Morgunblaðið - 14.04.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2020
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
PÁSKAPERLUR
Vefuppboð nr. 475
Lýkur 15. apríl
Jón Stefánsson
vefuppboð á uppbod.is
Úrval góðra verka
Sigurbjörn Jónsson
40 ára Hólmar er
Akureyringur en býr í
Reykjavík. Hann er lög-
fræðingur og persónu-
verndarfulltrúi hjá
Landlækni og sinnir
persónuverndaráðgjöf.
Maki: Valgerður Hún-
bogadóttir, f. 1983, lögfræðingur hjá
Rauða krossinum.
Börn: Huginn Örn, f. 2006, Herdís, f.
2013, og Edda, f. 2015.
Foreldrar: Finnur Örn Marinósson, f.
1943, framreiðslumeistari, og Guðrún
Jóna Gunnarsdóttir, f. 1943, húsmóðir.
Þau eru búsett á Akureyri.
Hólmar Örn
Finnsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur verið til bóta að nálgast
verkefni úr nýrri átt þegar gömlu aðferð-
irnar eru hættar að duga. Treystu því að þú
fáir þínu framgengt.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú mátt eiga von á því að vinur þinn
leiti til þín í vandræðum sínum. Oft fer mikill
tími í áhyggjur hjá þér, en taktu eftir að þær
breyta engu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt erfitt með að einbeita þér
að hlutunum og dettur auðveldlega í dag-
drauma. Þeir draumar eiga alveg rétt á sér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leystu eigin vandamál áður en þú
skiptir þér af öðrum. Leitaðu frekar eftir
samstarfi við aðra en samkeppni. Þú færð
skemmtilega sendingu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Tekjumöguleikar leynast í skapandi
hugmynd sem þú hefur lumað á um nokk-
urt skeið. Hugur þinn stefnir til útlanda í
nám í framtíðinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef ágreiningur rís upp meðal fjöl-
skyldumeðlima þarf að komast að mála-
miðlun. Allir ættu að hafa atkvæðisrétt. Ná-
grannar koma á óvart.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það verður lokauppgjör í fjölskyldunni
– flækjur leysast fyrr en varir. Komdu þér út
í náttúruna og borðaðu hollara en þú hefur
gert síðustu vikur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki er gott að átta sig á því
hvar landið liggur í samskiptum við yfir-
mennina núna. Allir heimilismeðlimir ættu
að sinna þrifum, ekki bara sumir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú grípur til aðgerða, sérstaklega sem
kosta einhver fjárútlát. Notaðu keppnis-
skapið til að reka þig áfram í útivistinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur átt í ákveðnum erfið-
leikum sem nú eru að baki. Makinn er eitt-
hvað afbrýðisamur, reyndu að finna út af
hverju það stafar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að gefa þér tíma til þess
að gaumgæfa fjármálin, þótt ekki væri
nema til þess að tryggja að engar misfellur
séu fyrir hendi. Ný sambönd verkja spennu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reynið að fegra í kringum ykkur því
þægilegt umhverfi hvetur til betri vinnu-
bragða og góðra afkasta.
varð formaður félagsins 2010. Báran
stéttarfélag er félag verkafólks í
mörgum starfsgreinum og nær fé-
lagssvæðið yfir Árnessýslu utan Ölf-
uss og eru félagsmenn tæplega 4.000
talsins. Skrifstofa Bárunnar er á
Selfossi.
„Báran er öflugt og vaxandi stétt-
arfélag. Ég hugsaði mig ekkert um
þegar ég var beðin um að bjóða mig
fram til formanns heldur sagði ég
strax já og hef ekkert séð eftir því.
Þetta er rosalega skemmtilegt, ögr-
andi og fjölbreytt starf. Ég gerði
mér ekki grein fyrir hvað það er
viðamikið en það er bara skemmti-
legra fyrir vikið. Það er alltaf eitt-
hvað nýtt að gerast og allt nýtt
finnst mér spennandi. Verkefnin eru
mörg, vinnan við kjarasamninga
tekur mikinn tíma og er stór partur
af verkefnum stéttarfélaganna.
Maður kynnist mörgum og fólk sem
starfar í verkalýðshreyfingunni er
almennt gott fólk.“
H
alldóra Sigríður
Sveinsdóttir er fædd
14. apríl 1960 í
Reykjavík en ólst upp
í Þorlákshöfn. „Það
var gott að alast upp í Þorlákshöfn,“
segir Halldóra. „Þar var mikil vinna
og lífsbaráttan nokkuð hörð á þess-
um tíma. Samfélagið var að byggjast
upp með duglegu, áræðnu og ósér-
hlífnu fólki. Við krakkarnir vorum
mikið á ferðinni þar sem eitthvert líf
var, í bátunum, fiskhúsunum og
fengum að vinna með fólkinu þegar
við gátum staðið í lappirnar. Við
byrjuðum að vinna strax eftir skóla
12 ára.
