Austri - 21.06.1990, Blaðsíða 5
Egilsstöðum, 21. júní 1990.
AUSTRI
5
17. júní á Egilsstöðum
Hér sést yfir hluta hátíðargesta á Egilsstöðum 17. júní síðastliðinn. Óvíða í þéttbýli er jafn
skemmtilegt útisvæði til hátíðahalda umvafið trjágróðri og í skjóli undir hárri klettahæð.
Hátíðahöldin voru með hefðbundnu sniði og voru þau vel sótt af bæjarbúum. Að loknu
ávarpi bæjarstjórans og fjallkonunnar kom fjallkallinn óvænt fram á sviðið með skautabúning
á höfði, sem þó venjulega er notaður sem fótabúnaður, og flutti kvæði í gamansömum stíl.
Einnig voru leiklesnir kaflar úr Kristnihaldi undir Jökli og margt fleira var til gamans gert.
Veður var þurrt en lítið sá til sólar þennan dag. Að lokinni útiskemmtun var kvenfélagið Blá-
klukka með kaffisölu og meðlæti í Hótel Valaskjálf, og þar söng Karlakór Fljótsdalshéraðs
nokkur lög við góðar undirtektir.
Austramynd/B
Aðeins ein jörð
Nú er sumarið að koma til okkar
hér á íslandi og því fylgir jafnan
aukin bjartsýni og trú á framtíð-
ina. Úti í hinum stóra heimi hafa
einnig orðið ýmsar breytingar að
undanförnu, sem gefa tilefni til
aukinnar bjartsýni. Landamæri
austur og vestur Evrópu hafa opn-
ast og samskiptin milli landanna
hafa orðið vinsamlegri. í S-Afríku
er mikið að gerast og hefur bar-
áttan þar gegn kynþáttaaðskilnað-
arstefnunni loks borið umtals-
verðan árangur. Samtökum stjórn-
arandstæðinga er nú leyft að
starfa, eftir áratugalangt bann.
Pólitískir fangar hafa fengið frelsi,
þar á meðal hinn kunni leiðtogi
blökkumanna Nelson Mandela.
Og Namibía, hin fámenna ná-
grannaþjóð S-Afríku, fagnaði
nýfengnu sjálfstæði fyrir nokkrum
vikum. Þar með hefur síðasta
nýlenda Afríku fengið frelsi.
En víða um heim er þróunin á
annan veg. í Eþíópíu hefur hung-
urvofan enn einu sinni haldið inn-
reið sína og í Súdan, Mósambík og
Afghanistan geysa borgarastyrj-
aldir. Á fleiri stöðum í heiminum
er ástandið svipað þessu. Og ekki
hefur tekist að draga úr fátæktinni
í heiminum. A.m.k. 800 milljónir
manna lifa við algera örbirgð, þar
af eru um 500 milljónir manna svo
snauðir að þeir þjást af stöðugri
vannæringu. Petta fólk er dreift
um allan þriðja heiminn. Það
reynir að lifa af í fátæktarhverfum
stórborganna, örsnauðum sveita-
þorpum eða flóttamannabúðum.
Pað er ekki margt sem bendir til
þess að framtíð þeirra sé björt.
Mörg þróunarlönd hafa hafnað í
þvílíkum vítahring skulda, staðn-
aðs efnahagslífs og rangra póli-
tískra ákvarðana að erfitt er að sjá
leiðir til úrbóta. Skuldabyrðin er
eitt stærsta vandamál þessara
ríkja, mörg þeirra greiða mun
meira til alþjóðastofnana og iðn-
ríkja í vexti og afborganir af
skuldum, heldur en iðnríkin og
alþjóðastofnanirnar greiða í þró-
unaraðstoð til þeirra. Verðið á
útflutningsvörum flestra þróunar-
landa er ákaflega óstöðugt og fer
lækkandi. Afleiðingarnar eru
minnkandi tekjur og minnkandi
kaupmáttur íbúanna. Skulda-
kreppan bitnar í nánast öllum til-
fellum harðast á fátækasta fólkinu.
Fátæktin er eitt alvarlegasta
vandamál heimsins. Okkur getur
virst það svo stórt og vonlaust að
okkur fallist algerlega hendur. En
við megum ekki gleyma því að á
bak við tölur um efnahagsvanda,
skuldakreppur og fátækt er lifandi
fólk, sem er svo sannarlega þess
virði að styðja. Með því að senda
peninga til hinna ýmsu hjálpar-
verkefna, og einnig með því að
sýna skilning, samstöðu og síðast
en ekki síst vilja til breytinga, sem
leiða til jafnari skiptingar á auð-
lindum jarðarinnar. Jörðin er sam-
eign okkar allra og við berum sam-
eiginlega ábyrgð á því að allir
íbúar jarðar fái að njóta gæða
hennar. Þótt enginn geti hjálpað
öllum þeim sem líða skort, getum
við öll hjálpað einhverjum.
Með ósk um gleðilegt sumar,
Þórdís Sigurðardóttir
Úr fréttabréfi Hjálparstofn-
unar kirkjunnar.
Mjög ítarleg umferðartalning er nú í gangi hér á Austur-
landi og eru það starfsmenn Vegagerðar Ríkisins sem sjá um
verkið. Slík talning er gerð á fjögurra ára fresti í hverjum
landsfjórðungi. Niðurstöðutalna er að vænta seint í haust.
