Austri - 31.05.1990, Blaðsíða 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 31. maí 1990.
Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi
Skrifstofa Austra Lyngási 1, 700 Egilsstaðir, pósthólf 73 S 97-11984
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson
Útgáfustjóri: Broddi Bjarni Bjarnason
Auglýsingastjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir
Blaðamaður: Guðgeir Ingvarsson
Auglýsinga- og áskriftarsími: 97-11984
Áskrift kr. 335,- á mánuði. Lausasöluverð kr. 90.-
Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum S 97-11449
Austri kemur út á fimmtudögum.
Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 á mánudagsmorgnum.
Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Að loknum
sveitar-
stjórnar-
kosningum
Þegar kosningaúrslit liggja nú fyrir eru uppi margvíslegar
túlkanir á úrslitum. Forysta Sjálfstæðisflokksins telur að
ríkisstjórnin hafi fengið þau skilaboð að henni beri tafarlaust
að fara frá. Slíkt er að sjálfsögðu fráleitt, enda snérust kosn-
ingarnar um sveitarstjórnarmál en ekki landsmál. Hvað sem
líður öllum túlkunum er ljóst að sveitarstjórnarmenn á
Austurlandi sem bjóða sig fram undir merki Framsóknar-
flokksins hafa fengið mjög góða kosningu. Á Eskifirði, Fá-
skrúðsfirði og Norðfirði bætir flokkurinn við sig einum
manni og víða annars staðar vinnur hann verulega á.
Framsóknarflokkurinn hefur um langan tíma verið for-
ystuafl í stjórnmálum á Austurlandi, bæði á vettvangi sveit-
arstjórnar og íandsmála. Kosningaúrslitin staðfesta enn á ný
þessa stöðu flokksins í fjórðungnum. Sveitarstjórnarmenn
sem unnið hafa undir merkjum Framsóknarflokksins hafa
unnið mjög gott starf í sínum byggðarlögum. Peir hafa
starfað þar af krafti og fengið ótvíræðan trúnað íbúanna í
hinum ýmsu sveitarfélögum.
Þótt kosningarnar túlki fyrst og fremst traust við þá aðila
sem í framboði eru er jafnframt ljóst að þeir starfa undir
merki Framsóknarflokksins á landsvísu. Framsóknarmenn
hafa lagt á það mikla áherslu að undanförnu að treysta
atvinnulíf í sessi á landsbyggðinni. Seinni hluta árs 1988 var
svo komið að mjög víða á Austurlandi blasti stöðvun
atvinnulífsins við. Þá var Atvinnutryggingarsjóður stofnaður
sem stóð að fjárhagslegri endurskipulagningu atvinnuveg-
anna. Þessi skipan mála var gagnrýnd mjög mikið af sjálf-
stæðismönnum sem ásökuðu ríkisstjórnina um óeðlilega
fyrirgreiðslu við undirstöðuatvinnuvegina. Það er mikilvægt
fyrir sveitarstjórnarmenn að flokkar þeirra standi tryggilega
á bak við þá og fylgi fram sjónarmiðum byggðarlaganna á
landsvísu. Framsóknarflokkurinn hefur óhikað beitt sér fyrir
því að atvinnuvegunum væri komið til aðstoðar með einum
eða öðrum hætti. Atvinnulífið er sá grunnur sem við
byggjum á og fjárhagur sveitarfélaga og íbúanna verður því
aðeins traustur að grundvöllur atvinnulífsins sé góður.
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna á Austurlandi eru skila-
boð sem ber að túlka á þann hátt að framsóknarmenn haldi
áfram að vinna á þeirri braut sem þeir hafa gert að undan-
förnu. Það er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið
kosningasigur á höfuðborgarsvæðinu. Þau kosningaúrslit ber
hins vegar ekki að túlka þannig að ríkisstjórnin fari frá.
Þvert á móti hefur Framsóknarflokkurinn fengið gott traust
á landsbyggðinni og reyndar í Reykjavík líka. Við munum
því ótrauðir halda áfram okkar starfi og vinna með sveitar-
stjórnarmönnum að eflingu sveitarfélaganna og atvinnulífs-
ins á viðkomandi stöðum. Mikilvægur árangur hefur náðst í
málefnum sveitarstjórnanna með breyttri verkskiptingu og
endurskipulagningu tekjustofna. Þessu starfi þarf að halda
áfram og sveitarfélögin þurfa að yfirtaka sem flesta mála-
flokka þannig að mikilvægustu stjórnsýslueiningar landsins
verði efldar og sjálfstæði þeirra aukið.
