Morgunblaðið - 07.04.2020, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
S
igríður Jónsdóttir, fjármála-
stjóri Slippsins á Akureyri,
hefur séð tímana tvenna á
þeim tíma sem hún hefur
komið að starfseminni, en hún hóf
störf hjá Slippstöðinni árið 1998 og
störfuðu þá um 150 hjá því fyrirtæki.
Hún hafði aðeins starfað hjá fyrir-
tækinu í stuttan tíma þegar það undir
lok ársins 1999 sameinaðist Stál-
smiðjunni og Kælismiðjunni frosti
undir nafninu Stáltak, sem varð við
sameininguna stærsta málmiðnaðar-
fyrirtæki landsins.
Hið sameinaða félag var með um
tveggja milljarða veltu árið 2000 og
tæplega 300 starfsmenn, en það leið
ekki langur tími þar til fór að bera á
erfiðum rekstri. Í september 2001
óskaði Stáltak eftir greiðslustöðvun
en þá hafði starfsmönnum fækkað í
180 og nam tap á fyrsta árshelmingi
167 milljónum króna. Það var síðan í
mars 2002 sem atkvæðismenn sam-
þykktu nauðungasamninga.
„Þetta stóð bara yfir í um tvö ár. Þá
var hver framkvæmdastjórinn á fæt-
ur öðrum sem rann hér í gegn. Síðan
var þessu aftur sundrað og þá varð
þetta aftur Slippstöðin og hvert fyrir-
tæki aftur starfandi fyrir sig,“ segir
Sigríður.
Var þá rekstur Slippstöðvarinnar
hafinn á ný undir eigin merkjum en
það það átti ekki eftir að endast lengi
og fór Slippstöðin í þrot árið 2005. „Þá
vorum við búin að vera í verkefnum í
kringum Kárahnjúkavirkjun sem fór
dálítið illa með okkur,“ segir Sigríður.
En upphaf erfiðleika Slippstöðvar-
innar mátti rekja til ýmissa fjárhags-
legra vandamála sem fyrirtækið lenti
í þegar það vann við samsetningu á
þrýstipípum í aðfallsgöngum Kára-
hnjúkavirkjunar. Slippstöðin var und-
irverktaki hins þýska fyrirtækis DSB
Stalbau sem gerði kröfu í þrotabú
Slippstöðvarinnar, þó að hún hafi ekki
verið tekin fyrir þegar búið var gert
upp.
Mikið verk að
endurreisa starfsemina
„Í kjölfarið var fyrirtækið endurreist
af einstaklingum og fyrirtækjum sem
voru tengd Slippstöðinni og þá varð til
Slippurinn Akureyri útskýrir fjár-
málastjórinn. Það fyrirtæki einbeitti
sér að kjarnastarfsemi Slippstöðvar-
innar sem fólst í viðhaldi og endur-
bótum á skipum og bátum og síðan
ýmissi vinnu fyrir stóriðjur, virkjanir
og fleiri landverkefni. „Þá var reynt
að hafa þetta eins lítið og hægt var,
byrjuðum um 40 starfsmenn sem allir
höfðu unnið hjá Slippstöðinni og
reyndum að vera eins fá og við mögu-
lega gátum. Síðan hefur þetta bara
vaxið og við erum komin í sama fjölda
og þegar ég byrjaði eða í kringum
150.“
Spurð hvort ekki hafi verið mikið
verk að endurreis starfsemina í kjöl-
far falls Slippstöðvarinnar, svarar
Sigríður því játandi. „Tveir fyrrver-
andi starfsmenn Slippstöðvarinnar
sem höfðu mikla reynslu reistu þetta
við ásamt fyrirtækjum á svæðinu og
fengu í lið með sér vana og góða
starfsmenn sem allir höfðu starfað í
Slippstöðinni áður og sumir hverjir
jafnvel alla sína starfsævi.
