Austri


Austri - 26.07.1990, Blaðsíða 2

Austri - 26.07.1990, Blaðsíða 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 26. júlí 1990. Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi Skrifstofa Austra Lyngási 1, 700 Egilsstaðir, pósthólf 73 S 97-11984 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson Útgáfustjóri: Broddi Bjarni Bjarnason Auglýsingastjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir Blaðamaður: Guðgeir Ingvarsson Auglýsinga- og áskriftarsími: 97-11984 Áskrift kr. 335.- á mánuði. Lausasöluverð kr. 90.- Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum S 97-11449 Austri kemur út á fimmtudögum. Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 á mánudagsmorgnum. Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Veikleiki en ekki styrkur „Formennska í Sjálfstæðisflokknum er miskunnar- laust starf. í þeim flokki koma saman öll helstu hags- munaöfl þessa þjóðfélags. Par takast þau á og í því m.a. er styrkur Sjálfstæðisflokksins fólginn.“ Tilvitnun þessi er í leiðara Morgunblaðsins á sunnu- daginn var, er blaðið fjallar um skrif DV um Þorstein Pálsson. Þessi skrif leiða hugann að innviðum Sjálf- stæðisflokksins og þróun hans með breyttum þjóðfél- agsháttum. Það sem Morgunblaðið er að ýja að er á mæltu máli að Sjálfstæðisflokkurinn er í rauninni regnhlífarsamtök yfir ótal hagsmunahópa í þjóðfé- laginu fremur en heilsteyptur stjórnmálaflokkur. Enn hefur flokknum tekist að halda sæti sem stærsti stjórnmálaflokkur landsins, þrátt fyrir þetta. Stað- reyndin er sú, hvað sem staðhæfingum Morgunblaðs- ins líður, að þetta eðli flokksins hefur veikt hann mjög þegar til þess kemur að glíma við alvarleg þjóð- félagsmál. Þegar upp úr sýður með alvarlegum átökum og klofningi er formanninum kennt um og horft til for- tíðar með persónudýrkun sem minnir á stjórnmál í Austur-Evrópu meðan kommúnisminn var og hét. Formaður flokksins á að leiða saman hin ólíku öfl, hann á einnig að vera skemmtanastjóri og leiða skrautsýningar á landsfundum því „the show must go on“. Það er þetta sem Mogginn á við þegar hann segir að formennska í Sjálfstæðisflokknum sé mis- kunnarlaust starf. Nú er mænt á Davíð í hlutverk skemmtanastjórans. í Sjálfstæðisflokknum eru harðsvíraðir hagsmuna- hópar sem eru ekkert að hafa mikið fyrir því að líta á heildarhagsmuni. Þar rekast hagsmunir innflytj- enda á við hagsmuni útflytjenda svo dæmi sé tekið. Það er lítið sameiginlegt með áhugamálum meiri- hlutans í Reykjavík og sveitarstjórnarmanna Sjálf- stæðisflokksins á landsbyggðinni og þannig mætti lengi telja. Vegna innri sundrungar réðu Sjálfstæðis- menn ekki við að taka afstöðu í hinu stóra máli um stjórn fiskveiða síðastliðið vor og var Framsóknar- flokkurinn sá eini sem gekk óklofinn til þessa mikla máls, þrátt fyrir ólíkar skoðanir umbjóðenda. Þessi alvarlega innri kreppa í Sjálfstæðisflokknum kom einkar vel fram sumarið 1988 þegar slitnaði upp úr stjórnarsamstarfinu milli Alþýðuflokks, Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks. Þá virtist forysta Sjálfstæðisflokksins með engu móti geta gert upp við sig hvort eða með hverjum hætti ætti að koma í veg fyrir algjört hrun útflutningsatvinnuveganna. Innanflokksdeilur Sjálfstæðisflokksins og hags- munapotið þar er ekki styrkleikamerki og hollt fyrir þjóðfélagið eins og Mogginn heldur fram. Þær eru veikleikamerki og harkalegar. J.K. Egilsstaðir: Skemmdarverk á starfsvellinum Alvarlega slösuðum hefur fækkað Alvarlega slösuðum í umferðar- slysum hér á landi hefur fækkað um 34% á fyrstu sex mánuðum þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. 