Hvöt - 01.03.1954, Síða 8

Hvöt - 01.03.1954, Síða 8
6 H V O T banni var mikill. Það var engin furða, þótt illa færi. 2) Reist verði áfengishæli og það strax! Þetta er mikið mannúðarmál. Það er einn mesti glæpur stjórnarvaldanna að láta þessa auðnuleysingja, sem hafa orðið svona vegna áfengisins, velkjast bjargarlausa á götunni. Það þarf að lækna þessa sjúkl- inga og gera þá að nýtum borgurum. 2. Það er þróttmeira en hið eldra. En það á við meiri erfiðlekia að stríða. Bandarísk ómenning sækir allsstaðar að. þeir eru margir, sem hafa verið kunningjar mínir og hafa spillzt af ómerkilegum kvikmynd- um og yfirleitt bandarískum hugsunar- hætti. Og ofan á allt kemur svo hið bandaríska hernám. Helzta hagsmunamál íslenzkrar æsku er því að bandaríski her- inn fari úr landi! Og einnig sín eigin bygging, þar sem hún getur eytt tómstundum sínum í æskulýðshöll. 3. Ef einhver ætlar að halda öðrum í sem mestri fjarlægð frá sér, er sjálfsagt að þéra. Einnig í sérstökum viðskiptum, þegar viðskiptamenn þekkjast ekki. Sjálf- sagt er og að þéra ókunnugt, eldra fólk. Persónulegar skoðanir kennara eiga að ráða um hvort þérað sé í kennslustund- um. Hinsvegar tel ég þéranir milli kunn- ingja og þéranir í ýmsum öðrum tilfell- um auðvitað fjarstæðu. Að lokum skulum við hlýða á svör Ás- geir Sigurgeirssonar, Kennaraskólanum: 1. Eg tel að bezta úrlausnin á áfengis- vandamálinu sé að auka fræðslu almenn- ings, og þá helzt unga fólksins á skað- semi áfengis og tóbaks. Drykkjuskapur virðist vera að komast í tízku hjá fólki, (að maður tali nú ekki um reykingar) og meðan svo er háttað málum þýðir ekki Asgeir Sigurgeirssoti. að banna fólki að drekka, og bann myndi óhjákvæmilega hafa í för með sér gífur- legan kostnað, því að ekki þýðir að setja bann nema að sjá um að því verði ræki- lega framfylgt, og væri hætt við að bruggun og smygl myndi aukast til stórra muna, er erfitt væri við að fást. Það verður að fara dýpra og skera í meinsemdina sjálfa, sýna fólki fram á að vínneyzla er síður en svo eftirsóknarverð. „Hófdrykkjumaðurinn“ segir: „Gakk þú hinn gullna meðalveg" og vertu hvorki ofdrykkjumaður né fanatízkur bindindis- maður, heldur vertu svolítið „kammó“ og fáðu þér staup annað slagið með kunn- ingjum þínum, en reynslan sýnir að menn eru misjafnlega sterkir á svellinu, og fáir eru þeir, sem ganga meðalveginn en margir vilja hrasa út á braut ofdrykkju og óreglu, sem þeir eiga svo erfitt með að komast af aftur, ef þeir þá komast það nokkurn tímann. Það byrjar enginn að drekka í þeim tilgangi að verða drykkjumaður, heldur til þess að neyta þess í hófi, en flestir gá

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.