Austri - 21.06.1990, Blaðsíða 3
Egilsstöðum, 21. júní 1990.
AUSTRI
3
Egilsstaðir:
Leikj anámskeið
fyrir börn
íþróttafélagið Höttur á Egils-
stöðum stendur í sumar fyrir
íþrótta- og leikjanámskeiðum fyrir
börn á aldrinum 6 til 12 ára.
Félagsmálaráð Egilsstaðabæjar
styrkir námskeiðin fjárhagslega og
einnig hafa Mjólkurdagsnefnd og
heildverslunin K. Ólafsson í
Reykjavík veitt styrki til að kaupa
boli, sem börnin fá afhenta við lok
námskeiðsins.
Fyrra námskeiðið af tveimur
fyrirhuguðum hófst 4. júní sl. og
stóð það í tvær vikur og lauk sl.
föstudag.
Alls tóku rúmlega 50 börn þátt í
þessu námskeiði. Var þeim skipt
niður í þrjá flokka. Voru 13 börn
10 til 12 ára á námskeiðinu eftir
hádegi frá kl. 13 til 17. Fyrir
hádegi frá kl. 10 til 12 voru svo 39
börn á aldrinum 6 til 9 ára, og var
einn leiðbeinandi með hvorn
flokk.
Á námskeiðinu var farið í ýmsa
leiki og íþróttir, en einnig voru þar
ýmsar uppákomur. Til dæmis var
einn daginn farið í heimsókn í
fjósið á Egilsstaðabúinu og dýrin
þar skoðuð. Mjólkursamlagið var
skoðað og fengin hressing þar. Þá
var einn daginn farið til að gróður-
setja trjáplöntur í Ekkjufellslandi
undir leiðsögn skógræktarmanns.
í>á heimsóttu krakkarnir hesta-
leiguna á Skipalæk og fengu allir
að fara á hestbak og að leika sér í
hlöðunni þar. Var heimsóknin að
Skipalæk einhver vinsælasti liður
námskeiðsins. Námskeiðinu lauk
svo með pylsuveislu og allir þátt-
takendur fengu bol og viðurkenn-
ingarskjal fyrir þátttökuna.
Hilmar Gunnlaugsson þjálfari,
sem stjórnaði námskeiðinu, taldi
að það hefði tekist mjög vel, og
ekki væri annað að heyra, en
börnin og foreldrar þeirra hefðu
verið ánægð með það.
Annað námskeið með svipuðu
sniði hefst 25. júní, ef næg þátt-
taka fæst, og stendur það líka í
tvær vikur. G.I.
TENGSL
reykínga á heimilum
og reykinga barna
Miklu meiri líkur eru til að börn á reykingaheimilum byrji
að reykja en börn á heimilum þar sem enginn reykir. Samkvæmt
íslenskum rannsóknum er þessi hætta að minnsta kosti tvöfold ef
foreldrar reykja og þreföld ef systkini reykja. Ein af ástæðunum
getur verið sú að börnin eru send eftir tóbaki og venjast við að
kauþa það og handfjatla.
AUnnst er áhættan
ef enginn reykir á heimilinu.
Áhættan er tvöfóld
ef foreldrar reykja.
Áhættan er þrefóld
ef systkini reykja.
Láttu ekki barnið bera tóbakið fyrir þig.
T óbaksvarnanefnd
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta
Er ekki kominn
sumarfríið?
Eigum á lagerj
sóluðum og s
dekk og olíurfyrir
kjum, nýjum og
targerðirbíla.
Þverklettum 1, Egilsstöðum S 12002.
Fellabær:
Námskeið fyrir
vistforeldra
á Austurlandi
Dagana 15. og 16. júní sl. var
haldið í Fellaskóla í Fellabæ nám-
skeið fyrir vistforeldra á Austur-
landi, en svo kallast fólk, sem vill
taka börn í sumardvöl í sveit.
