Hvöt - 01.03.1954, Side 4
2
H V O T
Árni Stefánsson, form. S.B.S.:
ÁVARP
Öldum saman hefur mannkynið velt
því fyrir sér, hver væri tilgangur lífsins.
Margar kenningar hafa komið fram um
það, en engin þeirra hefur þó hlotið ah
menna viðurkenningu. Flestir eru þó
sammála um, að líf mannsins eigi að vera
barátta til að ná einhverju æðra mark-
miði, maðurinn eigi stöðugt að keppa að
meiri heilbrigði og andlegum þroska, því
að kyrrstaða er sama og afturför. I vext-
inum, framþróuninni á maðurinn að
finna hina sönnu hamingju. Þetta er hið
jákvæða viðhorf til lífsins, sjónarmið
bj artsýnismannsins.
Hið neikvæða viðhorf er, að lífið sé í
rauninni tilgangs- og gildislaust og til að
losna við þjáningar þessa táradals verði
maðurinn að deyða lífslöngun sína.
Stefna bindindismanna byggist á hinu
jákvæða viðhorfi, trúnni á hæfileika
mannsins og gildi lífsins. Maðurinn á að
geta notið gleði og hamingju án aðstoðar
eiturlyfja.
Þegar ungt fólk kemur af skemmti-
stöðum í Reykjavík á laugardags- og
sunnudagskvöldum er mikill hluti þess
að meira eða minna leyti undir áhrifum
áfengis. Það bendir til þess að sitthvað
sé athugavert við skemmtanalíf og upp-
eldi æskunnar. Heilbrigð, bjartsýn æska
á ekki að þurfa að leita á náðir Bakkusar
til að geta skemmt sér. Drykkjuskapur er
fylgja bölsýni og tilgangsleysis. Glöggt
dæmi þess er drykkjuskapur sá og svall,
. Arni
Stefánss.
sem jafnan fylgir úrkynjuðum, hnignandi
yfirstéttum. Þegar lífið hefur vegna at-
hafnaleysis misst gildi sitt er flúið á vald
sjálfsblekkingar og eiturlyfjaneyzlu.
Skylt þessu er það, þegar ungir menn
þykjast þurfa að drekka í sig kjark!
En hér koma fleiri atriði til greina.
Athyglisverð er reynsla Breta. I fyrri
heimsstyrjöldinni gerði Lloyd George,
forsætisráðherra sér ljóst, að þjóðin ætti um
tvo kosti að velja, sigur eða vín — og
ósigur. Bretar völdu sigurinn og drykkja
minnkaði stórlega. Eftir styrjöldina sáu
bruggarar að við svo búið mátti ekki
standa. Þeir voru hættir að græða og voru
að fara á höfuðið með það fjármagn, sem
þeir höfðu bundið í vínframleiðslunni.
Þá hófu þeir ofsalega auglýsingastarfsemi
— með tilætluðum árangri. I Frakklandi
hafa vínkóngarnir í skjóli fjármagns síns
gífurlegt vald yfir blöðum og öðrum
áróðurstækjum og mikil áhrif á stjórn
landsins. Amerísk blöð vitna um hið
sama, hvernig áfengi og tóbaki er haldið
að fólki aðeins vegna ágóðans, sem fram-
leiðslufyrirtækin fá.