Mörg verkefni að undanförnu
Hún segir það hafa skipt Akureyringa
miklu máli að starfseminni hafi verið
komið á laggirnar á nýjan leik. „Þetta
eru mest Akureyringar [sem starfa
hjá fyrirtækinu] og margir sem hafa
átt mjög langa starfsævi hér, þetta
hafa verið mjög tryggir starfsmenn í
gegnum tíðian. Þó það sé orðin ein-
hver breyting á starfsaldri, og ég finn
að það er að verða ákveðin kynslóða-
skipti.“ Eðli verkefnanna hafa einn-
ig breyst með tímanum að sögn Sig-
ríðar. „Þetta voru mun fleiri minni
bátar, meðal annars fleiri trébátar
sem komu á vorin í klössun, fastir
viðskiptavinir. Nú eru þetta fleiri
plastbátar að sinna þessum veiðum
og til okkar koma þá stærri skip og
reyndar hvalaskoðunarbátarnir
líka. Einnig erum við að hanna,
smíða og setja upp vinnsludekk fyr-
ir útgerðarfyrirtæki úti um allan
heim, það er orðinn stór hluti af
Slippnum og hefur vöxturinn verið
mjög mikill á undaförnum árum.
Síðan var DNG keypt árið 2007 og
framleiðum við nú færavindur
undir merkjum þeirra.“
Mörg verkefni er snúa að því að
koma fyrir vinnslulínum í skipum
hafa verið undanfarið hjá Slippnum
Akureyri og hefur fyrirtækið meðal
annars þjónustað ný skip Bergs-
Hugins, dótturfélags Síldarvinnsl-
unnar, Vestmannaey VE og Bergey
VE. Auk þess var unnið að millidekki
Harðbaks EA, nýs skips Útgerðar-
félags Akureyringa. Það eru þó ekki
bara innlend skip sem sækja þjón-
ustu Slippsins að sögn Sigríðar sem
bendir á að einnigkoma verkefni frá
útlöndum, meðal annars frá Græn-
landi, Rússlandi, Kanada og Þýska-
landi.
„Þetta fyrirtæki hefur alltaf gengið
vel, að undanteknu einu eða tveimur
árum. […] Þetta er stærsti og best
búni slippurinn á landinu og sú þjón-
usta sem við veitum er fyrsta flokks,“
segir hún.
Fjölga þurfi iðnmenntuðum
á vinnumarkaði
Sigríður segir aðalmáli skipta að hafa
trygga og góða starfsmenn með
mikla reynslu og að fyrirtækið hafi
verið lánsamt að búa yfir slíkum ein-
staklingum. Hins vegar er viðvarandi
vandi að skortur sé á iðnmenntuðu
fólki í landinu. „Það hefur verið þann-
ig ástandið að það er sjaldgæft að það
komi iðnmenntaður einstaklingur til
þess að biðja um vinnu. Það er miklu
frekar þannig að það þurfi að leita að
þeim, þannig að það er mikilvægt að
halda í góða starfsmenn.“
Þá hefur Slippurinn unnið mark-
visst að því að fjölga iðnmenntuðu
fólki, bætir hún við. „Við erum með
nema á hverju ári hérna af véltækni-
sviði Verkmenntaskólans á Akureyri.
Hjálpum þannig til við það að fjölga
þeim. Við erum alltaf með þó nokkuð
marga nema, milli tíu og tuttugu.
Greiðum fyrir þá sveinsprófið og með
þessu getum við styrkt stöðu okkar
með því að fá fleiri iðnaðarmenn og
um leið sveitarfélagið og Eyjafjarðar-
svæðið. Það skiptir okkur miklu máli
að hafa öfluga iðnaðarmenn.“
Hvetur fjármálastjórinn fleiri
fyrirtæki til þess að gera sitt ýtrasta
til þess að fjölga fólki á vinnumarkaði
með iðnmenntun, en segir að meira
þurfi til. „Það er alveg greinilegt að
það þarf að fara að gera eitthvað til
þess að styðja við iðnmenntun. Það
er alltaf verið að ræða um það en það
þarf virkilega að fara að grípa til að-
gerða sem fjölga iðnmenntuðu fólki.“
Starfsmennirnir skipta mestu máli
Fyrirrennarar Slippsins á
Akureyri fóru í gegnum
mikinn ólgusjó áður en
starfsemin var endur-
reist árið 2005 á grunni
Slippstöðvarinnar og
geta Akureyringar nú
státað af stærsta og best
búna slipp á landinu.
Sigríður Jónsdóttir, fjármálastjóri Slippsins
Akureyri, segir það hafa skipt Akureyringa
miklu máli að starfseminni var komið á lagg-
irnar eftir fall Slippstöðvarinnar.
Umfangsmikil starfsemi er viðhöfð
á athafnasvæði Slippsins Akureyri.
Vinna við stærri skip hefur sett
svip á starfsemina.