Myndin hér að ofan var tekin fyrir fáum dögum á gatna-
mótum Fagradalsbrautar og Seyðisfjarðarvegar en þar er
staðsettur einn sjálfvirkur teljari. Austramynd/B
Bryggjiihátíð
á Reyðarfirði
30. júní
Laugardaginn 30. júní nk.
verður efnt til mikillar bryggjuhá-
tíðar á hafnarsvæðinu á Reyðar-
firði. Hátíðin hefst kl. 14 með
skrúðgöngu og leik lúðrasveitar,
en síðan verður skemmtun á hafn-
arsvæðinu allan eftirmiðdaginn og
langt fram á nótt með fjölda dag-
skráratriða.
Helstu dagskrárliðir á bryggju-
hátíðinni verða trúbadorkeppni,
trúðar skemmta börnunum, þá
verða þjóðdansar, þar sem dans-
flokkur frá Fiðrildunum sýnir
þjóðdansa. Einnig verður tívolí og
selt verður kakó, vöfflur og kaffi,
og þar verður líka heilmikið úti-
grill. Þá er vonast til að hátíðar-
gestir geti farið í smá siglingu á
firðinum.
Kaupfélag Héraðsbúa á Reyðar-
firði hefur góðfúslega lánað stóra
skemmu við höfnina, og verða þar
haldnir tónleikar um kvöldið. Þar
spila og skemmta Bubbi Morthens
og hljómsveitirnar Rokkbandið
frá Akureyri og unglingahljóm-
sveitin Trassarnir. Gefst þar gott
tækifæri til að dansa og skemmta
sér fram eftir nóttu.
Aðgangur inn á hátíðarsvæðið
um daginn verður ókeypis, en selt
verður inn á tónleikana um
kvöldið.
Það eru Kvenfélag Reyðarfjarð-
ar, Lionsklúbbur Reyðarfjarðar,
JC á Reyðarfirði og Ungmennafé-
lagið á staðnum, sem standa fyrir
þessari bryggjuhátíð, og er þetta í
annað sinn, sem slík hátíð er
haldin á Reyðarfirði. Að sögn Álf-
heiðar Hjaltadóttur frá Kvenfélagi
Reyðarfjarðar vonast félögin til,
að þessi bryggjuhátíð geti orðið að
árlegum viðburði á Reyðarfirði
þennan dag. Sagði hún, að upplagt
væri t.d. fyrir foreldra að fara með
börnum sínum á þessa útihátíð, en
þar á að vera eitthvað til skemmt-
unar við allra hæfi. G.I.
Góð stemmning var á bryggjuhátíðinni sl. sumar á Reyðarfirði, en myndin hér að
ofan var tekin þá. Austramynd
Frá Félagi
Borgfírðinga (eystra)
í Reykjavík
Aðalfundur Félags Borgfirðinga
(eystra) í Reykjavík var haldinn
18. mars 1990. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa fór fram stjórnar-
kjör. Aðeins var skipt um einn í
stjórninni. Björg Sigurðardóttir
gekk úr stjórn en inn kom Hrönn
Guðmundsdóttir og tók hún við
ritarastarfinu af Björgu. Áfram í
stjórn eru: Jóhann Berg Þorgeirs-
son og Ingi B. Halldórsson með-
stjórnendur, Elísabet Sveinsdóttir
gjaldkeri og Anna Sigurðardóttir
formaður.
Þar sem þokkaleg afkoma var
hjá félaginu og í tilefni 40 ára
afmælis félagsins á sl. ári var
ákveðið að gefa Slysavarnardeild-
inni Sveinunga á Borgarfirði ein-
hver hjálpartæki, sem þeir myndu
sjálfir velja, fyrir u.þ.b. 40 þúsund
krónur. Slysavarnardeildin óskaði
helst eftir að fá spelkur og hál-
skraga sem notað er við flutning á
slösuðu fólki. Hefur deildin fengið
pakkann sendan og vonum við að
hún njóti góðs af, en jafnframt að
hún þurfi ekki oft að nota svona
útbúnað.
Þann 19. nóvember 1989 héld-
um við upp á 40 ára afmæli félags-
ins með kaffisamsæti í Sóknar-
salnum í Skipholti 50A. Vorum
við mjög ánægð með það hve
margir heiðruðu félagið með nær-
veru sinni, en milli 170 og 180
manns drukku hjá okkur kaffi.
Við það tækifæri gaf „gamall
félagi“ sem ekki vildi láta nafns
síns getið, félaginu 15.500,-
krónur og á þorrablótinu í vetur
afhenti Ásta Jónsdóttir frá Borgar-
firði félaginu gjöf frá kvenfélaginu
Einingu, var það gullfalleg fána-
stöng búin til hjá Álfasteini.
í tilefni afmælisins gaf félagið út
veglegt afmælisrit sem er til sölu
hjá okkur í stjórninni og hjá
nokkrum velunnurum félagsins
s.s. Ingunni Ólafsdóttur, Árna
Halldórssyni, Sigurði Ó. Pálssyni
og Óla Jóhannsyni. Ef ágóði
verður af sölu ritsins mun hann
renna til Sögusjóðs Borgarfjarðar
sem stendur að útgáfu á Sögu
Borgarfjarðar.
Með haustinu er fyrirhugað að
fara hópferð í Þórsmörk og von-
umst við til að hægt verði að
endurvekja þá skemmtun sem
slíkar ferðir voru á árum áður hjá
félaginu; síðan munum við einnig
spila félagsvist og bjóða eldra fólk-
inu til kaffisamsætis í haust.
f.h. Félags Borgfirðinga (eystra)
Anna Sigurðardóttir