Austri - 31.05.1990, Blaðsíða 3
Egilsstöðum, 31. maí 1990.
AUSTRI
3
Þátttakendur á vinnuréttarnámskeiði Alþýðusambands Austurlands og Félagsmála-
skóla alþýðu. Myndin er tekin á Eiðum sl. föstudag.
Alþýðusamband Austurlands:
Námskeið í vinnu-
rétti á Eiðum
Dagana 23. til 25. maí sl. geng-
ust Alþýðusamband Austurlands
og Félagsmálaskóli alþýðu fyrir
námskeiði í vinnurétti, á Eiðum.
Námskeiðið var ætlað starfs-
mönnum stéttarfélaga og fólki,
sem situr í stjórnum stéttarfélaga.
Námsefni á námskeiðinu voru
einkum samningar stéttarfélaga,
lög þeirra og túlkanir á þessum
hlutum, t.d. um kjarasamninga,
verkföll, réttindi í veikinda- og
slysatilfellum, um orlof og barns-
burðarleyfi. Einnig réttindi vegna
veikinda, um uppsagnir úr starfi,
ráðningarsamninga og verksamn-
inga svo eitthvað sé nefnt.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var
Lára V. lúlíusdóttir, sem er lög-
fræðingur og framkvæmdastjóri
ASÍ.
Þátttakendur á námskeiðinu
voru 12 og voru þeir af svæðinu frá
Höfn í Hornafirði og alveg norður
á Þórshöfn, sem reyndar er ekki á
svæði Alþýðusambands Austur-
lands, en þaðan kom einn gestur.
Ekki hefur áður verið haldið
þess konar námskeið hér á Aust-
urlandi, en áður hafa t.d. verið
haldin hér sérstök námskeið fyrir
trúnaðarmenn stéttarfélaga.
Sigurður Ingvarsson forseti
Alþýðusambands Austurlands sá
um undirbúning námskeiðsins, en
stjórnandi þess var Bergþóra Ing-
ólfsdóttir.
G.I.
Fiskifélag íslands:
Næstmestum afla landað
á Seyðisfirði fyrstu fjóra
mánuði ársins
Heildarsjávarafli landsmanna í
apríl var 77.919 tonn samkvæmt
bráðabirgðatölum frá Fiskifélagi
fslands, en heildarafli í sama mán-
uði í fyrra var töluvert meiri eða
125.394 tonn.
Heildarafli landsmanna fyrstu
fjóra mánuði ársins var þá orðinn
858.222 tonn á móti 868.958
tonnum á sama tímabili í fyrra.
Heildarþorskafli í apríl sl. var
39.275 tonn á móti 51.522 tonnum
í apríl í fyrra. Þorskafli fyrstu fjóra
mánuði ársins var þá orðinn
135.764 tonn á móti 161.692
tonnum á sama tímabili í fyrra.
Ýsuafli var nú í apríl samtals 8.482
tonn á móti 7.182 tonnum í sama
mánuði í fyrra. Ufsaafli í apríl var
samtals 9.815 tonn, en 6.102 tonn í
apríl í fyrra. Karfaafli í apríl var
9.198 tonn, en 8.703 tonnn í sama
mánuði í fyrra. Grálúðuafli var
4.522 tonn í apríl, en 10.088 tonn í
apríl á síðasta ári. Loðnuafli var
enginn í apríl í ár, þar sem loðnu-
vertíð var lokið, en í apríl í fyrra
Apríl 1990
Bakkafjörður 186 tonn
Vopnafjörður 669 -
Borgarfjörður e. 122 -
Seyðisfjörður 31 -
Neskaupstaður 1.483 -
Eskifjörður 986 -
Reyðarfjörður 751 -
Fáskrúðsfjörður 1.514 -
Stöðvarfjörður 604 -
Breiðdalsvík 826 -
Djúpivogur 373 -
Höfn 2.488 -
veiddust 33.174 tonn af loðnu.
Heildarloðnuafli á vertíðinni
fyrstu þrjá mánuði ársins varð
616.295 tonn, en var alls 607.323
tonn á vertíðinni í janúar til apríl í
fyrra.
Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
hefur mestur afli borist á land í
Vestmannaeyjum alls 106.790
tonn. Seyðisfjörður er enn í öðru
sæti með 89.572 tonn, þrátt fyrir
það að fiskvinnsla hefur legið þar
niðri frá áramótum og afli togar-
anna þar fluttur út í gámum. Er sá
afli, sem landað hefur verið á
Seyðisfirði frá áramótum nær ein-
göngu loðnuafli. í þriðja sæti frá
áramótum er svo Eskifjörður með
72.356 tonn rétt á undan Siglufirði
í fjórða sæti með 71.558.
Hér fer á eftir listi yfir afla, sem
landað hefur verið á höfnum á
Austurlandi í apríl og í sama mán-
uði í fyrra. Einnig bráðabirgða-
tölur yfir heildarafla á sömu
stöðum fyrstu fjóra mánuði þessa
árs:
Apríl 1989 Jan. til apríl 1990
286 tonn 404 tonn
770 - 7.852 -
92 - 229 -
485 - 89.572 -
3.536 - 65.654 -
1.358 - 72.356 -
890 - 30.570 -
1.035 - 4.214 -
273 - 1.467 -
406 - 1.865 -
731 - 1.606 -
2.896 - 22.949 G.I.
Stólpi
tekur við
einnota
umbúðum
Stólpi, sem er verndaður vinnu-
staður Lyngási 12 á Egilsstöðum,
hefur nú tekið að sér að taka á
móti einnota umbúðum, svo sem
gosflöskum, plast- og áldósum
undan gosdrykkjum eða bjór og
einnota glerjum. Tekur Stólpi við
þessu hlutverki af Kaupfélagi Hér-
aðsbúa, sem áður sá um þettá fyrir
Endurvinnsluna hf., en KHB
aðstoðar þó Stólpa við að geyma
umbúðirnar og flytja þær.
Tekið skal fram að Stólpi tekur
ekki á móti plastbrúsum undan
ávaxtasafa eða djúsi, en öllum
umbúðum undan gosdrykkjum og
bjór. Fólk er hvatt til að telja og
flokka plast-, ál- og glerumbúðir
hverjar fyrir sig og er þá hægt að fá
umbúðirnar staðgreiddar. Tekið
er á móti umbúðum alla virka daga
frá kl. 9 til 16. Einnig má geta þess
að Stólpi framleiðir og selur skiltin
„Vinsamlegast dreptu á bílnum“,
sem nú sjást orðið víða við opin-
berar bygginar og fyrirtæki.
Fréttatilkynning.
Þverklettum 1, Egilsstöðum, sími 12002.
AUSTFIRÐINGAR - AUSTFIRÐINGAR
Allt í garðinn á einum stað.
GRÆNA TORGIÐ
Egilsstaðaskóla laugardaginn 2. júní kl. 13 til 16. Söluaðilar
verða með tré, runna, fjölærar plöntur, sumarblóm, græn-
meti, ávexti, áburð, garðáhöld, gangstéttarhellur og fleira.
Einnig verður garðyrkjufræðingur á vegum Garðyrkjufélags-
ins, sem veitir ráðgjöf.
Egilsstaðadeild Garðyrkjufélags íslands.
Ljósmyndasafnið
á Egilsstöðum:
Af hverjum
er myndin?
44
Mmnum
hvert annað á -
Spennum beltin!
aUMFERÐAR
RÁÐ
Bjarni Þorsteinsson ljósmyndaði. Bjarni tók myndir á Borgarfirði
1897-1900 og á Vopnafirði 1900-1903. Myndin er úr búi Gunnþór-
unnar Eiríksdóttur og Jóhanns Kristjánssonar Bakkagerði, Jökuls-
árhlíð.
Mynd nr. 38: í Austra 29/3 1990.
Guðrún Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, f. 17. des. 1895, d. 3. okt. 1930.
Bjó í Neskaupstað.
Mynd nr. 40: í Austra 29/3 1990.
Gunnlaugur Jóhannesson, vitavörður, Glettinganesi 1930-1944.
Búsáhaldadeild:
Gasgrill, kolagrill, grillkol, grilláhöld
ALLTÁ GRILLIÐ
n SW'ar'
° Vi6ld.
V0'0
Fatadeild:
Frá MELKA fyrir herra:
Sumarblússur, skyrtur og buxur.
Sumarbolir, stuttbuxur, sundfatnaður.
Úrval af ungbarnafatnaði.
Opið mánud. - fimmtud. kl. 9-18. Föstud. kl. 9-19.
Laugard. kl. 10-14. ygy
Kaupfélag Héraðsbúa
Egilsstöðum