Austri - 12.09.1985, Side 6
6
AUSTRI
Egilsstööum, 12. september 1985.
Sumarslátrun
Námskeiðfyrir
aðstandendur
fatlaðra barna
Blaðinu hefur borist fréttabréf
Sambands íslenskra Samvinnu-
félaga, Sambandsfréttir. Þar er
meðal annars skýrt frá starfsemi
Búvörudeildar um þessar mundir
og nýjungum hjá deildinni í með-
ferð kjöts. Þar segir svo meðal
annars:
Ferskt lambakjöt úr sumar-
slátrun.
Það hefur verið fastur liður í
starfssemi Búvörudeildar Sam-
bandsins á undanförnum árum að
gangast fyrir margs konar nám-
skeiðum fyrir sláturhússtjóra. Þar
hefur þeim verið kynnt nýjasta
tækni hverju sinni við slátrun,
innanúrtöku og aðra verkþætti er
tengjast störfum þeirra. Með þeim
hætti hefur tekist að samræma
vinnubrögð í sláturhúsum kaup-
félaganna í Borgarnesi og á
Hvammstanga. Leiðbeinendur á
þessum námskeiðum voru þeir
Sigurður Örn Hansson, forstöðu-
maður rannsóknastofu Búvöru-
deildar, og David Jennings frá
Nýja Sjálandi, sérfræðingur í
pökkun og meðferð lambakjöts.
Námskeið þessi voru verkleg og
fór því allmikil slátrun fram í hús-
unum meðan þau stóðu yfir. Þar
að auki voru þau óvenju snemma
á ferðinni í ár. Af þeim sökum gafst
þarna kærkomið tækifæri til að
bjóða neytendum ferskt lambakjöt
fyrr en venjulega og lengja þannig
þann tíma sem það er á boðstól-
um. Það kjöt, sem þarnafékkst, fór
til sölu hjá Afurðasölu Búvöru-
deildar, og er nú komið í verslanir,
þar sem það hefur selst mjög vel
og hlotið hinar bestu móttökur
neytenda.
Slátrun byrjar annars núna um
miðjan september og sér Afurða-
salan þá til þess að áfram verði
hægt að fá ferskt kjöt beint úr slát-
urhúsunum. Þaraðauki erætlunin
að hafa á boðstólum sérstök jóla-
lömb sem slátrað verður skömmu
fyrir jól, og þangað til verður reynt
að búa svo um hnútana að alltaf
verði fáanlegt nýtt kjöt. Verður
reynt að tímasetja slátrunina
þannig að þetta geti tekist. Með
öðrum orðum er stefnt að því að
allan tímann frá því í lok ágúst og
fram að jólum verði á boðstólum
nýtt og ferskt lambakjöt frá Af urða-
sölunni.
Ný pökkunarstöð
En þetta er ekki eina nýjungin
hjá Afurðasölunni því að þar er
einnig búið að taka í notkun nýja
pökkunarstöð sem ætlað er að
verða til þess að bæta mjög alla
þjónustu hennar við neytendur.
Þar er kjötinu m.a. pakkað í loft-
tæmdar plastumbúðir, og einnig
er þar nú komin í notkun ný að-
staða til sundurhlutunar á kjöti
sem gefur verslunum og neyt-
endum færi á að velja á milli mun
fleiri og smærri hluta af kjötskrokk-
unum en áður. Sömuleiðis tryggir
pökkunarstöðin enn betri meðferð
kjötsins en verið hefur til þessa, og
pökkun í loftþéttarumbúðirskapar
jafnframt aukið geymsluþol.
Þar að auki hefur svo verið sett
upp aðstaða í Afurðasölunni,
skipulögð eftir niðurstöðum nýj-
ustu rannsókna, sem gerir það
kleift að þíða frosið kjöt við bestu
aðstæður. Verður það framvegis
þítt undir ströngu eftirliti við rétt
raka- og hitastig, og í réttan tíma.
Þetta á að leiða til þess að neyt-
endur geti gengið að meyru og
Ijúffengu kjöti vísu á öllum tímum
árs.
Á komandi vetri munu samtök
fatlaðra og aðstandenda fatlaðra
gangast fyrir námskeiðum fyrir
fjölskyldur/aðstandendur fatlaðra
barna undir skólaaldri og snemma
á skólaaldri. Fyrstu tvö nám-
skeiðin verða haldin í Reykjanesi
við ísafjarðardjúp helgina 13. -
15. september, og í húsmæðra-
skólanum á Hallormsstað helg-
ina 27.-29. september.
Gert er ráð fyrir þátttöku fullorð-
inna aðstandenda, og er ekki skil-
yrði að fólk búi í þeim landshluta
sem um ræðir. Námskeiðið miðast
við að öll fjölskyldan sé með. Hæft
starfsfólk annast börnin meðan
fundir standa yfir, en ýmislegt
verður gert til skemmtunar bæði
börnum og fullorðnum. Kostnaði
vegna þátttöku verður stillt í hóf,
en án ferða verður hann um kr.
1500.- fyrir fullorðninn einstakling,
um 750.- fyrir barn. Ferðir verða
skipulagðar sé þess óskað, og
reynt verður að koma til móts við
ferðakostnað þeirra sem eiga
langt að sækja.
