Morgunblaðið - 14.04.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 14.04.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2020 Vegna ástandsins sem ríkir hefurverið rætt um að Alþingi taki ekki fyrir önnur mál en þau sem snúa að því að bregðast við kórónuveiru- faraldrinum. Önn- ur mál megi bíða.    Þetta er skiljanlegt. Þegar bráða-vanda ber að höndum þarf að setja orkuna í að leysa hann en ekki það sem má bíða.    Svo eru til mál sem jafnvel getaunnið gegn því markmiði að koma hjólum atvinnulífsins aftur á fulla ferð og þau ættu væntanlega enn frekar en önnur að fá að bíða þar til sér út úr augum í fárinu.    Eitt mál sem ætla má að falli í síð-astnefnda hópinn skaut upp kollinum á vef þingsins á laugardag. Þar er á ferðinni frumvarp umhverf- isráðherra um breytingu á lögum um loftslagsmál.    Frumvarpið snýr að innleiðingutveggja reglugerða frá ESB vegna markmiða um losun frá 2021 til 2030 og snýr að landnotkun, iðn- aði og flugsamgöngum svo nokkuð sé nefnt.    Nú þegar framleiðsla og sam-göngur hafa fallið eða riða til falls um alla Evrópu og víðar, þá hljóta að vakna spurningar um slíkt frumvarp. Til að mynda hljóta að vakna efasemdir um að ríki ESB hyggist láta slíkar reglur hefta end- urreisnina þegar faraldrinum lýkur. Telja íslenskir ráðamenn það lík- legt?    Ætla Íslendingar að reisa at-vinnulífi sínu nýjar hömlur í miðjum faraldri? Er þetta tíminn fyrir hertar reglur? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hátíðarhöld og samkomur á höfuð- borgarsvæðinu verða blásnar af sumardaginn fyrsta. Dagurinn verð- ur hinn 23. apríl en byrjað verður að slaka á aðgerðum vegna COVID-19 hinn 4. maí. Sigurgeir Bjartur Þórisson, erind- reki hjá Bandalagi íslenskra skáta, segir að skátafélögin undirbúi nú óhefðbundna dagskrá sem kæmi í stað hinna almennu hátíðarhalda. Hátíðarhöldin verði með öllu ein- staklingsmiðaðri í ár. Hátíðarhöldin hafa verið blásin af í Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Akranesi, Mosfellsbæ og Akureyri í það minnsta. „Þetta er búið að vera mikil áskor- un og það er mikil óvissa með við- burði í sumar. Við viljum taka þátt í að sýna ábyrgð og við kvörtum ekki. Það er ekki við neinn að sakast að þessi ákvörðun hafi verið tekin, hún er skynsamleg,“ sagði Sigurgeir. Hugmyndir um breytt hátíðarhöld eru í gerjun hjá skátunum, svo sem ratleiki og annað sem tryggir að reglunni um 2 metra á milli manna sé fylgt. Hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn verða að hluta til rafræn og enn er óljóst hvort þjóðhátíð fari fram í Eyjum í ágúst næstkomandi. veronika@mbl.is Hátíðarhöld blásin af víðast hvar  Sumardeginum fyrsta verður fagnað á óhefðbundinn hátt í samkomubanni Ljósmynd/Árni Sæberg Hátíð Sumardagurinn fyrsti verður ekki með hefðbundnum hætti í ár. Í Reykjavíkurprófastsdæmi tóku prestar 1.726 viðtöl á fyrstu þremur vikum samkomubannsins. Það eru að meðaltali 82 viðtöl á dag. Pétur Mark- an, samskiptastjóri Biskupsstofu, segir að fólk leitist eftir sálrænum stuðningi í auknum mæli á þessum tímum. Úrræðið varð til áður en kór- ónuveirufaraldurinn hófst og hefur staðið til boða í um tvö ár. Nýtingin hefur sprungið út á undanförnum vik- um. „Þá getur fólk farið inn á net- kirkja.is og þar er prestur á vakt,“ sagði Pétur. Á síðunni er hægt að sjá hvaða prestur er á vakt hverju sinni. Útvarpsmessum er streymt frá Laugarneskirkju, Vídalínskirkju og Lindakirkju. Þær verða áfram út samkomubannið að sögn Péturs. Þá hafa helgistundir, sem er streymt beint á Vísi fengið góðar viðtökur. „Helgistundirnar eru mun vinsælli en við gerðum okkur grein fyrir,“ sagði hann, en sunnudagaskóla hefur einnig verið streymt á netinu með góðum árangri. „Með þessu kemur svolítið í ljós að kirkjan er ákveðin kjölfesta í sál- gæslu þjóðarinnar. Við tökum þess- um hlutum sem gefnum en þeir eru mikilvægir og það sannar sig á þess- um tímum. Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur við Laugarneskirkju, sá um helgi- stund sem streymt var yfir hátíð- arnar. „Það gekk rosalega vel, það var mjög óvenjuleg og við fengum mjög jákvæð viðbrögð frá kollegum og þeim sem horfa á,“ segir Davíð og hélt áfram: „Þetta ástand hefur neytt presta í að læra á og tileinka sér nýja tækni og það hefur margt rosalega gott komið út úr þessu,“ sagði Davíð. 82 prestaviðtöl á dag í samkomubanni  Margir höfðu samband við presta á fyrstu þremur vikum samkomubanns Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rafrænt Helgihald hefur farið fram með óvenjulegum hætti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.