Hvöt - 01.03.1954, Qupperneq 21

Hvöt - 01.03.1954, Qupperneq 21
H V O T 19 Hörður Zophaníasson, Kennaraskólanum: Bindindisfrœðsla í skólum Það ber ekki ósjaldan við í þjóðfélagi voru, að áfengisvandamálið beri á góma, og þá oft um leið tóbakstízkuna og vanda- mál hennar. Og þá beinast umræðurnar gjarnan að því, hvað skólunum beri að gera og hvað þeir gætu gert. Eg ætla nú í stuttu máli að gera grein fyrir skoðun minni í þessum efnum. Ég held, að það sé óhætt að fullyrða, að allir, hvort heldur þeir eru bindindis- menn eða áfengisneytendur viðurkenni bæði fyrir sjálfum sér og öðrum áfengis- vandamálið, áfengisbölið. En þá greinir á um leiðir til úrbóta. Sumir vilja bann, aðrir vilja kenna mönnum hófdrykkju, og enn aðrir vilja eitthvað þar á milli. Enginn þessara flokka er nægilega sterkur til þess að koma sínu fram. Og hvað er þá hægt að gera? Er þá sennilegt, að hægt sé að finna þá leið í skólum landsins, sem líklegt sé, að allir aðilar sætti sig við. Hún er þessi: Skólarnir taki upp fræðslu um áhrif og afleiðingar áfengisneyzlunnar, hvað menn telji sig vinna við það að hafa áfengi um hönd, og hvað þeir telji sig tapa á því. Arangur og niðurstaða vísindalegra rann- sókna um þetta efni, heima og erlendis, verði sern bezt kynnt elztu börnunum í barnaskólunum og öllum börnum í ung- lingaskólunum. Lögreglu- og heilbrigðis- skýrslur varðandi afbrot og sjúkdóma af völdum áfengis séu kynntar börnunum. Tilraunir um þessi efni verði gerðar á hverjum stað eftir því, sem við verður komið. Sömu tökum ætti að taka tóbaksnautn- ina. Ég álít, að ekki veiti af einum tíma í viku til þessarar kennslu. En eigi slík kennsla að koma að fullu gagni, verður að tryggja það, að kennararnir séu vanda þessum vaxnir. Þess vegna yrði að byrja á því að halda almennt námskeið fyrir kennara um áfengismál, þar sem beztu vísindamenn og aðrir góðkunnir menn, sem hafa sérstaklega kynnt sér þetta mál, yrðu leiðbeinendur. Síðan þyrfti Kennara- skólinn að vera ábyrgur fyrir því, að ekki brautskráðust aðrir úr skólanum en þeir, sem hafa viðhlítandi þekkingu í þessum málum. Þetta hygg ég, að yrði stórt spor í rétta átt í þessum málum, en vafalaust má gera margt fleira og viturlegra. Það er t. d. erfitt og óleyst viðfangsefni skólanna að vinna bug á ríkri minnimáttarkennd ýmissa nemenda, sem veldur því oft og tíðum, að þeir fyrr eða síðar verða of- drykkjunni að bráð. Það er ótal margt, sem bæta má í þjóð- félagi voru, og það er fyrst og fremst æskunnar á hverjum tíma að leita, — og finna nýjar og betri lausnir á vandamál- unum. Það verður því aðeins gert, að hún kveðji sér hljóðs í ræðu og riti og setji þar fram vilja sinn og hugsanir. Margar hendur vinna létt verk, og nú, strax í dag, skulum við vondjörf hefja merkið og stefna markviss og hiklaus í áttina til lausnar vandamálanna. Lengi lifi leitandi, hugsandi og heil- brigð æska í landi voru.

x

Hvöt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.