Austri - 31.05.1990, Side 6
BBOMIS
býður betur!
Opið mánd. - föstud. kl. 13:00 til 18:00
Aukið vöruúrval.
Komið
og gerið góð kaup.
Egilsstöðum, 31. maí 1990.
21. tölublað.
©&P@ AKAI
EGILSSTÖÐUM ® 12020 alvoru tæki
Frá Sigurjóni í Ytri-Hlíð:
Nýtt fólk í hreppsnefnd
V opnafjarðarhrepps
Sigurjón Friðriksson
í hreppsnefnd-
arkosningum hér
voru fjórir listar í
boði. Úrslit urðu
þau, að B-listi
Framsóknarfélags
Vopnafjarðar
hlaut 213 atkvæði
og þrjá menn
kjörna. Þetta er
um 9% aukning frá síðustu sveit-
arstjórnarkosningum. D-listi sjálf-
stæðismanna hlaut 72 atkvæði og
einn mann kjörinn, og stendur
fylgi listans í stað frá síðustu kosn-
ingum. G-listi Alþýðubandalags
Vopnafjarðar hlaut að þessu sinni
142 atkvæði og tvo menn kjörna.
Töpuðu þeir um 12% atkvæða frá
síðustu kosningum. H-listi óháðra
kjósenda hlaut 129 atkvæði og
einn mann kjörinn, og jók listinn
fylgi sitt um nálægt því 12 af
hundraði.
Þess má geta, að nú eftir þessar
kosningar eru aðeins þrír af núver-
andi hreppsnefndarmönnum, sem
einnig sátu í hreppsnefnd á síðasta
kjörtímabili, og þar með fjórir
nýir hreppsnefndarmenn, sem
ekki hafa komið við sögu í sveitar-
stjórn áður.
Af B-lista voru kjörnir: Kristján
Magnússon oddviti, Friðbjörn H.
Guðmundsson og Anna Pála Vígl-
undsdóttir. Af D-lista var kjörinn
Steindór Sveinsson. Af G-lista
voru kjörin Aðalbjörn Björnsson
og Sigrún Oddsdóttir, og af H-lista
Framhald á bls. 2.
Hrafnsungamir sem við höfum fylgst með að undanförnu eru nú orðnir mánaðar gamlir. Það
liggur við að hreiðrið, sem kallast laupur, sé orðið of lítið, því þeir dafna svo vel. Á innfelldu
myndinni er krummamamma mjög svo óhress með heimsókn ljósmyndarans. Austramynd/óii.
Landgræðsluátak:
Nú er að hefjast hið svokallaða
landgræðsluátak, sem m.a. var
kynnt í sjónvarpi fyrir um það bil
mánuði og safnað hefur verið fjár
til m.a. með sölu „grænu greinar-
innar“.
Að sögn Orra Hrafnkelssonar,
hjá Skógræktarfélagi Austurlands,
er þessu þannig háttað, að þeir
sem taka þátt í þessu átaki heima í
héruðunum fá trjáplöntur ókeypis,
en eiga að sjá um að gróðursetja
þær.
Hér á Fljótsdalshéraði hafa þrjú
svæði verið valin til að planta í
trjáplöntum, þar sem eiga að vaxa
upp hinir svokölluðu landgræðslu-
skógar. í fyrsta lagi er um að ræða
svæði fyrir utan Eyvindará, við
minnismerki um Sigfús Sigfússon
þjóðsagnaritara. í öðru lagi er
svæði í svokölluðum Ekkjufells-
ásum neðan Fellavegar og and-
spænis Egilsstöðum. Er þar mis-
hæðótt land með klettaásum, sem
skemmtilegt er til útivistar. í
þriðja lagi er svo svæði við Brúar-
ásskóla.
Nú síðastliðinn laugardag var
plantað í svæðið utan við Eyvind-
ará og einnig var byrjað að planta
í svæðið í Ekkjufellsásnum, en
eftir er að planta í svæðið við Brú-
arásskóla. Er stefnt að því að fara
þangað til gróðursetningar um
hvítasunnuna.
Að sögn Orra stóð til að planta í
þessi þrjú svæði alls um 30.000
trjáplöntum, og er þar eingöngu
um birki að ræða, en eitthvað
minna magn hefur fengist, því
plöntur þær, sem landsátakið ætl-
aði að fá úr þeirri ræktun, sem í
Bakkafjörður:
„Þetta gengur alveg skínandi,
það er búinn að vera mokafli“,
sagði Sjöfn Aðalsteinsdóttir, verk-
stjóri hjá Útver hf. á Bakkafirði,
þegar Áustri hafði samband við
hana st. föstudag. Hún sagði að
bátarnir hefðu oft farið upp í þrjár
sjóferðir á dag að undanförnu og
t.d. hefðu fjögra tonna trillur verið
með upp í 7 til 8 tonn yfir daginn.
