Austri - 21.06.1990, Blaðsíða 8
Bfíoms
býður betur!
Opið mánd. - föstud. kl. 13:00 til 18:00
Aukið
vöruúrval.
Komið og gerið
góð kaup.
Egilsstöðum, 21. júní 1990.
24. tölublað.
Egilsstaðir:
Opnun áfengisútsölu
í sjónmáli
„Ég vil nú ekki gefa upp neina
tímasetningu á því hvenær útsala
verður opnuð á Egilsstöðum, en
ég geri ráð fyrir því að þegar fer að
líða á sumarið þá komi ég austur
og athugi málið. Þaö var á okkar
áætlun að opna útsölu á Egils-
stöðum í ár en það er nú ekki
alveg víst að af því verði, en það er
gefið mál að við munum semja
einhverja áætlun. Hvort hún svo
kemst í framkvæmd hérna megin
eða hinum megin við áramótin er
svo annað mál“, sagði Höskuldur
Jónsson, forstjóri ÁTVR, er blm.
spurðist fyrir um opnun áfengisút-
sölu á Egilsstöðum, en nú eru um
tvö ár frá því að samþykkt var í
almennri atkvæðagreiðslu á
staðnum að óska eftir að opnuð
yrði áfengisútsala.
Þá sagði Höskuldur að opnun
útsölu á Egilsstöðum tengdist
óhjákvæmilega útsölunni á Seyðis-
firði og framtíð hennar, en sala
þar dróst verulega saman þegar
opnuð var útsala í Neskaupstað.
Sagði Höskuldur það gefið mál að
salan á Seyðisfirði myndi fyrst og
fremst þjóna bæjarbúum einum
eftir opnun verslunar á Egilsstöð-
um. Því tengdust þessi útsölumál á
Egilsstöðum og Seyðisfirði. B.
Búast má við að ferðum Héraðsbúa yfir
„Hólinn" fækki nokkuð eftir opnun
áfengisútsölu á Egilsstöðum.
Reyðarfjörður:
Bryggjiihátíð
30. júní
Efnt verður til svokallaðrar Bryggjuhátíðar í annað sinn á Reyðarfirði
30. júní nk. og verður þar boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá frá
kl. 14:00 og fram á nótt. Sjá nánar í frétt á bls. 5.
F áskrúðsfj örður:
Annar lögreglumaður
í fast starf og ný
lögreglubifreið
Aðeins einn fastráðinn lögreglu-
þjónn hefur verið staðsettur á Fá-
skrúðsfirði á undanförnum árum,
og hefur hann því nánast verið á
vakt allan sólarhringinn.
Hjá lögreglunni á Fáskrúðsfirði
fengust þær upplýsingar sl. föstu-
dag, að fyrir um það bil mánuði
hefði verið bætt við öðrum lög-
reglumanni í fullt starf og yrðu því
tveir lögreglumenn starfandi þar
framvegis. Ganga þeir nú 8 tíma
vaktir og geta yfirleitt farið í helg-
arfrí til skiptis. Er þetta mikil
breyting til batnaðar að mati lög-
reglunnar.
Lögreglan á Fáskrúðsfirði á að
sinna útköllum og löggæslu á öllu
svæðinu norðan við Eyri í Reyðar-
firði og suður í Geithellnahrepp,
svo oft fylgir starfinu mikill akstur.
Hefur komið fyrir að akstur hafi
farið upp í um 800 km á sólarhring
að sögn lögreglunnar.
Ný lögreglubifreið
Nýlega fékk lögreglan á Fá-
skrúðsfirði nýja bifreið, af gerð-
inni Toyota Corolla, til notkunar,
og vildu lögreglumennirnir lýsa
ánægju sinni með að fá þennan
nýja lögreglubíl, svo þeir gætu
hvílt eitthvað gamla Ford-
jeppann, sem notaður hefur verið
til þessa. Gamli Ford-jeppinn
verður þó notaður áfram t.d. við
löggæslu á dansleikjum, þar sem
hægt er að setja menn inn í hann
til gæslu. Á Fáskrúðsfirði eru
einnig tveir fangaklefar. g.i.
Laxyeiðitíminn
nálgast
Nú styttist óðum í það að lax-
veiði megi hefjast hér austanlands.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hefst veiði í Vesturdalsá í Vopna-
firði fyrstu dagana í júlí. Þar eru
leyfðar þrjár stangir samtímis. Þar
veiddust um 220 laxar í fyrra, sem
mun vera nálægt meðallagi.
Hofsá í Vopnafirði verður vænt-
anlega opnuð fyrir veiði rétt fyrir
mánaðamótin júní/júlí, en Sunnu-
dalsá eitthvað seinna. í fyrra
veiddust um 870 laxar í Hofsá,
sem mun hafa verið tæplega í með-
allagi, en veiði þar hefur farið upp
í um 1700 laxa í bestu árum.
Veiðileyfi í Hofsá selur Haraldur
Jónsson bóndi á Einarsstöðum.
Laxveiði í Breiðdalsá hefst 20.
júní. Á svæði I og II eru leyfðar 4
stangir og ein stöng á svæði III,
sem er á vatnasvæði Tinnu í
Norðurdal. Svæði IV opnar ekki
fyrr en 15. júlí og svæði V 1. ágúst.
