Austri - 31.05.1990, Qupperneq 1
I í helgarmatinn: 1 Krydduð lambalæri m/beini . kr. 764.-pr.kg.
I Kryddaðir lambaframp. úrb . kr. 790. - pr. kg.
R Svínakótilettur . kr. 995.-pr.kg.
I Svínalærissneiðar . kr. 650,- pr. kg.
I Ávaxtasallat . kr. 355.-pr.kg.
* Opið laugardaga írá kl. 10-14.
1 uctílb KHB matvörudeild
Egilsstöðum
Þetta óvenjulega flýildi á myndinni hér að ofan er af gerðinni Maxair Drifter, tveggja manna og knúið
áfram af 50 ha. snjósieðamótor. Hjá vélinni stendur eigandinn Sveinn Ingimarsson frá Eyrarlandi í
Fljótsdal. Sagði hann hámarkshraða vélarinnar vera 75 mílur á klst. en venjulegur ferðahraði er 50
mílur á klst. Vélin þarf aðeins 25-30 metra flugbraut til að komast á loft. En hvers vegna keypti hann
vélina? „Ætli það hafi ekki verið til þess að hrella nágrannana,“ svaraði Sveinn Ingimarsson kíminn
á SVÍp. Austramynd/B.
Kosningaúrslitin á Austurlandi:
Framsókn styrkir stöðu sína
Hægri sveiflan daufari en annars staðar
Þegar talið var upp úr kössunum
á Austurlandi síðastliðinn laugar-
dag kom í ljós að framsóknar-
menn, sem buðu fram til sveitar-
stjórna, höfðu styrkt stöðu sína,
og unnið verulegt fylgi. Fram-
gangur Sjálfstæðisflokksins er ekki
eins mikill hér eystra, eins og á
höfuðborgarsvæðinu syðra, og
alþýðubandalagsmenn halda
meirihluta sínum í Neskaupstað.
f>að má því segja að minni sveiflur
séu hér Austanlands heldur en
annars staðar og minna um óvænt
úrslit, þó unnu framsóknarmenn
stórsigur á Eskifirði og bættu við
sig 20%.
Að loknum kosningum taka við
þreyfingar um samstarf og
myndun meirihluta og hefur
blaðið aflað sér upplýsinga um
gang mála frá nokkrum stöðum
þar sem breytingar hafa orðið.
Taka verður fram, að allt er þetta
breytingum undirorpið, enda fór
blaðið í prentun á þriðjudag,
þannig að viðræður um þessi efni
eru rétt að byrja.
Egilsstaðir:
Sú breyting varð á Egilsstöðum
að sjálfstæðismenn töpuðu manni,
sem Alþýðubandalagið vann af
þeim í þessum kosningum. Fram-
sóknarflokkurinn jók fylgi sitt um
3% frá síðustu kosningum, en
fékk þrjá fulltrúa eins og áður.
Alþýðubandalagið jók fylgi sitt um
1% frá síðustu kosningum, en
Sj álfstæðisflokkur og Óháðir töp-
uðu fylgi. Sjálfstæðisflokkur,
Alþýðubandalag og Óháðir mynd-
uðu meirihluta á síðasta kjörtíma-
bili og voru þá sjálfstæðismenn
með tvo fulltrúa, en hinir með
einn fulltrúa hvor. Voru fram-
sóknarmenn þá einir í minnihluta
með þrjá fulltrúa. Nú eru í gangi
þreyfingar um myndun meirihluta
á Egilsstöðum, en niðurstöður eru
ekki ljósar enn sem komið er.
Seyðisfjörður:
Meirihlutinn hélt velli.
Á Seyðisfirði hélt meirihluti
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks velli í kosningunum, en T-
listi Tinda, félags jafnaðar- og
vinstrimanna, fékk fjóra menn
kjörna. Framsóknarmenn hafa
boðið sjálfstæðismönnum upp á
áframhaldandi meirihlutasam-
starf, en svör höfðu ekki borist
þegar blaðið fór í prentun. Heyrst
hefur að sjálfstæðismönnum hafi
borist bréf frá Tindum, lista
óháðra, en ekki er vitað um efni
þess.
Á kjörskrá voru 694. Atkvæði
greiddu 603 eða 86.88%.
Eskifjörður:
Stórsigur
framsóknarmanna.
Framsóknarflokkurinn vann
kosningasigur á Eskifirði, fékk
39,59% atkvæða og bætti við sig
manni og fékk þrjá menn. Við það
féll meirihluti Alþýðuflokks, Sjálf-
stæðisflokks og óháðra, en óháðir
buðu ekki fram í þessum kosning-
um. Alþýðuflokkur fékk einn
mann kjörinn, Sjálfstæðisflokkur
fékk tvo menn og bætti við sig
einum manni og Alþýðubanda-
lagið fékk einn mann, eins og
áður.