Ég vil þakka stuðningsfólki Framsóknarflokksins fyrir
mjög góð störf við undirbúning þessara kosninga. Alþingis-
menn flokksins hafa átt gott samstarf við stuðningsmenn um
allt kjördæmið. Þau samskipti hafa verið ánægjuleg eins og
alltaf áður. Við óskum nýkjörnum sveitarstjórnarmönnum
til hamingju með kosninguna og vitum að hún mun verða til
heilla fyrir byggðarlög þeirra. H.Á.
Frá ársþingi
UÍA
Ársþing Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands, sem var
hið 47., var haldið í Brúarásskóla
5. maí síðastliðinn.
Þingið var fjölsótt og voru þar
52 fulltrúar frá 16 aðildarfélögum.
Nýr formaður var kjörinn Sig-
urður Aðalsteinsson, en Hrafnkell
Kárason gaf ekki kost á sér til
endurkjörs. Aðrir í stjórn voru
kjörnir Jóhann P. Hansson, Sig-
urjón Baldursson, Bjarni Frey-
steinsson og Þórarinn Hrafnkels-
son.
Þrem nýjum félögum var veitt
innganga í UÍ A, Golfklúbbi Seyð-
isfjarðar og íþróttadeildum hesta-
Nýtt fólk í ....
Framhald af baksíðu.
var kjörinn Ingólfur Sveinsson.
Sú breyting hefur nú orðið, að
tvær konur eru nú í hreppsnefnd,
en aðeins ein kona var í hrepps-
nefnd á síðasta kjörtímabili.
Staðan eftir kosningarnar er
nánast sú sama og var eftir kosn-
ingarnar fyrir fjórum árum, en þá
misstu framsóknarmenn hreinan
meirihluta í hreppsnefnd. Nú hafa
hinir framboðslistarnir fjóra menn
í hreppsnefnd, og sýnist mér á
öllu, að fólk á þessum þrem listum
muni reyna að ná saman um form-
legan meirihluta, sem ekki var til
staðar á síðasta kjörtímabili.
Mér sýnist, að uppstilling á
þessum þremur listum hafi miðast
við það, ef svona færi með úrslit,
sem líklegt þótti, að útiloka full-
trúa Framsóknarfélagsins frá þeim
áhrifum, sem þeir hafa haft, og
þessu fólki hefur á tíðum þótt
heldur mikil. Það er þó álit
margra, að fulltrúar Framsóknar-
flokksins hafi ekki misnotað sína
stöðu í hreppsnefnd. Það var vel
ljóst, að sjaldan hefur verið betra
samstarf í hreppsnefnd eins og það
kjörtímabil, þegar framsóknar-
menn höfðu hér hreinan meiri-
hluta. Til marks um það er að það
var sjálfstæðismaður starfandi sem
varaoddviti allt það kjörtímabil.
Útlit fyrir kal í túnum
Tíðarfar breyttist mjög til batn-
aðar hér fyrsta maí og hefur verið
nær óslitin blíða út allan maí utan
þrír kuldadagar, sem komu í mán-
uðinum. Eru tún nú óðum að
grænka, en þó lítur út fyrir að all-
mikið kal sé í túnum. Ekki er þó
hægt að sjá ennþá, hversu mikið
það er, þar sem svo stutt er síðan
síðustu klakafannirnar fóru af
túnum, en þeir blettir, er síðast
komu undan snjó, líta mjög illa út.
Að öðru leyti sýnist mér, að
menn séu bjartsýnir í þessari góðu
tíð hér í sveitinni. Sauðburður
hefur gengið mjög vel að því best
er vitað, enda sauðburðartíð ákaf-
lega hagstæð, þar sem engar úr-
komur hafa verið.
S.F.
Erum fluttir að
Lagarbraut 4,
Fellabæ.
Allar almennar bíla-
og búvélaviðgerðir.
Bremsuborðaálíming.
Garðsláttuvélaviðgerðir.
BÍLABÓT
Lagarbraut 4, Fellabæ
Sími 12252
mannafélaganna Blæs og Frey-
faxa. Eru þá aðildarfélög UÍA
orðin 37 talsins.