Það var Stéttarsamband bænda,
sem stóð fyrir þessu námskeiði í
samráði við Landssamtök vistfor-
eldra, sem stofnuð voru í fyrra, en
námskeiðið var haldið hér að ósk
Búnaðarsambands Austurlands.
Halldóra Ólafsdóttir, starfs-
maður Stéttarsambands bænda,
sem stjórnaði námskeiðinu, sagði í
viðtali við Austra, að þátttakendur
í þessu námskeiði hefðu verið 19
víðs vegar af Austurlandi. Kennt
var tvo heila daga eða 24 kennslu-
stundir alls. Kennarar voru m.a.
tveir félagsráðgjafar frá Félags-
málastofnun Reykjavíkur. Kennt
er um væntingar barnsins áður en
það kemur í sveitina. Rætt er um
sumardvölina sjálfa, vistforeldrana
og hlutverk þeirra. Einnig er
kennt um tryggingamál, eldvarnir
og skyndihjálp. Þá er einnig
kennsla um mataræði og næringu
svo það helsta sé nefnt.
Það fólk, sem vill fá börn til
sumardvalar í sveit í gegn um
Stéttarsamband bænda eða frá
Félagsmálastofnun Reykjavíkur
verður að hafa farið á svona nám-
skeið áður. Hafa sams konar nám-
skeið nú verið haldin í flestum
landshlutum, en þetta er í fyrsta
skipti, sem slíkt námskeið er
haldið á Austurlandi. Reynt er að
stilla þátttökugjöldum í hóf og
greiðir Stéttarsambandið hluta
kostnaðar við námskeiðið.
Halldóra Ólafsdóttir sér einnig
um sumardvalir barna á vegum
Stéttarsambands bænda, en hún
segir, að foreldrar barna, sem vilja
koma börnum sínum í sveit komi
venjulega til hennar og fái sjálfir
að velja á hvaða bæ barn þeirra
fari, og beri þannig sjálfir ábyrgð á
valinu á vistforeldrum. G.I.
AUSTFJARÐALEIÐ HF. © 71713
SUMARAÆTLUN
21. maí - 9. september 1990
Mánudaga, þriðjudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga Föstudaga
845
920
940
1010
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Egilsstaðaflugvelli
S 71654
S 61426
S 41200
0 11211
*-|220
*-)-|40
*1 1 20
*1Q50
8°o
840
855
925
Neskaupstað S 71654
Eskifirði S 61426
Reyðarfirði S 41200
Egilsstaðaflugvelli S11211
* 11 3°
*1Q50
*1Q3°
*10°°
‘Aætlaður tími, ekki bindandi.
SKOÐUNARFERÐIR FRÁ EGILSSTÖÐUM
1. júlí -15. ágúst
Egilsstaðir - Mjóifjörður - Daiatangi - Egilsstaðir
Kl. 1050 Brottför frá Egilsstaðaflugvelli alla fimmtudaga með áætlunarrútunni til Neskaupstaðar,
og þaðan með báti til Mjóafjarðar kl. 630
Kl. 1120 Alla föstudaga frá Hótel Valaskjálf S 11500
EGILSSTAÐIR - HALLORMSSTAÐUR mán mið fös
Frá Hótel Valaskjálf Egilsstöðum S 11500 1445 1445 19°°
Frá Hótel Eddu Hallormsstað S 11705 1535 1530 1930
VEFNAÐARVÖRUDEILD
RUCANOIR krumpugallar nýkomnir.
MELKA herrafatnaður: sumarblússur, buxur,
peysur og skyrtur.
PANTHER strigaskór á alla fjölskylduna,
hagstætt verð.
r r
BUSAHALDADEILD
Viðlegubúnaður: tjöld, svefnpokar, dýnur.
Kælibox 3 stærðir, matarsett 3 gerðir,
pottasett 3 gerðir.
Prímusar og gas.
Grill og grilláhöld.
Útileikföng í úrvali:
Flugdrekar, flugvélar,
tennissett, golfsett.
Plastleikföng í miklu úrvali.
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBUA
Egilsstöðum