Hvöt - 01.03.1954, Síða 15

Hvöt - 01.03.1954, Síða 15
H V O T 13 unina, brjóstumkennilega útlits og með hina hættulegu flösku á milli handanna. Við höfum því miður alltof mörg dæmi um heimilisfeður, sem fara frá konu og börnum og jafnvel öldruðum foreldrum, út á hina varhugaverðu braut of- drykkjunnar. Þessir menn, sem allflestir hafa í upphafi hjúskapar heitið konum sínum hamingjusamri og bjartri framtíð, gefið þeim loforð um að vera þeim og börnum þeirra fyrirvinna um aldur og æfi, meta nú vínið meira en ástríki og heimilisyl. Hvernig geta feður sýnt börn- um sínum það fordæmi, að svíkja og fótumtroða sin fögru loforð, lagt í hættu, eða fyrirfarið algerlega, atvinnu sinni og heilsu, hinu eina sem fjölskylda þeirra getur treyst á sér til framdráttar. Þegar þessir ólánssömu menn, eftir langa fjar- veru, láta sjá sig hjá fjölskyldu sinni, sem ef til vill hefir ekkert af þeim frétt, dögum, og jafnvel vikum saman, en lifað í sífelld- um ótta og angist, hafa þeir glatað svo virðingu sinni og sæmd, að þeir láta sér sæma, með ofbeldi og ruddamennsku að spylla heimili sínu, brjóta það niður, sem þeir hafa með erfiði og fórnfýsi byggt á mörgum árum. En þegar svo er orðið ástatt, fylgir því miður oftast fleira í kjöl- farið. Eiginkonur þeirra og börn sem með angist og örvænting hafa horft á heimili sitt rústum lagt, fá einnig sinn hluta af bölinu. Það er sorgleg staðreynd, að konur hafa orðið, með börnum sínum ,að flýja heimili sín, bláar og bólgnar, með brotnar tennur og rifin föt, vegna ölæðis eigin- mannsins. Nú er ekki svo, að verið sé hér að segja nýjar fréttir. Nei, þetta vita allir og hafa löngu gert sér ljóst. En hvers vegna hefir þá ekki fyrr verið hafist handa, þessu fólki til hjálpar? Samband bindindisfélaga í skólum taldi sig hafa nægilega lengi beðið árangurslaust,. eftir slíkri hjálp og ákvað því að taka málið föstum tökum. Var því á þingi Sambandsins samþykkt til- laga, þessu ógæfusama fólki til aðstoðar. Tillaga þessi hafði meiri og skjótari áhrif, en við nokkru sinni höfðum þorað að vona. Nú er það einlæg von okkar, að æska þessa lands veiti okkur allt það liðsinni er hún má og láti sjá hvers hún er megnug. Islenzk æska, stjórnarvöld þessa lands hafa að lokum séð, að þau geta ekki virt vilja okkar að vettugi, leggjum því til hliðar öll smávægileg ágreiningsmál og stöndum einhuga saman að þessu máli. Sýnum að við erum kjarni þessa lands og arftakar, sem fylgjumst af áhuga með sérhverju þjóðfélagsmáli. Sýnum vilja okkar í verki og tökum virkan þátt í fjársöfnun innan skólanna, til byggingar hælis fyrir þetta ólánssama fólk. Hvetjið hina eldri einnig til sameiginlegra átaka. Örlygur Hálfdcmarson, Sam- vinnuskólanum: Þegar Pálmi Hannesson rektor tók við stjórn Menntaskólans fyrir tæpum aldar- fjórðungi, beitti hann sér fyrir því ný- mæli, að nemendur í framhaldsskólum landsins hefðu með sér samtök um bind- indi í skólum. Var þá þegar stofnsett fjöl- mennt bindindisfélag í Menntaskólanum. Þaðan breiddist hreyfingin um skólabind- indi um allt land og bindindisfélög risu upp í flestum ungmennaskólum landsins. Síðan mynduðu þau samband, sem starfað hefur um langa stund. Þetta samband hefur haldið þing árlega, og var hið síð-

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.