Stutt hefur verið að sækja, því
fiskurinn hefur nánast fengist við
bæjardyrnar eða þar í firðinum. Er
það aðallega góður þorskur, sem
veiddur hefur verið í net og hefur
hann verið á takmörkuðum
svæðum eða blettum.
Sjöfn sagði, að mikil vinna hefði
verið í saltfiskverkuninni hjá þeim
að undanförnu, og hefði verið
unnið bæði á laugardögum og
sunnudögum og oft frameftir
kvöldum til að hafa undan að
verka aflann, en heldur hefur
dregið úr aflanum nú síðustu
daga.
Nú vinna á milli 25 og 30 manns
hjá Útver hf. og er hluti af því
skólafólk þar úr hreppnum. Sagði
Sjöfn, að unglingarnir hefðu alveg
bjargað þeim, er þeir komu til
vinnu eftir að skólum lauk, og væri
því minni þörf fyrir aðkomufólk til
vinnu en ella. Hún sagði, að
nokkrir unglingar frá Vopnafirði
hefðu verið þar f vinnu meðan
mest var að gera, en þeir væru nú
að tínast burtu aftur.
Það sem einkum veldur
mönnum nú áhyggjum á Bakka-
firði er, að óðum gengur á fisk-
veiðikvóta bátanna, þegar svona
vel veiðist, og a.m.k. tveir bátar
þar munu vera búnir með kvótann
og hafa orðið að hætta af þeim
sökum að sögn Sjafnar. Bjóst hún
við, að fleiri bátar myndu klára
kvóta sinn áður en langt liði, en
síðast liðinn hálfan mánuð hafa
um 15 bátar lagt upp afla sinn hjá
Útveri hf. g.i.
Að undanförnu hefur verið mokafli af
góðum þorski í Bakkafirði. Fjögra
tonna trillur hafa verið með 7-8 tonn á
dag.
KURL
Steinþór Eiríksson
með málverkasýningu
Steinþór Eiríksson, listmál-
ari, opnaði málverkasýningu í
húsakynnum RARIK á Egils-
stöðum á uppstigningardag,
en hann hefur áður haldið hér
margar málverkasýningar á
liðnum árum.
Að þessu sinni sýnir Stein-
þór 26 olíumálverk, sem nær
öll eru máluð sl. vetur og eru
það landslagsmyndir, flestar
málaðar af stöðum hér á Aust-
urlandi. Sýningin er sölusýn-
ing og höfðu nokkrar myndir
þegar selst, er Austri hafði
samband við Steinþór sl.
mánudag. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 17 til 22, en
frá kl. 14 til 22 um helgar, og
verður hún að minnsta kosti
opin fram að hvítasunnu og
jafnvel lengur.
Steinþór við eitt verka sinna.
Speki
Það erfiðasta í lífinu er að
vita hvaða brýr maður á að
fara yfir og hverjar á að
brenna að baki sér.
Fjögur krummabörn
gangi hefur verið í þessu skyni,
reyndust eitthvað færri en stefnt
var að, og því varð að fækka
eitthvað þeim plöntum, sem komu
í hlut hvers aðila um sig.
Þetta landgræðsluátak með
ræktun landgræðsluskóga er nú að
hefjast víða um land og m.a.
verður plantað trjám í eða við
flesta þéttbýlisstaði á Austurlandi.
Orri Hrafnkelsson taldi, að hér
væri um merkilegan áfanga að
ræða, þar sem reynt væri að virkja
þann áhuga, sem virtist vera hjá
almenningi til að styðja þetta mál.
Hann sagði, að vonast væri til að
framhald gæti orðið á þessu átaki á
næstu árum. Yrði þá væntanlega
haldið áfram að safna fé til þessa
málefnis hjá almenningi, þar sem
einstaklingar, félög og fyrirtæki
gætu lagt málinu lið með frjálsum
framlögum, og þannig stuðlað að
því að skila komandi kynslóðum
betra og gróðursælla landi.
G.I.
Þessi litla planta kúrir sunnan við
minnismerkið um Sigfús Sigfússon
þjóðsagnaritara, við Eyvindarána, en
henni var plantað fyrir fáum dögum.
Austram./B
Mokafli í net
að undanförnu
Ræktun
landgræðsluskóga