Hvöt - 01.03.1954, Qupperneq 24

Hvöt - 01.03.1954, Qupperneq 24
22 H V O T Hjörtur Guðmundsson: HIN DAGLEGA BARÁTTA Hann gengur eftir þrönga og krókótta strætinu, maðurinn með skófluna á öxl- inni og slitróttu töskuna undir hendinni. Honum liggur ekkert á. Hann gengur hægt. Hann á erfitt með gang — því að hann er máttlaus, — máttlaus af sulti. Hann er þreyttur, þótt hann ekkert hafi unnið. I 18 daga hefur hann enga vinnu haft. A hverjum morgni í 18 daga hefur hann gengið niður að höfninni í leit að einhverri vinnu. Hann hefur gengið á milli verkstjóranna og beðið þá aðstoðar, en þeir hafa sagt, hver um sig: „Farðu til þess næsta.“ Þannig hefur hann leitað án árangurs í 18 daga.. Leitað og beðið. Beðið við höfn- ina, ef eitthvað skyldi til fallast. Hann var verkamaðurinn, sem hvergi fékk vinnu, eins og tugir og hundruð reykvískra verkamanna, sem nú gengu atvinnulausir. Samt hafði hann alltaf hatað verkamenn. Hatað sína eigin stétt. Hann var fæddur og uppalinn í félagi guðhræddra manna, sem kallaði sig „Óðin“. Oðinn var deild úr félagi alþjóðlegra faktúrufalsara og stjórnuðu því fallega ístrumyndaðir kaupsýslumenn og pabba- drengir, sem í miðri viku geta leyft sér að aka í lúxusbíl með pípuhatt á höfði. Hann fór að hugleiða, hvers vegna hann hafði gengið í Oðin. I sjálfu sér átti hann enga samleið með þeim mönnum. Hann fátæki, atvinnulausi verkamaðurinn, sem hvergi fékk vinnu og átti fyrir stórri fjöl- skyldu að sjá. Hann hafði beðið félaga sína, mennina hjá Oðni um vinnu. Mennina, sem oft hafa skipað honum fyrir eins og þræli. En mennirnir hjá Oðni sögðu: „Við berum enga ábyrgð á náunganum", og svo skelltu þeir hurðinni í lás. Og nú er hann á ferð heim, tómhentur sem fyrr. Maðurinn með skófluna á öxl- inni og slitróttu töskuna undir hendinni. Maðurinn, sem hvergi fær vinnu. Krók- ótta, þrönga gatan hlykkjast eftir bragga- hverfinu, forug og blaut. Hér blasa við augum íverustaðir þeirra, sem er meinað að búa í húsum, og í einum þessara bragga býr hann. Hér í leðjugri götunni leika börnin hans sér daglega. Blaut og forug up á haus. Það er engin leikvangur til fyrir börnin í braggahverfinu, því er leiksvæði þeirra gatan. Hann er óvenjulega lengi heim í dag. Skóflan er óvenjulega þung og gangan erfið. Onotalegir verkir fara um bak hans, höfuð hans þungt. Lágar barnsraddir berast að eyrum hans. Það eru raddir barnanna, sem verða að leika sér í forugri götunni. Og þarna eru börnin hans. Þau eru blá af kulda, og sulturinn er farinn að merkja þau. Sak- laust bros litlu barnanna mætir honum, fagurt og hreint. Þá er eins og hann vakni að nýju. Hann kastar frá sér skóflunni og slitróttu töskunni, bak hans réttist og öll þreyta hverfur burt, því að þrátt fyrir allt eru börnin dýrmætari og yndis- legri auður en allir blóðpeningar og vegna barnanna litlu, sem ékkert hafa upp á að bjóða nema sakleysið er hann ákveðinn að berjast og verður að berjast.

x

Hvöt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.