Hvöt - 01.03.1954, Síða 18

Hvöt - 01.03.1954, Síða 18
16 H V O T Veturinn 1952 var efnt til sam- keppni meðal æskufólks í skólum landsins um beztu ritgerð er fjall- aði um dæmisögu Jesú Krists. Mikil þátttaka var í samkeppninni úr hinum ýmsu skólum. Bezta rit- gerðin reyndist vera eftir Magnús Jónsson, sem þá dvaldi við nám í Iðnskóla Reykjavíkur, og hlaut hann verðlaunin sem voru ferð til Miðj arðarhaf slandanna. Hér fer á eftir brot úr ferðasögu Magnúsar. Sífellt er það að verða algengara með þegnum þjóðfélagsins að sigla, í merking- unni að fara sjóveg til útlanda. Fyrir 20 árum eða svo, hefði ekki þurft að skrifa orðið „sjóveg“ í undanfarandi setningu, því að sem kunnugt er, kom þá ekki önnur ferðatilhögun til greina í þessu sambandi. Aður fyrr þótti það svo mikill frami að vera „sigldur" að sumir álíta að orðið „lítilsigldur‘ sé einskonar mótvægi þess. Nú er þetta gjörbreytt, en hvað sem því líður skrifast hér lítilsháttar rabb um för skpisins Arnarfell til Italíu, síðsumars árið 1952. Magnús Jónsson, Kennaraskólanum: TIL ÍTALÍU Eftir 714 sólarhrings ferð í ágætu veðri var komið á fyrsta áningarstaðinn; Oran, sem er 400.000 íbúa borg á yfirráðasvæði Frakka í Norður-Afríku. Þetta var sunnu- daginn 31. ágúst, og þótt margt í lífs- venjum Oran-búa sé frábrugðið því sem við eigum að venjast, þá eru bankarnir lokaðir á sunnudögum, þar eins og hér. Við gátum því ekkert verzlað uppi í borginni, því að enginn vildi þar annað en franskan gjaldmiðil. Prangararnir við skipshlið þáðu hinsvegar bæði pund og dollara, en við farþegarnir sex, gáfum okkur lítinn tíma til að sinna hinu hefð- bundna prútti, sem ríkir í þeim við- skiptum, heldur vildum skoða borgina. Arabarnir — tíundi hver maður eða svo — settu annarlegan svip á borgarlífið. Karlmennirnir voru í víðum hvítum skikkjum með vefjarhött og sumir með barðastóran stráhatt þar ofan á, en kven- fólkið sveipað einhverju hvítu hýjalíni frá toppi til táar, svo að aðeins sá í annað augað. Arabarnir búa annars aðallega í sérstökum borgarhverfum. Nýstárlegt var að sjá hús algjörlega án glers í gluggun- um, en með þéttum trérimlum þess í stað. Þótt svo ætti að heita, að verzlun, t. d. matvörubúð, væri undir þaki, fór mikið af viðskiptunum fram úti. Viðstaðan í Oran varð ekki löng — þar var aðeins verið að taka olíu — og

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.