Gísli Benediktsson, efsti maður
á lista framsóknarmanna, sagði í
viðtali við Austra sl. þriðjudag,
þegar hann var spurður um kosn-
ingaúrslitin: „Við erum afskaplega
ánægðir með þessi úrslit. Petta er
langt umfram vonir.“ Gísli vildi
m.a. þakka þessa góðu útkomu
framsóknarmanna því, að þeir
hefðu bent á ástandið í bænum og
þá sérstaklega á fj ármálastöðu
bæjarins. „Ég held að fólk hafi
verið farið að gera sér grein fyrir,
hvernig skuldastaða bæjarins var,
og það hafi kallað á einhverja
breytingu þar. Skuldastaðan er
mjög erfið hjá bænum og ég er
hræddur um að það þurfi að taka á
því máli fyrst og fremst.“ Gísli
sagði ennfremur, að menn væru nú
að þreyfa sig áfram um myndun
nýs meirihluta, og hefðu þeir
framsóknarmenn verið í óform-
legum viðræðum við alþýðubanda-
lagsmenn. Hann kvaðst búast við,
að framsóknarmenn myndu verða
í næsta meirihluta, og að myndun
meirihluta myndi væntanlega skýr-
ast í lok vikunnar.
Á kjörskrá á Eskifirði voru 762,
en atkvæði greiddu 629, eða
82.6%.
Fáskrúðsfjörður:
Á Fáskrúðsfirði urðu þær breyt-
ingar að framsóknarmenn og F-
listi óháðra bættu við sig manni á
Framhald á bls. 5
Frá stofnfundi Dyngjunnar hf. í sl. viku. Hluthafar eru nú 23, en vonast er eftir að
þeim fjölgi töluvert á ncestunni. Austram.lB
Egilsstaðir:
Stofnað hlutafélag
um prjónastofu
Eins og áður hefur komið fram
hér í blaðinu, hefur verið unnið að
undirbúningi stofnunar hlutafélags
um rekstur prjónastofu á Egils-
stöðum undanfarnar vikur.
Stofnfundur hins nýja hlutafé-
lags var haldinn sl. fimmtudag,
sem var uppstigningardagur 24.
maí. Nýja hlutafélagið hlaut
nafnið Dyngjan hf., og var félag-
inu kosin þriggja manna stjórn á
stofnfundinum. í stjórn voru kosin
Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Jón-
asson og Ásta Sigfúsdóttir, og mun
stjórnin sjálf skipta með sér
verkum. Hluthafar eru nú orðnir
23, en þeim á væntanlega eftir að
fjölga töluvert.
Að sögn Sigurjóns Jónassonar,
eins stjórnarmanna er nú búið að
safna 500 þúsund krónum í hluta-
fé, en það er þó aðeins byrjunin,
því áætlað er að safna 2 milljónum
króna í hlutafé, og mun hlutafjár-
söfnun halda áfram í sumar.
Eins og kunnugt er keypti Egils-
staðabær nýlega húsnæði og vélar
prjónastofunnar Dyngju hf. af
Iðnlánasjóði, sem keypti þessar
eignir á nauðungaruppboði eftir
gjaldþrot þess fyrirtækis.
Sigurjón sagði, að næstu skref
hins nýja T lutafélags yrðu að gera
samning við Egilsstaðabæ um leigu
á húsnæðinu og vélunum og að
ganga frá samningum við bústjóra
þrotabúsins, en segja mætti að þeir
samningar væru á lokastigi. Væri
vonast til að hægt yrði að ganga frá
báðum þessum atriðum í þessari
viku.
Hann sagði ennfremur, að búið
væri að gera áætlanir um að fá tvo
starfsmenn til að byrja með. Eru
það þau Ólafur Sigurðsson og Ólöf
Jónsdóttir, sem bæði störfuðu
áður sem stjórnendur og verk-
stjórar hjá Dyngju hf. Þau munu
losna úr störfum sínum annars
staðar nú um næstu mánaðamót og
munu þá taka til starfa af fullum
krafti hjá hinu nýja hlutafélagi.
Ekki þarf að kaupa nýjar vélar
eða tæki svo heitið geti til félags-
ins, en reiknað er með að vélar og
tæki þurfi ýmissar aðhlynningar
við og hreinsunar, áður en eiginleg
framleiðsla getur hafist hjá fyrir-
tækinu.
Að sögn Sigurjóns hafa menn
hugsað sér að byrja á því að fara út
í blandaða framleiðslu, sem reynt
verður að byrja á upp á eigin
spýtur. Fljótlega yrði svo farið að
huga að mörkuðum og svo hugsan-
legri samvinnu við aðra aðila um
frekari framleiðslu.
„Við höfum sett okkur það
mark, að taka eitt skref í einu, og
tókum þá ákvörðun að reyna að
komast yfir verksmiðjuna og reyna
að gangsetja hana og sjá, hvaða
byr við fengjum í seglin,“ sagði
Sigurjón. Hann sagði, að draum-
urinn væri, að geta komið verk-
smiðjunni í gang, þó ekki ,væri
nema að nafninu til, þegar á laug-
ardaginn fyrir hvítasunnu.
Pað skal ítrekað að lokum, að
hlutafjársöfnun í þessu nýja hluta-
félagi heldur áfram í sumar og eru
allir þeir, sem hafa áhuga á að ger-
ast hluthafar og vilja styrkja þetta
fyrirtæki, hvattir til að hafa sam-
band við einhvern af stjórnar-
mönnum.
G.I.
Þeir hafa svo sannarlega verið á
sóknarmarki frambjóðendur
framsóknarmanna á Austur-
landi um síðastliðna helgi.