Austri - 12.09.1985, Qupperneq 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 12. september 1985.
Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi
Skrifstofa Austra Kaupvangi 6, 700 Egilsstaðir, pósthólf 73 S 97-1984
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson
Framkvæmdastjóri: Þórhalla Snæþórsdóttir
Blaðamenn: Sveinn Herjólfsson, Magnús Þorsteinsson,
Magnús Einarsson og Benedikt Vilhjálmsson
Auglýsinga- og áskriftarsími: 97-1984
Áskrift kr. 80.- á mánuði. Lausasöluverð kr. 20,-
Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum S 97-1449
Fiskveiði-
stefnan
Að undanförnu hafa orðið miklar umræður um fiskveiði-
stefnuna. Afli hefur verið góður víða um land og því verulega
gengið á leyfilegt aflamagn. Við þessar aðstæður skapast
vandi sem ekki verður auðveldlega leystur nema með meiri
afla.
í þessu tilviki reynir á hvað við hugsum langt fram í tímann.
Lausn á vandamáli dagsins getur skapað enn rneiri vandræði
í framtíðinni. Freystingin er oft mikil en þá verður
skynsemin að komast að.
Fiskveiðistefnan ræður meiru um afkomu þjóðarinnar til
lengri framtíðar en flest annað. Það er því eðlilegt og nauð-
synlegt að um hana séu ávallt málefnalegar umræður. Stefn-
unni er ætlað að tryggja sem besta og hagkvæmasta nýtingu
fiskistofnanna til lengri tíma. í því sambandi þarf að taka tillit
til réttlátrar skiptingar milli skipa og byggðarlaga, atvinnu-
öryggis og hæfilegs framboðs á þeim mörkuðum sem eru okkur
mikilvægastir. Skapa þarf skilyrði fyrir bættum gæðum, meiri
verðmætasköpun og lækkuðum tilkostnaði. Samspil þess-
ara markmiða er flókin og ávallt mun koma til árekstra þegar
veiðum er stjórnað með ákveðnum hætti.
Ekki er langt síðan að við færðum landhelgina út í 200
mílur. Við vissum að útlendingar höfðu stundað rányrkju hér
við land og sókn þjóðarinnar til bættra lífskjara var undir því
komin að við sætum ein að nýtingu auðlindanna. En útfærsl-
unni fylgdi einnig mikil ábyrgð. Því var lýst yfir í hátíðar-
ræðum að nú væri fjöreggið í okkar eigin höndum og góð
meðferð þess mundi tryggja afkomendum okkar glæsta
framtíð. Farið var í mikla og nauðsynlega uppbyggingu flota
og fiskvinnslustöðva. Vegna mikillar veiði og versnandi skil-
yrða í hafinu minnkaði afli og því var gripið til harkalegra
aðgerða til að tryggja uppbyggingu stofnanna á ný með tak-
mörkun veiða og fjölgun skipanna var stöðvuð. Þótt góður
árangur hafi náðst er allt of snemmt að hrósa sigri. En sigur-
inn mun vinnast ef rétt er haldið á málum og skammtímahags
munir látnir víkja.
Þeir sem hæst tala um afnám núverandi stjórnunaraðferða
vilja í reynd enga stjórnun. Þeir vilja vera frjálsir menn á
eigin miðum. Flestir vilja geta athafnað sig án afskipta ann-
arra. Athafnafrelsið er hluti af lýðræðinu og það má ekki hefta
af óþörfu. Ef heildarhagsmunir þjóðfélagsins krefjast þess
verður hins vegar að gera það. Hömlulaus samkeppni um nýt-
ingu fiskstofnanna mun aðeins leiða til ofveiði og lífskjara-
skerðingar.
Á næstunni mun fara fram mikil umræða um fiskveiðistefn-
una. í þessari viku funda deildir Fiskifélags íslands á Austur-
landi. Á næstunni munu öll helstu hagsmunasamtök í sjávar-
útvegi efna til þinga og aðalfunda. Rödd þessara aðila mun
vega þungt við ákvarðanir á næstunni. Á þeim hvílir því mikil
ábyrgð sem þeir munu áreiðanlega standa undir. Það er margt
sem gengur erfiðlega út um land í dag. Lykillinn að bættum
hag er fyrst og fremst skynsamleg fiskveiðistefna.