Þingið samþykkti að lottótekjur
ársins 1990 skiptust milli aðildar-
félaganna á þann hátt að aðildar-
félögin fái 65%, en 35% renni til
UÍA.
Fjórir félagar hlutu starfsmerki
sambandsins: Jón Steinar Elisson,
Þórarinn Hrafnkelsson, Anna
Dóra Árnadóttir og Hákon Magn-
ússon.
Margar samþykktir voru gerðar
á ársþinginu, sem of langt mál yrði
að rekja hér í heild. Meðal annars
var samþykkt að skora á nýkjörin
sérráð UÍ A að láta átak í menntun
dómara verða eitt af sínum fyrstu
verkum, en dómaraskortur hefur
torveldað framkvæmd móta í
Hin árlega sveitakeppni tafl-
félaga á Austurlandi var haldin í
Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík 20.
maí. Fjórir menn skipa hverja
sveit. Þrjár sveitir tóku þátt að
þessu sinni. Frá Fellabæ, Djúpa-
vogi og Höfn. Tefld var tvöföld
umferð, 25 mín. á mann á skák.
Sigursælust varð sveit Djúpa-
vogs, sem hlaut 11 vinninga og
fékk því gullverðlaunin. í öðru
sæti varð Fellabær með 8 vinninga
og fékk silfurverðlaun og í þriðja
sæti varð Hafnarsveitin með 5
vinninga og hlaut bronsverðlaun.
Sigursveit Djúpavogs var dálítið
blönduð, því hana skipuðu Sverrir
Unnarsson, Breiðdalsvík; Kjartan
Másson, Djúpavogi; Magnús
Valgeirsson, Fáskrúðsfirði og
Gísli Bogason Djúpavogi.
mörgum íþróttagreinum. Þá var
samþykkt að hvetja aðildarfélög
UÍA til að koma á skipulögðu for-
eldrastarfi innan sinna vébanda,
þar sem því hefur ekki enn verið
komið á. Þingið samþykkti að
harma það skilningsleysi, sem
framkvæmdastjórn ÍSÍ sýnir hér-
aðssamböndunum í landinu með
þeim gerræðislegu reglum, sem
hún hefur sett í skiptingu lottó-
tekna. Einnig samþykkti þingið að
haldin verði á starfsárinu grunn-
námskeið ÍSÍ á Egilsstöðum,
Neskaupstað, Seyðisfirði og Fá-
skrúðsfirði. Einnig að halda skuli
A-námskeið fyrir þjálfara í knatt-
spyrnu, frjálsum íþróttum og
skíðaíþróttum á sambandssvæð-
inu. Aðildarfélögin voru hvött til
þátttöku í Egilsstaðamaraþoni 8.
júlí næstkomandi. Loks var sam-
þykkt að hvetja öll héraðssam-
böndin innan ÍSÍ og UMFÍ til
rækilegrar umfjöllunar um þá
hugmynd, að stofnað verði sér-
samband um almenningsíþróttir í
landinu, svo drepið sé á nokkrar af
samþykktum ársþings UÍA.
G.I.
Eins og sjá má komu óvenjufáar
sveitir til leiks og sátu æðimargir
skákmenn heima og fengu engin
verðlaun. Sveltur sitjandi kráka
.... segir máltækið!
Að venju var haldinn aðal-
fundur Skáksambands Austur-
lands í kaffihléinu. Þar var kjörin
ný stjórn og er hún nú þannig
skipuð: Formaður: Guðmundur
Ingvi Jóhannsson, meðstjórnendur:
Magnús Valgeirsson og Gunnar
Finnsson. Varamenn: Viðar Jóns-
son og Sigurður Hannesson.
Næsti skákviðburður er Svæðis-
mót unglinga, sem haldið verður á
Fáskrúðsfirði 2. júní. Gunnar
Finnsson sér um mótið.
G.I.J.
Sigursveitin: Gísli Bogason, Kjartan Már Másson, Magnús Valgeirsson og Sverrir
Unnarsson.
Myndin er tekin á 47. ársþingi UÍA, sem haldið var í Brúarásskóla 5. maí sl. og
sýnir hluta þingfulltrúa.
Skákfréttir:
Sveitakeppni taflfélaga
á Austurlandi