Morgunblaðið - 07.04.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 07.04.2020, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is V ið erum alþjóðlegt fyrirtæki og erum að veita heildar- lausnir fyrir fiskiðnaðinn sem er ótrúlega spennandi iðnaður sem er sífellt að færast í átt að meiri sjálfvirknivæðingu. Ég sé fyrir mér að við munum stíga hröð skref núna eftir að fyrstu ró- bótalausnirnar eru komnar í góða keyrslu hjá mörgum framleið- endum. Maður sér alltaf hvernig markaðurinn þróast, þetta fer hægt af stað en svo allt í einu tek- ur hann kipp,“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri fiskiðnaðarsviðs hjá Marel. Hún segir að eftir að FleXicut- lausn Marel kom á markað fyrir um fimm árum hafi farið af stað hröð þróun í sérhæfðum skurði eft- ir pöntunum. Jafnframt eykst sí- fellt eftirspurn eftir auknum rekj- anleika afurða sem tryggja aukin gæði. Hvað gæði varðar telur Guð- björg hvítfiskinn eiga eftir að marka sér skýrari spor sem há- gæðavara. „Þetta er náttúrlega dásamlegt hráefni,“ segir hún og vísar til þess hvernig laxinn hefur orðið alþjóðlega viðurkennd há- gæðavara. Þá er ástandið sem skapast hef- ur vegna útbreiðslu kórónuveir- unnar líklegt til þess að ýta enn frekar undir þessa þróun að mati Guðbjargar. „Þeir sem þegar eru búnir að stíga með tærnar út í þetta sjá hvaða tækifæri felast í ró- bótunum og hugbúnaðinum munu vilja taka þetta áfram.“ Kallar á sveigjanleika Ljóst er að þeir aðilar sem hafa lagt áherslu á vinnslu ferskra af- urða til útflutnings eru að ganga í gegnum erfiðleika, en þær afurðir hafa af mikið ratað í veitingageir- ann og hafa aðgerðir stjórnvalda í Evrópu og Bandaríkjunum leitt til þess að veitingahús og hótel hafa lokað dyrum. Auk þess hafa stórar verslunarkeðjur í Bretlandi eins og Tesco og Sainsbury‘s í Bretlandi lokað fiskborðum sínum og hefur uppboðsmarkaði fyrir fisk í Grimsby einnig verið einnig verið lokað. Guðbjörg segir þessa þróun lík- lega til þess að hvetja fyrirtæki, sem hafa einblínt á framleiðslu ferskra afurða, til þess að sækjast eftir auknum sveigjanleika sem Ástandið til þess fallið að auka áherslur vinnslna á sveigjanleika Nýr framkvæmdastjóri fiskiðnaðar hjá Marel telur sjálfvirknivæðinguna fá byr undir báða vængi á komandi misserum. Samhliða eru mikil tækifæri á þeim mörkuðum sem ekki eru komnir á það stig, að sögn hennar. Morgunblaðið/Eggert „Nýsköpunarumhverfið á Íslandi er að verða mjög öflugt og klárlega þarf að styðja við frekari nýsköpun, það græða allir á aukinni þekkingu.“ G U N N A R JÚ L A R T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.