H.Á.
Atvinnumálaráðstefna Kjördæmis-
sambands Framsóknarmanna
Kjördæmissamband Fram-
sóknarmanna hélt atvinnumála-
ráðstefnu um síðustu helgi í
Valaskjálf á Egilsstöðum. Þátt-
takendur á ráðstefnunni voru af
svæðinu frá Djúpavogi til
Vopnafjarðar og voru haldnar
framsögur um einstaka þætti
atvinnumála. Á eftir framsögu-
erindum voru pallborðsum-
ræður þar sem framsögumenn
svöruðu fyrirspurnum ráð-
stefnugesta.
Ráðstefnan heppnaðist hið
besta og luku þátttakendur upp
einum munni um það að slíkar
umræður sem þarna fóru fram
væru mjög gagnlegar og væri
verðugt að gera ráðstefnuhald að
föstum þætti í starfi Kjördæmis-
sambandsins, sem er reyndar ætl-
unin. Þámunu verðatekinfyrirmál
sem eru ofarlega á baugi í fjórð-
ungnum.
Framsöguerindi
Sigurður Jónsson formaður
kjördæmissambandsins setti ráð-
stefnuna og rakti tilgang hennar.
Þá flutti ávarp Þórður Ingvi Guð-
mundsson formaður þjóðmála-
nefndar SUF. Þórður rakti starf
ungra jramsóknarmanna í
stefnumótun flokksins í atvinnu-
málum, en ungirframsóknarmenn
hafa unnið mikið starf á þessu
sviði. Þórði fannst hægt ganga að
koma hugmyndum ungra manna
í framkvæmd, og fengju þeir í
mesta lagi klapp á kollinn fyrir sína
vinnu.
Stefna Framsóknarflokksins
Jón Kristjánsson flutti framsögu
um stefnu Framsóknarflokksins í
atvinnumálum. Jón rifjaði upp
nokkur grundvallaratriði sem ekki
mætti kvika frá í atvinnuuppbygg-
ingunni það er krafa um fulla at-
vinnu fyrir alla, byggð um landið
allt og nýting auðlindanna, án rán-
yrkju. Einnig gerði Jón að umtals-
efni ályktanir miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins um nýsköpun (at-
vinnulífi og lagasetningu sem
miða að þeim markmiðum.
Landbúnaðarmál
Bjarni Guðmundsson, aðstoð-
armaður landbúnaðarráðherra
flutti framsögu um landbúnaðar-
mál. Rakti Bjarni helstu atriði nýrr-
ar lagasetningar um landbúnað-
armál og rakti þróun þeirra mála
nú síðustu árin. Margar athygl-
isverðar upplýsingar komu fram í
erindi Bjarna þar á meðal þær að
hér austanlands eru 90% árs-
verka í landbúnaði í nautgripa og
sauðfjárrækt. Fráárinu 1971 hefur
ársverkum í landbúnaði í frum-
vinnslu fækkað um 2300, en árs-
verkum í úrvinnslu landbúnaðar-
afurða fjölgað um 700. Einnig kom
Bjarni inn á búrekstur og nauðsyn
menntunar og rekstrarráðgjafar
fyrir bændur.
Fiskirækt
Dr. Björn Björnsson fiskifræð-
ingur ræddi um fiskeldi og þá
möguleika sem eru hér á Austur-
landi á því sviði. Fram kom í erindi
Björns að kaldursjórhérfyrirAust-
urlandi setur skorður í þessu efni,
en því færi þó fjarri að mögu-
leikarnir í þessum efnum séu full-
kannaðir. Það vantaði frekari
rannsóknir hér, og væri nauðsyn-
leg nánari samvinnaframkvæmd-
araðila, sem við þessa hluti væru
að fást og þeirra stofnana sem
rannsóknir stunda. Björn er nýráð-
inn til Hafrannsóknarstofnunar og
vinnur að þessum málum þar.
Þess má geta að miklar umræður
og fyrirspurnir urðu vegna erindis
Björns en það var mjög athyglis-
vert eins og aðrar framsögur sem
voru á ráðstefnunni.
