Þróun - 15.12.1951, Síða 6
6
ÞRÓUM
Markmið mitt með þessari grein
er ekki að skýra, hvað jazz er, hann
skýrir sig bezt sjálfur, heldur að-
eins að segja í stuttu máli frá þró-
un hans og helztu brautryðjendum
hans og þeim aðalstefnum er fram
hafa komið í jazz.
New Orleans í Bandaríkjunum
er fæðingarstaður jazzins.
Negrarnir, sem fyrstir urðu til að
leika hann, um aldamótin 1900,
kunnu ekki að lesa nótur og urðu
því að bæta inn í lögin ef þeir
kunnu þau ekki öll. Þetta, sem þeir
bættu inn í lagið frá sjálfum sér,
varð fyrsti vísir þess, er hlotið hef-
ur nafnið „Improvisering".
Einkenni jazzins er einmitt þessi
svokallaða „Improvisering“ og svo
takturinn eða „rythminn“.
Upphafsmaður jazzins er ætíð
íalinn negri, Buddy Bolden að
nafni. Hafði hann hljómsveit í
Orleans og var alls staðar ómiss-
andi með hljómsveit sina, þar sem
eitthvað var um að vera.
Þessi fyrsti jazz sem leikinn
hafði verið undir nöfnum eins og
í.d. „ragtime musik, blue o.fl." fékk
seinna nafnið „Dixieland jazz“.
Margir skínandi góðir jazzleikar-
ar komu fram næstu árin, en Louis
Armstrong, tropetleikari bar höfuð
og herðar yfir aðra, og enn í dag er
hann kallaður konungur trompet-
leikaranna.
Dixieland jazzinn var fljótur að
vinna hylli fjöldans, og strax fyrir
1920 höfðu jazzhljómsveitir leikið i
Evrópu, við hrifningu og góðan
skilning Evrópubúa.
Um 1935 kemur Benny Good-
man, klarinetleikari fram með
hljómsveit og veldur hún byltingu
í jazzmúsikinni. Hún lék jazz í svo-
nefndum „swing stíl“, og er swing
stíllinn töluvert frólirugðinn Dixie-
land stílnum, sem er ekki eins.
formfastur.
Ekki er hægt að komast hjá að
minnast á hljómsveit Fletcher
Hendersons, þegar minnst er á
swing stílinn, því að um 1924 var
Henderson byrjaður að leika þenn-
an stíl, sem Goodman byrjaði á
1935. Henderson var því rúmum
10 árum á undan samtíð sinni.
Nú tók jazzinn fjörkipp. Liílar og
stórar hljómsveitir þutu upp. Helzt-
ar þessara hljómsveita má nefna
King Cole tríóið, hljómsveit Lion-
els Hamptons vibrafónleikara,
hljómsveit Gene Krupa trommu-
leikara o.fl.
Jazzinn breiddist út um Evrópu
og víðar. 1 Svíþjóð, Englandi o.fh
löndum risu upp góðar jazzhljóm-
sveitir, sem unnu að því að láta
fleiri og fleiri njóta þessarar dá-
samlegu tónlistar.
Um og eftir 1940 fer að bera á
nýrri og sérstæðri stefnu í jazz-
músik. Þar mátti heyra sérstæðar
„Improviseringar“, sem fylgdu ekki
alltaf laglínunni og vildu stundum
brjóta reglur hinnar ævagömlu
hljómfræði. Margir hafa verið að
malda í móinn og sagt að það, sem
bryti í bág við hljómfræðina, væri
ekki tónlist, en það hefur fallið um
sjálft sig, því að margir hinna klass-
BÓKASAFNI0
Útlán bóka fer fram alla virka daga nema fimmtudaga og
laugardaga kl. 4—Sy2 e.h.
Lestrarsalur er opinn:
Alla daga vikunnar kl. 1—3 e.h.
Þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 8—10 e.h.
Fimmtudaga og laugardaga kl. 4—7 e.h.
Böm yngri en 14 ára fá ekki aðgang að lestrarsal kl. 8 á
kvöldin.
Bókavörður.
;:iiiiiiiliii!!iiiiiiiiiiiiiiiiiili!liimii!iiiiiiiiiiiiiii!i!iiiiiiiiniiiiiii!ii!!iiiiiiiiiiiiii!iiiiiii::i;!iiii![iiiiiimiiii3iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii! »
Gagnfræðaskólanemendur fljúga mefi 1
VESTFIRÐINGl. |
I L.oftleiðir. |
' iimiiitiiiiiiiiiiiiiiimimimimiiiiiiiiiimimiiiiiiimimimiiMmiiiimiiiiiiimimiiiimiiuiiiiiiimimimimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiii -
GLEÐILEG JÓL!
GOTT NÝTT AR!
Útvegsbanki lslands.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII|ll||||||||||lll||||||li||||||||||||||||||||!l||||||||||||||||||||H: