Hvöt - 01.03.1954, Síða 19

Hvöt - 01.03.1954, Síða 19
H V O T 17 um hádegi samdægurs var aftur haldið út á hið bláa Miðjarðarhaf, þar sem flug- fiskar þutu öðru hverju útundan skipinu. Næsti áfangastaður var sú fræga borg Napoli, sem er að vestanverðu á Italíu- skaganum, en þangað var komið um há- degisbilið næsta miðvikudag. Löngum hefur Napoli verið rómuð fyrir fegurð, sbr. setninguna „Eg vil sjá Napoli og deyja síðan‘, eða eitthvað því um líkt. Ekki er mér samt kunnugt um sannleiks- gildi frásagnarinnar um reykvíska heim- ilisföðurinn sem átti að hafa farið með alla fjölskyldu sína til Napoli, vegna þess að tengdamóðir hans sagði þetta svo oft. Við skoðuðum borgina lítið, vegna þess að fyrri daginn sem skipið var þar fórum við farþegarnir og sumir af hinum 24 skipsmönnum til Pompej, en daginn eftir út í Capri. Það er einkennileg tilfinning því samfara að slíta skósólunum á sömu gangstéttarhellunum og Rómverjar gengu á fyrir 2000 árum, en það var sem kunnugt er árið 79 e. Kr. sem ósköpin dundu yfir þessa borg. Við gos úr Vesúvíusi huldist hún ösku og vikri ásamt tveim öðrum borgum, og lágu þær síðan gleymdar og grafnar öldum saman. Ibúar Pompej- borgar voru 25—30.000, og var hún mjög skipulega byggð, sem ferningur, með tveim aðalgötum í kross. Fæst húsanna eru með þaki, en veggirnir standa, hvert sem litið er. Fangaflutningur hefur ekki verið mikill kostnaðarliður, því að á miðju gólfi í dómsalnum eru grindur, sem stundum var kippt í burtu og dæmdum föngum hrint ofan í gluggalaust gímald þar undir. Við eitt af hinum fjórum aðal borgarhliðum er safn þar sem geymdir eru lausir munir sem komið hafa í leit- irnar við uppgröftinn, sem staðið hefur yfir öðru hverju í síðastliðin 100 ár. Lík þeirra sem létu líf sitt við þennan hrylli- lega atburð, eru vitanlega orðin að engu fyrir langa löngu, en eftir varð í vikrinum holrúm sem hafði lögun hins framliðna líkama. Þegar komið var niður á þessi holrúm var hellt í þau gibsi sem svo harðnaði, og hvíla nú þessir gibs-líkamar í glerkössum í safninu. Eins og áður er sagt, skyldi farið til Capri daginn eftir, en hún er við Napoli- flóann, tiltölulega skammt frá landi. Við bárumst fyrirhafnarlaust að Bláa hellin- um með ferðamannastraumnum - sem þangað beinist svo að segja óslitið. Sjór er í hellinum, og er aðeins hægt að kom- ast þar inn á litlum fleytum með því að beygja sig, en hellirinn hækkar þegar inn er komið. Eins og nafnið bendir til, slær mjög einkennilegum bláum lit á hellis- hvelfinguna en þó sérstaklega á sjóinn þarna inni. Akstursferðin í opna 7-manna bílnum upp að híbýlunum þar sem Farúk kon- ungur dvaldist þá, er ógleymanleg. Eyjan er hálend og vegurinn þarna upp í miklum krákustígum, en laufkrónur trjánna sumsstaðar saman yfir vegin- um. Helztu atvinnugreinar eyjarskeggja virðast vera minjagripasala og hótel- rekstur. Gaman hefði verið að fara næsta áfanga landleiðis um Róm, en úr því varð þó ekki af ýmsum ástæðum, heldur héldum við öll sem leið liggur — þ. e. sjóleiðin — til Livornó sem er norðan til á skaganum sömu megin og Napoli. Þar dvöldum við í þrjá daga og eyddum mestum pening- um. ítalska líran er ekki mikið; 1000 lírur jafngilda kr. 26,12. Livorni telur um 140.000 íbúa, eða nokkru færri en alla íslendinga. Þaðan skruppu margir til Písa, sem er þar skammt frá, og þarf þá

x

Hvöt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.