Þróun - 15.12.1951, Side 5
ÞRÓUN
5
væri synd að segja, að hún hefði
brugðist vonum okkar, Næst var
okkur sýndur háskólinn og var það
Björn Sigfússon, háskólabókavörð-
ur, sem það gerði. Fannst okkur
mikið til þessarar glæsilegu bygg-
ingar koma. Einnig skoðuðum við
Alþingisliúsið. Það, sem var okkur
einna minnisstæðast, var þó lista-
safn Einars Jónssonar og leiksýn-
ingin „Sölumaður deyr“, í Þjóðleik-
liúsinu.
Einn góðan veðurdag var svo far-
ið um nágrenni bæjarins. Fyrst var
farið til Bessastaða og síðan til
Hafnarfjarðar, og skoðuðum við bæ-
inn og nánasta umhverfi hans. Síð-
an ókum við til Reykjalundar, þar
sem við fengum hinar prýðilegustu
móttökur.
Að síðustu fórum við með bif-
reið um Krýsuvíkurveg til Þing-
valla með viðkomu í Krýsuvík, þar
sem við sáum hin stórkostlegu
gufugos. Að því loknu skoðuð-
urn við Strandakirkju. Þaðan
fórum við til Hveragerðis og sáum
Grýtu gjósa. Næsti viðkomustaður
var Selfoss, þar sem við sáum hina
nafntoguðu ölfusárbrú. Einnig
snæddum við þar í Tryggvaskála.
Á leiðinni til Þingvalla staðnæmd-
umst við á Ljósafossi og skoðuðum
hinar stórfenglegu virkjanir þar.
Þegar til Þingvalla kom, skoðuðum
við Lögberg og Almannagjá og
héldum síðan til Reykjavíkur.
Að morgni hins 15. júní var síð-
an haldið flugleiðis heim. Veður
var ekki sem ákjósanlegast, en ann-
ars höfðum við haft ágætt veður
allan tímann, að undanskildum
einum eða tveim dögum, meðan við
dvöldum í Reykjavík.
Við stigum á land með dásam-
legar endurminningar eftir vel-
heppnaða og ánægjuríka för. Far-
arstjórar voru kennararnir Sigurð-
ur Tryggvason og Haraldur Stein-
þórsson.
H.J.H. og Ó.K.H.
Framhaldsdeild.
,Hestar postulanna1
Ég hef því miður ekki kynnst
mörgum farartækjum, svo að ég get
lítið dæmt um þau. En reynsla mín
er sú, að „hestar postulanna", séu
bezta farartækið.
„Hestar postulanna“ eru tvær
stoðir, sem eru áfastar við líkama
mannsins. Þeir eru misjafnir í lag-
inu, sumir eru langir og mjóir,
stuttir og sverir, aðrir eru bognir
og hinir eru beinir, og eru þeir
beinu augnayndi allra, sérstaklega
karlmannana, ef eigandinn er kona.
Bílar, flugvélar, skip og önnur
farartæki geta bilað, en það gera
„hestar postulanna" yfirleitt ekki
nema sjahlan. T.d. geta þeir brotn-
að (og er það án efa mjög sárt), eða
gigtin heltekur þá, svo að eigand-
inn verður annaðhvort að liggja,
sitja eða staulast með staf. Á þeim
(hestum postulanna) er hægt að
ferðast um fjöll og firnindi, þar
sem bílar og önnur nýtízku farar-
tæki komast ekki. Það þarf ekki að
óttast benzínleysi eða að hjólbarð-
ar springi með hávaða og gaura-
gangi.
„Hestar postulanna“ eru klæddir
í skó og sokka, til þess að þeir
verði ekki sárir og kaldir.
Hjá karlmönnum eru þeir yfir-
leitt í sterklegum skóm og sokkum,
en hjá kvenfólkinu eru þeir í dýr-
indis nylonsokkum (með svörtum
saumi) og háhæluðum skóm sem
eru opnir í hæl og tá, og eru þeir
ekki eins þægilegir og ef þeir væru
bara sléttbotnaðir. „Hesta postul-
anna“ eiga allir, jafnt ríkir sem fá-
tækir, án þeirra getur enginn ver-
ið, og á þeim geta allir farið eitt-
hvað, bæði stutt og langt, og er
dugnaður þeirra undir eigandanum
kominn.
Og að lokum þetta: „Hestar post-
ulanna“, eru öruggasta, bezta,
skemmilegasta og ódýrasta farar-
tækið. S. III. bekk.
I I 111 I: llllll'lll I I I I I I I IIII! I IIII I IIIII l| l! II I' I 'lllll I' 11:1111 I ll!!|lll!’|!!l: llll' I VIII I
GLEÐILEG JÓL!
GOTT NÝTT AR!
Þakka viðskiptin á líðandi ári.
Höskuldur Arnason, gullsmiður.
" il!!liilitlillíil::iiili:i! li i i iiiiii i i i !i:iiiii;l|llliil!!lllllllllli’l[illlllil|llliliiliiliiii ■liltiliiiiiiiiiiiiiiviiiii|ii||||liinii!|i
GLEÐILEG JÖL! FARSÆLT NÝTT ÁR!
| Hafnarsjóður ísafjarðar.
" 11111111111.' i!iiiiiiiii:iiiiiiiiiiiiiiiliiiiiliiiiiliiliiiiiiniiiiiiliiiiiiiiltiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
| GLEÐILEG JÓL! GOTTNÍTT AR!
Þakka viðskiptin á líðandi ári.
1 ' Netagerðin Grænigarður,
P. Njarðvík, ísafirði.
I I I II! I I I I III I U I I! i:i|l!llllll||l|l||liail|ll||||:i|ll||||||||||lllllllll!lllll!lllllllllillllllllllllllllll|ll||||ll|ll||||||||||l!