg- ar ég spurði „hvernig líður þér Sigga mín“ svaraði hún alltaf „bara vel“. Við áttum dýrmætar stundir saman. Hún gladdist þegar við fórum í bíltúr, alltaf sama leiðin, upp í kirkjugarð til að kanna hvort nokkur væri kominn í leiðið henn- ar, sem er við hliðina á ömmu og afa, og á heimleiðinni keyptum við ís. Eftir að hún var komin í hjóla- stól var pantaður bíll frá ferða- þjónustu fatlaðra og fórum við þá í Smáralind og Kringluna, fengum okkur að borða, keyptum glitrandi hálsmen eða fallegan bol, dásam- legar ferðir. Sigga bauð fjölskyldunni allri til veislu í Sjálfsbjargarhúsinu þegar hún varð 75 ára. Hún var svo fín og sæl þar sem hún horfði yfir hópinn sem hún reyndi að fylgjast með eins og hún gat. Nú í seinni tíð átti hún erfiðara með mál en við skildum hvor aðra, það dugði, héldumst í hendur og hlóg- um saman. Þegar ég hugsa um Siggu frænku hlýnar mér um hjartaræt- ur, hún var sannkölluð hetja. Ég sakna Siggu minnar, sem kenndi mér svo margt. Við leiðarlok kveð ég frænku mína í hinsta sinn og kalla á eftir henni eins og hún kallaði á eftir mér, „farðu varlega, bið að heilsa“. Margrét G. Einarsdóttir. Ég á margar minningar um Siggu frænku frá því í æsku. Fyrstu minningarnar eru frá því þegar ég kom í heimsókn til lang- ömmu, langafa og Siggu í Stór- holtinu. Þangað var alltaf gott að koma. Langamma Guðmundína söng við bakstur í eldhúsinu. Hjörtur afi að hlusta á fréttirnar og Sigga hafði nægan tíma til að spila við litlu frænku sína. Seinna flutti Sigga tímabundið á heimili Unnar ömmu og afa Jóa á Háteigsveginum. Ég bjó líka hjá þeim. Allt var í föstum skorðum og reglusemi og öryggi aðalsmerki heimilisins. Fiskur þrisvar í viku, kótelettur á laugardögum og læri eða hryggur á sunnudögum. Glað- værð og spaug var þó ríkjandi. Jói afi og Hjörtur bróðir mömmu voru miklir stríðnispúkar. Mikið var brallað og alltaf nóg að gera. Í þá daga var alltaf verið að spila borðspil og við Sigga spiluðum oft ólsen ólsen, rússa eða manna. Ef þrír voru við spilaborðið var spil- aður Hornafjarðarmanni. Ef það voru fjórir við spilaborðið þá var það vist. Sigga var mikill lestrar- hestur og við Sigga áttum sameig- inlegt að lesa þær bækur sem við höfðum áhuga á upp til agna. Ekki var hægt að færa Siggu betri gjöf en bók. Sigga hefði sannarlega geta lagt Íslendingum lið í keppninni sem er núna í sam- félaginu sem er „Heimsmet í lestri“ Einu sinni í viku fór Sigga í strætó til Siggu vinkonu sinnar á Langholtsveginum og ég fór stundum með henni. Hetjan hún Sigga með sína fötl- un., lifði sínu lífi án þess að kvarta. Um langan tíma vann hún í bók- bandi. Hún gekk niður á Hlemm og niður á Laugaveg. Ég skynjaði það ekki þá hvað hún var mikil hetja en vissulega núna. Hún gekk í ýmis heimilis- störf, vaskaði upp, þurrkaði af og bakaði pönnukökur á laugardög- um. Þegar ég hugsa til Siggu finn ég fyrst og fremst til aðdáunar. Hún var mikill karakter, það var heilmikið skap í henni, hún var þó oftast glöð í bragði og hafði gaman af að að hitta ættingja og vini. Sigga tókst á við sína fötlun með æðruleysi sem við gætum öll tekið okkur til fyrirmyndar. Ég ylja mér við minningarnar og kveð þig, elsku Sigga. Hvíl þú í friði. Elísabet Axelsdóttir. Ég á mér draum um betra líf. Ég á mér draum um betri heim. Þar sem allir eru virtir, hver á sínum stað, í sinni stétt og stöðu. Þar sem allir eru mettir gæðum sannleikans. Þar sem allir fá að lifa í réttlæti og friði. Þar sem sjúkdómar, áhyggjur og sorgir eru ekki til. Og dauðinn aðeins upphaf að betri tíð. (Sigurbjörn Þorkelsson) Við þökkum samferðina og notalegar stundir í gegnum árin. Minning þín lifir hjá okkur um ókomna tíð. Ágúst og Elísabeth. Sigrún Hjartardóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA G. STEPHENSEN EGILSDÓTTIR, Laugarnesvegi 53, lést 8. apríl á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Egill Stephensen Stefán Stephensen Guðrún K. Aðalsteinsdóttir Íris Stephensen Gunnlaugur Hans Stephensen Aðalsteinn Stefán Stephensen Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ G.H. MARINÓSDÓTTIR, textíllistakona og kennari, Löngumýri 34, Akureyri, lést á heimili sínu að morgni páskadags. Rúnar Sigþórsson Heiðar Þór Rúnarsson Birna Málmfríður Guðmund. Oddur Már Rúnarsson Iona Morris og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN SIGRÍÐUR ÓSKARSDÓTTIR, lést á Öldrunarheimilinu Hlíð 8. apríl. Jarðarförin fer fram í kyrrþey 16. apríl sökum aðstæðna. Svandís Gunnarsdóttir Einar Árnason Ósk Ársælsdóttir Kjartan Heiðberg Þorbjörg Ársælsdóttir Valdimar Sigurjónsson Vigdís Sigrún Ársælsdóttir Kristján Ármannsson Magnús Ársælsson Elísabet Arnoddsdóttir Hreggviður Ársælsson Berglind Ingólfsdóttir Ástkær móðir okkar tengdamóðir amma og systir, ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri föstudaginn 3. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey. Björn Ævar Sigurbergsson Aðalheiður Sigtryggsdóttir Friðrik Þór Birgisson Elísabet Sigmundsdóttir Valdimar Birgisson barnabörn systkini Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS LÍNDAL HAFLIÐADÓTTIR lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 8. apríl. Í ljósi aðstæðna verður útförin aðeins fyrir nánustu aðstandendur en minningarathöfn verður haldin síðar. Starfsfólki á Minni-Grund þökkum við kærleika og hlýju. Hafliði Nielsen Skúlason Valdís Kristjánsdóttir Snorri Már Skúlason Svava Skúladóttir Ragnar J. Bogason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir og stjúpfaðir, GUÐNI MAGNÚS SVEINSSON, Leirubakka 28, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 8. apríl. Guðrún Gísladóttir Guðgeir Magnússon Unnur Berg Gísli Ragnarsson Guðbjörg Ósk Baldursdóttir Kristín Lára Ragnarsdóttir Tómas Örn Stefánsson og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.