Iðnaðarmál
Magnús Einarsson bankastjóri
ræddi um iðnaðarmál og kom fram
í erindi hans að mannfjöldi í iðnaði
hér á Austurlandi hefur staðið í
stað síðan 1981, en nú eru um
515 störf í iðnaði hér. Magnús
rakti stofnun iðnþróunarfélags.
Hann setti fram þær skoðanir að
stjórnvöld ættu með aðgerðum að
skapa iðnaðarumhverfi og bein
þátttaka sveitarfélaga í atvinnu-
rekstri kæmi mjög til álita. Magnús
sagði að til greina kæmi að mis-
munandi skattareglur giltu eftir at-
vinnugreinum, lægri vextir væru til
framleiðslufyrirtækja til stofn-
kostnaðar og rekstrar en annarra.
Hann sagðist þeirrar skoðunar að
gengið væri ekki rétt skráð um
þessar mundir og tæki gengis-
skráning ekki mið af þörfum fram-
ieiðslunnar.
Ferðamál
Jónas Hallgrímsson fram-
kvæmdastj., flutti erindi um ferða-
mál. Jónas rakti framkvæmdir á
því sviði og þá vinnu sem unnin
hefur verið hér á Austurlandi við
skipulagningu þeirra mála. Góðar
samgöngur væru undirstaða
ferðamála, en nauðsynlegt væri
að vinna markvisst starf við upp-
byggingu á aðstöðu til móttöku
ferðamanna. Mikil vakning er nú
á því sviði sagði Jónas og hefur
aðstaðan víða stórbatnað. Hann
lagði áherslu á aukna kynningu
Austurlands og að nýta þá mögu-
leika sem landshlutinn býður upp
á.
í erindi Jónasar kom fram að
bílferjan Smyrill flutti 1500 farþega
til Austurlands er hún hóf ferðir
hingað árið 1975, en Norrönaflutti
hingað 5500 farþega síðastliðið
sumar.
Jónas átaldi litla fyrirgreiðslu
opinberra aðila við uppbyggingu
ferðamála á Austurlandi, fjár-
magnið sem til þeirra mála er veitt
hefur farið til uppbyggingar annars
staðar.
Sjávarútvegur
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra ræddi sjávarútvegs-
málin í sinni framsögu. Halldór
sýndi línurit yfir stærð fiskistofna
og vaxtarhraða, og yfir nýtingu og
vinnslu sjávaraflans. Hann sýndi
einnig fram á minnkun þjóðar-
tekna við minnkandi afla síðustu
ára, og hvernig þróunin hefur verið
í þessum málum síðasta áratug-
inn. Halldór lagði á það áherslu í
framsögu sinni að stjórn fiskveiða
væri nauðsynleg og ábyrgðarleysi
væri að taka of mikla áhættu í
veiðum og missa niður stofninn af
þeim sökum. Það yrði að hugsa til
framtíðar og ná hámarksnýtingu
út úr fiskstofnunum.
Eins og áður segir voru pall-
borðsumræður að loknum fram-
söguerindum og stjórnaði Þórður
Ingvi Guðmundsson þeim. Fjöl-
mörgum fyrirspurnum var beint til
framsögumanna og má þar t.d.
nefna miklar umræður um hinar
nýju atvinnugreinar fiskirækt og
loðdýrarækt.
Niðurstöður ráðstefnunnar og
þær upplýsingar sem þar komu
fram verða síðan teknar saman og
lagðar til grundvallar þegar kjör-
dæmisþing ræðir og ályktar um at-
vinnumál en ætlunin er að það
verði haldið í byrjun októbermán-
aðar.
J.K
Stúdenta-
leikhúsið
á Austur-
landi
Stúdentaleikhúsið sýnir rokk-
söngleikinn „Ekkó-guðirnir ungu“
á eftirtöldum stöðum á Austur-
landi.
Vopnafirði miðvikud. 18. sept. kl. 21
Borgarfirði fimmtud. 19. sept. kl. 21
Egilsstöðum föstud. 20. sept. kl. 21
Neskaupstað laugard. 21. sept. kl. 21
Höfn mánudaginn 23. sept. kl. 21
Fréttatilkynning
Frá sýriingu Stúdentaleikhússins.