Hvöt - 01.03.1954, Side 23
21
H V Ö T
HELKULDÍ
(Kvæði þetta á að lesast með tilhlíðilegri
kuldatilfinningu.)
Helvíti er \alt, mig \elur í jraman.
Kroppurinn dregur sig saman.
Eg er nakinn og á e\\i náttstað að \veldi,
nýt aðeins hlýju jrá stjarnanna eldi.
Þœr horja á mig einan og
hamingjusnauðan,
heims\an og blauðan,
hrceddan við dauðann.
S\o djöjulsins Kauðann.
Mannscevin er Ijótur lei\ur.
Lítill \vei\ur.
Logi —
Rey\ur.
Orlygur jrá Viðey.
Áfengisvandamál -
æskufólk - þéringar
Framhald af bls. 7.
einhverja aðra aðferð, þannig að hægt
væri að losna við þessar leyfar dansks
kaupmannavalds úr íslenzkunni, því að
aldrei hafa þéringar náð jafn mikilli út-
breyðslu sem þá, og þótti það sýna hve
maðurinn væri menntaður ef hann þéraði.
A þeim tíma gengu menn svo langt í
þessu, að sumir létu jafnvel börnin sín
þéra sig, var það helzt á fínni heimilun-
um. Eg get ómöguleka komið auga á, að
það sé nein minnkun fyrir mann, þótt
hann sé þúaður, nema ef síður sé, það
sýnir bara, að sá sem talar við hann
lítur á hann sem jafningja, sem reynir
ekki að upphefja sjálfan sig.
HVER VEIT ?
1. Hvað þýðir Esperanto?
2. Eftir hvern eru þessar ljóðlínur:
Fjarri gleðinnar gildaskálum,
hjá gnæfandi múrsins þiljum
reikar barn í betlitötrum
blæðandi og köldum iljum.
3. Hvaða rithöfundur fæddist að Húsa-
bakka í Skagafirði árið 1851?
4. Hvert er elzta íslenzka dagblaðið og
hvenær hóf það göngu sína?
5. Hvenær var Háskóli íslands stofnaður,
og hver var fyrsti rektor hans?
6. Hver vann hundrað metra hlaup á
Ólympíuleikjunum í Lundúnum 1948?
7. Hvað hét enski konungurinn, sem ekki
kunni að tala ensku?
8. Hver bjó til orðið skóhlífar yfir út-
lenda orið galósíur?
9. Hvenær var Stalinverðlaunum fyrst
úthlutað og fyrir hvað eru þau veitt?
10. Hvað þýðir mannsnafnið Lára?
Svör á bl. 23.
Til Italíu
Framhald af bls. 18.
Þegar Hekla fór skemmtiförina til
Spánar, komu spænskir lögregluþjónar í
einni hafnarborginni með dauðadrukkinn
mann og ætluðu að snara honum þar um
borð. Hann talaði ekki þeirra mál, en
þeir vissu, að þarna var statt íslenzkt skip,
og töldu þá ekki þurfa vitnanna við um
þjóðerni mannsins. Reyndar kom það í
ljós við nánari athugun, að maðurinn var
ekki Islendingur, en lái okkur bindindis-
mönnum, hver sem vill, þótt við teljum
það vægast sagt varhugavert fyrir þjóðina
að áfengi sé selt í hverri búð. M. J.