Dagskrá námskeiðanna verður
sem hér segir:
Föstudagur:
Frá kl. 17: Tekið á móti þátttak-
endum.
Kl. 19: Kvöldmatur.
Kl. 21: Sýning myndbands fyrir
fullorðna. Kynning.
Barnagæsla kl. 21 - 23.
Laugardagur:
Kl. 8 - 9.30: Morgunmatur.
Kl. 9.45: Réttur fatlaðra gagn-
vart Tryggingastofnun ríkis-
ins. Erindi fulltrúa Trygginga-
stofnunar, Ingólfs H. Ingólfssonar.
Fyrirspurnir. Fulltrúar Svæðis-
stjórna um málefni fatlaðra á
Vestfjörðum og Norðurlandi
vestra kynna starf svæðis-
stjórnar og aðstöðu fyrir fatlaða
á svæðinu og víðar. Fyrirspurnir.
Kl. 12 - 13.30: Matur. Samvera
með börnum.
Kl. 13.30:Viðbrögð aðstand-
enda við fötlun barns. Erindi,
Einar Hjörleifsson sálfr. erindreki
hjá Sjálfsbjörg og Jóhann Thor-
oddsen sálfr. hjá Styrktarfélagi
vangefinna. Hópstarf.
Kl. 15.30: Kaffi. Síðan áframhald-
andi hópstarf.
Kl. 18: Fundum lýkur. Kvöldmatur
kl. 19, síðan kvöldvaka með þátt-
töku barna.
Kl. 21 - 23: Kvöldvaka fullorðinna.
Barnagæsla.
Sunnudagur:
Kl. 8 - 9.30: Morgunmatur.
Kl. 9.45: Fötlunog erfiðleikarvið
greiningu. Erindi læknis (Sveinn
Már Gunnarsson barnalæknir).
Hópstarf. Fyrirspurnir.
Kl. 12 - 13.30: Matur. Samvera
með börnum.
Kl. 13.30: Hjálpartæki, tæknileg
aðstoð við fatlaða og leiktæki. Er-
indi, Guðrún Hafsteinsdóttir iðju-
þjálfi, Hjálpartækjabanka og
Snæfríður Egilson iðjuþjálfi,
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra.
Hópstarf. Fyrirspurnir.
Kl. 15.30: Kaffi. (kaffitímaogfram
til kl. 16.30 geta þátttakendur not-
fært sér sérfræðilega aðstoð
eða borið fram einstaklings-
bundnar fyrirspurnir til allra fyrir-
lesara.
16.30 - 17.30: Námskeiðsmat og
námskeiðslok.
Þátttaka tilkynnist starfsmanni
námskeiðanna, Sigurlaugu S.
Gunnlaugsdóttur í síma 91-
84999, herb. 25, eða 91-24089
(heima).
(Fréttatilkynning um námskeiðahald
landssamtakanna Þroskahjálpar,
Sjálfsbjargar landssambands fatl-
aðra, Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra og Styrktarfélags vangefinna.)
VEIÐIHORNIÐ
[ Breiðdalsá hefur verið óvenju
mikið líf á þessu sumri. Eru komnir
upp úr ánni um 60 laxar og töluvert
af vænni bleikju. Áin hefur verið
mjög dauf undanfarin ár og er því
ánægjulegt að heyra þessar
fréttir. Mikill lax virðist hafa verið í
ánni og er kannski veiðimönnum
að kenna að ekki hafa fengist fleiri
því eins og allir vita er þetta ákaf-
lega dyntótt, skepna laxinn.
Árangur af sleppingum laxa af
Veiðifélagi Fljótsdalshéraðs er
nú þegar kominn í Ijós. i Eyvind-
ará hefur veiðst einn lax og var
hann merktur. Einnig hefur veiðst
einn lax í net í Lagarfljóti í
Fljótsdal. Einnig hafa sést laxar í
Grímsá. Á þessu má sjá að Veiði-
félagsmenn hafa haft erindi sem
erfiði að sleppa þessum 60 löxum
fyrir ofan laxastigann við Lagar-
foss. Gerast veiðimenn nú æ
óþolinmóðari um að lagfæring
stigans fari fram hið fyrsta.
MÞ
Minjavörður á
Austurlandi
Starf minjavarðar á Austurlandi er laust til um-
sóknar frá og með 1. nóvember n.k. í starfinu felst
skipulag, uppbygging og fagleg aðstoð við söfn á
safnasvæðinu, sem er Austurlandskjördæmi.
Minjavörður er jafnframt forstöðumaður Safna-
stofnunar Austurlands og starfar undir stjórn
hennar. Leitað er að starfsmanni með menntun í
þjóðfræði eða fornfræði, sem hefur áhuga á safna-
málum og er gæddur góðum samstarfseigin-
leikum.
Laun samkvæmt samkomulagi starfsmanna
ríkisins um minjaverði.
Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. Skriflegar
umsóknir sendist Halldóri Sigurðssyni á Miðhús-
um, 700 Egilsstaðir.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu S.A.L. fyrir
hádegi í síma 97-1451 og hjá Halldóri Sigurðssyni
í síma 97-1320 á ótilgreindum tíma.
Stjórn S.A.L.