Veiðileyfi kosta 4300 kr. á dag til
30. júní, en 6300 kr. á dag frá 1.
júlí, en skylda er að kaupa tvo
daga saman. Veiðileyfi á silunga-
svæðið kostar 1700 kr. og þar er
hægt að kaupa leyfi fyrir einn dag í
senn. Veiðileyfi eru seld á Hótel
Bláfelli.
Veiði í Selfljóti og Gilsá hefst
20. júní og eru veiðileyfi seld hjá
Ferðamiðstöð Austurlands á
Egilsstöðum. G.i.
Orlofshús:
Starfsmannafélag
Landsbankans byggir
Á myndinni hér að ofan sjást fimm af sex
orlofshúsum Starfsmannafélags Lands-
bankans sem verið er að byggja í svokall-
aðri Stóruvík við Löginn skammt innan
Egilsstaða. Húsin eru frá Trésmiðju Hjót-
sdalshéraðs og verða þau afhent fullbúin
um miðjan næsta mánuð. Töluverð eftir-
spurn er eftir landi til bygginga sumarhúsa
víða á Héraði og má geta þess að í Valla-
hreppi eru nú um 60 orlofshús og liggur
fyrir umsók um byggingu átta til viðbót-
ar. Austram./B.
Egilsstaðaflugvöllur:
Framkvæmdir hefjast
síöar en áformað var
Samkvæmt upplýsingum frá Ing-
ólfi Arnarsyni, umdæmisstjóra
Flugmálastjórnar á Austurlandi,
hefur orðið nokkur seinkun á því
að framkvæmdir við fjórða áfanga
nýja flugvallarins á Egilsstöðum
geti hafist, og er það einkum
vegna erfiðrar fjárhagsstöðu Flug-
málastjórnar. Engu að síður
kvaðst Ingólfur búast við því , að
þeim verkefnum, sem ljúka átti
við flugvallargerðina á þessu ári,
yrði lokið á árinu, þótt það yrði
eitthvað síðar en áformað var.
Nú eru þau gögn, sem vinna
þarf fyrir þennan fjórða áfanga í
lokavinnslu og verða væntanlega
tilbúin í næstu viku. Verður þá
væntanlega hægt að taka ákvarð-
anir um framhald málsins.
í fjórða áfanga, sem til stendur
að vinna á þessu ári, eins og fyrr
segir, á að skipta um jarðveg í
flugvélarstæðum og koma fyrir
öllum röralögnum í brautarfylling-
unni, auk þess sem gengið verður
betur frá öryggissvæðum meðfram
flugbrautinni og þau jöfnuð, svo
það helsta sé nefnt.
G.i.
KURL
Sjónvarp
Jónas Jónsson, búnaðar-
málastjóri, hefur að undan-
förnu skrifað greinar um land-
búnaðarmál í Tímann. í máli
hans kemur m.a. fram gagn-
rýni á fréttastofu sjónvarpsins
fyrir óvilhallan fréttaflutning
um landbúnaðarmál. Nefnir
hann nokkur dæmi máli sínu
til stuðnings og er víst af nógu
að taka. Um myndbirtingar
sjónvarpsins skrifar hann svo:
„Haugakjötsmyndir sínar er
ríkissjónvarpið búið að sýna
svo oft að hreinum undrum
sætir. Eftir sífellda birtingu
þessa ljóta myndefnis að
dæma, mætti ætla að það væri
árlegur ef ekki enn algengari
viðburður að góðum mat væri
hent á hauga á íslandi. Erfitt
er að skýra ást einstakra
fréttamanna á myndum af
þeim leiða atburði þegar
menn neyddust til þess fyrir
um þremur árum að henda
nokkru af ærkjöti og gömlum
frampörtum öðruvísi en þeim
sé fróun að því að sverta land-
búnaðinn. Er önnur skýring á
því?"
Þessi skrif Jónasar leiða
hugann að annarri mjög svo
algengri myndbirtingu frétta-
manna ríkissjónvarpsins þ.e.
þegar fjallað er um hvalveiðar
okkar íslendinga og baráttu
okkar fyrir því að ráða sjálf
nýtingu náttúruauðlinda
okkar, og eru þá sjávar-
spendýr að sjálfsögðu þar
innifalin. Einhverra hluta
vegna er það nánast regla hjá
fréttastofu sjónvarpsins þegar
fjallað er um þessar veiðar,
eða mál þeim tengd, að sýna
þá myndefni af nýskotnum
hval fljótandi í eigin blóði eða
þá hvar verið er að skera þá
langs og þvers uppi í Hval-
firði. Sumum kann að finnast
þetta eðlilegar myndbirtingar,
en mætti ekki alveg eins birta
myndir frá fínu veitingahúsi í
Japan, þar sem viðskiptavinir
þess eru að bragða á hval-
kjöti, þessari vinsælu og dýru
útflutningsvöru? Myndirnar
sem birtast í sjónvarpinu eru
styrkur þess og áhrifamáttur,
frekar en hið talaða orð. Því
þarf að vandá valið á því
myndefni, sem sent er út með
fréttum.
Skop
Læknirinn hringdi æstur til
eins sjúklings síns: — Ávís-
unin yðar kom aftur frá bank-
anum.
— Það er allt í lagi, svaraði
hinn.
— Ég fékk flensuna líka
aftur.
★
— Jæja, Jónsi. Viltu nú
segja mér hvers vegna ég
flengdi þig?
— Þetta var líkt þér. Að
berja mig fyrst sundur og
saman og muna svo ekki hvers
vegna.