82 hafa orðið fyrir alvar- legum meiðslum í ár, en þeir voru 125 á árinu 1989. Lítils háttar fækkun hefur orðið á heildarfjölda slasaðra eða úr 362 í 356. Frá áramótum hafa orðið 9 bana- slys í umferðinni hér á landi og 13 manns hafa látist. 10 slys urðu á sama tímabili í fyrra og 12 létust. Flestir hafa látið lífið í umferðar- slysum í Árnessýslu eða 6 manns og 4 hafa látist í umferðarslysum í Húnavatnssýslum. 12 fleiri ökumenn hafa slasast í ár en í fyrra, en slösuðum farþeg- um hefur fækkað um 8. Tuttugu og tveimur fleiri ung- menni á aldrinum 17 til 20 ára hafa slasast í umferðinni á fyrri helm- ingi þessa árs en á sama tíma 1989. Um fækkun er hins vegar að ræða meðal fólks sem er 65 ára og eldra úr 30 manns í 20. 45 börn 14 ára og yngri hafa slasast í ár, en voru 49 í fyrra. Talsvert hærra hlutfall þeirra sem slasast hafa í ár hafa notað öryggisbúnað, þ.e. bílbelti eða barnabílstól og er það hugsanleg skýring á fækkun meðal alvarlega slasaðra frá í fyrra. Þannig verða áverkar ekki eins alvarlegir og ella. Yegagerð á... Framhald af forsíðu sveitarstjórnarinnar annars vegar og bænda þar í hreppnum hins vegar. Að sögn Þrastar hefur verið meira og minna um lausagöngu sauðfjár í fjallinu fyrir ofan kauptúnið í sumar þrátt fyrir bannið. Hefðu þær rollur einnig verið inni í kauptúninu og inni í görðum fólks þar. Hann sagði, að girðing væri fyrir utan kauptúnið og næði hún upp undir fjallsbrún, eftir því sem hann best vissi. Einnig væri girðing að innanverðu, en girðingarstæðið væri erfitt og erfitt að halda því við. Lægi sú griðing niðri á kafla efst uppi, en ekki væri talið að fé færi mikið þar inn. Hins vegar teldu sumir, að kindur skriðu jafnvel inn í gegnum grindahliðið á girðingunni. Þröstur taldi, að fé færi ákaflega lítið yfir heiðina, en það fé sem þar kæmi yfir, teldu þeir að færi ekki niður í þorp. Þá sagði Þröstur að þeir í sveit- arstjórninni hefðu verið orðnir þreyttir á að fá þau svör, þegar rætt væri við bændur, að þetta væri ekki þeirra fé, heldur einhverra annarra. Þeir hefðu því ákveðið að láta reyna á reglugerðina. Hefðu þeir boðað bændur frá 3 bæjum í hreppnum, sem eru með fé, til við- ræðna sl. fimmtudag til að reyna að finna einhverja lausn á málinu. Hefði aðeins mætt til fundarins fulltrúi frá einum bænum ásamt lögfræðingi og hefði ekki náðst neitt samkomulag við hann. Næst verður málinu vísað til sýslumanns, og mun sveitar- stjórnin gera kröfu um, að hann framfylgi ákvæðum reglugerðar- innar. Þröstur sagði, að þeir hefðu getað sætt sig við það, ef bændur vildu taka þátt í kostnaði við að girða sjálft kauptúnið af. Sér finndist óeðlilegt ef búfjáreig- endur ættu ekki að bera neina ábyrgð á búfé sínu eða hvar það gengi. Það virðist því vera komin nokkur harka í þetta mál, en von- andi finnst á því lausn, sem báðir aðilar geta sætt sig við. G.i. Nokkrar undanfarnar helgar hefur mikið borið á því, að skemmdir hafi verið unnar á starfs- vellinum á Egilsstöðum. Hafa fjórir til sex kofar, sem börnin hafa byggt, verið eyðilagðir um hverja helgi, og hafa sumir kof- arnir verið rifnir í sundur spýtu fyrir spýtu. Til dæmis hefur einn drengur byggt sér kofa á vellinum þrisvar sinnum, en kofarnir hafa Forsvarsmenn Ungmenna og íþróttasambands Austurlands hafa staðið í stórræðum undanfarið