Ég var aldrei send í sveit. Það
vantaði í uppeldið hjá mér en mað-
urinn minn er úr sveit svo ég náði
mér í sveitastrák í staðinn. Ég fór
samt í heyskap í Selvogi en þar átti
móðuramma mín kot þar sem hún
var á sumrin.“ Halldóra hefur alltaf
búið í Þorlákshöfn fyrir utan smá-
tíma í Reykjavík þegar hún var í
námi. „Ég hef aldrei viljað búa ann-
ars staðar en í Þorlákshöfn.“
Halldóra gekk í Barna- og ungl-
ingaskóla Þorlákshafnar, Héraðs-
skólann í Skógum, Verzlunarskóla
Íslands, hún hefur stundað nám við
Háskóla Íslands og Akureyri auk
ótal námskeiða af ýmsum toga.
Öflugt stéttarfélag
Halldóra hefur unnið við fisk-
vinnslu, verslunarstörf og skrif-
stofustörf. Hún vann hjá Glettingi
hf. í Þorlákshöfn bæði við fisk-
vinnslu og skrifstofustörf, reiknaði
út laun sjómanna á daginn og gerði
að fiskinum þeirra á kvöldin og um
helgar. „Á þeim árum voru allar
hendur vel þegnar og störfuðu um
250-300 manns hjá fyrirtækinu bæði
á sjó og í landi.“ Halldóra stofnaði
ásamt vinkonu sinni verslunina
Kerlingakot í Þorlákshöfn. „Þar
voru haldin námskeið og höndlað
með ýmsar gagnlegar og ógagnlegar
vörur á árunum 1995-2002. Heim-
ilisleg verslun þar sem hægt var að
hitta fólk og spá í allt það sem skipti
máli í samfélaginu.“
Halldóra byrjaði að vinna hjá Bár-
unni, stéttarfélagi síðla árs 2002 og
Halldóra situr í framkvæmda-
stjórn Starfsgreinasambands Ís-
lands, miðstjórn ASÍ auk ýmissa
nefnda og ráða sem tengjast verka-
lýðshreyfingunni. Halldóra hefur
setið í skólanefnd og félagsmála-
nefnd í Ölfusi.
Ósnortnir staðir í náttúrunni
Áhugamál Halldóru eru að stórum
hluta allt sem tengist vinnandi fólki,
pólitík, sakamálasögur og göngu-
ferðir. „Íslensk náttúra er eitthvað
það stórkostlegasta sem hægt er að
leyfa sér að skoða og njóta. Ósnortn-
ir staðir eru eitthvað það albesta
sem ég veit. Móðir mín var alin upp í
Selvogi og togar sá staður alltaf í
mig og þeir staðir sem friður og ró
ríkir og hægt er að njóta fugla, sela
og sjávar. Ein besta ferðin, hreint
ógleymanleg, sem við hjónin höfum
farið í er norður á Strandir síðast-
liðið sumar í fimm daga ferð í 4-10
stiga hita.“
Halldóra S. Sveinsdóttir, formaður Bárunnar, stéttarfélags – 60 ára
Stórfjölskyldan Halldóra og Hörður á heimili sínu í Þorlákshöfn fyrir stuttu sásamt dætrum sínum, tengdabörnum
og barnabörnum. Á myndina vantar Kristin Hlífar.
Ögrandi og fjölbreytilegt starf
Í Djúpuvík Halldóra í sínum týpísku
gönguferðum meðfram sjónum.
30 ára Þorgeir er
Vestmanneyingur,
fæddur þar og upp-
alinn. Hann er háseti
á Herjólfi.
Maki: Elín Inga Hall-
dórsdóttir, f. 1990,
verslunarstjóri
Icewear í Eyjum.
Dóttir: Hildur Þorgeirsdóttir, f. 2019.
Foreldrar: Anna Davíðsdóttir, f. 1955,
sjúkraliði á Heilbrigðisstofnun Suður-
lands í Vestmannaeyjum, og Friðgeir
Þorgeirsson, f. 1956, sundlaugar-
vörður. Þau eru búsett í Vestmanna-
eyjum.
Þorgeir Þór
Friðgeirsson
Til hamingju með daginn
Vestmannaeyjar Hildur Þorgeirs-
dóttir fæddist 24. ágúst 2019. Hún vó
3.650 g og var 50 cm löng. Foreldrar
hennar eru Þorgeir Þór Friðgeirsson
og Elín Inga Halldórsdóttir.
Nýr borgari