við þátttöku í Landsmóti UMFÍ. Mótið sóttu 120 manns á vegum sambandsins og var keppt í frjálsum íþróttum, sundi, borð- tennis, fimleikum, bridds, starfs- íþróttum, blaki karla, handknatt- leik kvenna, knattspyrnu kvenna og körfuknattleik karla. Að sögn Magnúsar Stefánssonar hjá UÍA voru liðsstjórar og farar- stjórar ánægðir með þann árangur sem náðist. Liðið var í 6. sæti í heildarstigakeppninni og skildu örfá stig að 3. og 6. sætið. Lið UÍA lék til úrslita í blaki karla og tapaði fyrir HSK í æsispennandi leik, þar sem eins margir áhorfendur voru og húsrúm leyfði. í fimleikum kvenna urður UÍA stúlkur í fjórða sæti, en það er mjög athyglis- verður árangur í frumraun stúlkn- anna í keppni eins og þetta var. í handknattleik kvenna var liðið í 6. sæti og í knattspyrnu kvenna var lið UÍA í 5. sæti, og í 6. sæti í körfuknattleik karla. í bridds var keppt í fyrsta skipti á landsmóti og voru UÍÁ menn þar í 5. sæti. Mikil skipulagning liggur að baki slíkrar ferðar sem þátttaka í landsmóti er. Einstaklingar og keppnislið hafa undirbúið sig svo mánuðum skiptir og ferðin sjálf útheimtir mikla skipulagningu. Veðrið gerði erfitt fyrir á lands- mótinu, og var m.a. til þess að UÍA menn urðu að fella hið stóra tjald sitt til þess að forða því frá Egilsstaðakirkja Sunnudagur 29. júlí Messa kl. 1100. Ragnheiður Haraldsdóttir og Örn Magnússon leika saman á altflautu og orgel. Sóknarprestur. alltaf verið eyðilagðir jafnóðum. Skorað er á þá, sem hér eiga hlut að máli, að hætta þessari iðju og leyfa börnunum að hafa kofa sína í friði og koma heldur og byggja upp á vellinum. Fólk í næsta nágrenni vallarins er einnig beðið að hafa auga með vellinum og láta vita, ef vart verður við skemmdarverk. skemmdum. Að öðru leyti eru ljúfar minningar um þetta lands- mót sagði Magnús Stefánsson. Þess má geta að blað UÍA, Snæ- féll er riýkomið út, og þar er að finna greinar um undirbúning ein- stakra liða, en íþróttafólkið hefur lagt á sig ómælda vinnu við þann undirbúning. Sumarhátíðin Skammt er stórra högga á milli hjá UÍA því að sumarhátíðin er um næstu helgi. Hátíðin er eins og kunnugt er íþróttamót yngri flokk- anna, og er löngu búin að vinna sér fastan sess í viðburðum sumarsins hér eystra. Vegna lands- mótsins er hún ívið seinna nú en fyrri sumur. Hátíðin hefst á föstu- dag kl. 16:50 með setningu Sig- urðar Aðalsteinssonar formanns UÍA, en síðan hefst keppni, sem endar á sunnudag. Þá fer fram há- tíðardagskrá að venju. Þar flytur heiðursgestur hátíðarinnar Guð- mundur Magnússon fræðslustjóri ávarp, og ýmis skemmtiatriði verða auk verðlaunaafhendingar. Hljómsveitin Sú Ellen sér um tón- listina á dansleik á laugardag og varðeldur verður á föstudags- kvöldið. Bikarkeppni FRÍ Auk þess sem hér hefur verið getið að framan taka eldri frjáls- íþróttamenn frá UÍA þátt í bikar- keppni FRÍ um næstu helgi. Lið UÍÁ keppir í 2. deild. Austfirðingar Þegar þið eigið leið um Vestfirði er Bær í Reykhóla- sveit kjörinn áningarstaður. Svefnpokapláss í 2 og 3 manna herbergjum. Góð aðstaða til matseldar. Einnig tilvalið fyrir hópa. Vinsamlega pantið með fyrirvara ef hægt er. Sölu- skáli á staðnum. Bær, Reykhólasveit s. 93-47757 Rústir einar blasa við bömunum eftir að skemmdarvargar - óvitar - hafa leikið lausum hala í kofabænum í skjóli nœtur. Austramynd/S.B. Skammt stórra hössa á milli hjá UÍA - Landsmót nýafstaðið - Sumarhátíð framundan -

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.