Austri - 26.07.1990, Blaðsíða 5
Egilsstöðum, 26. júlí 1990.
AUSTRI
5
Komið í land í Papey og gengið frá borði á náttúrlega bryggju í Áttærings-
vogi.
Jón Gunnarsson ferjaði grillin og kostinn í land á trillu sinnt.
Helgistund var haldin við vitann og myndaði
náttúran þar bœði kór og altari. Séra Sjöfn
Jóhannesdóttir sá um helgistundina og var
hún mjög hátíðleg og áhrifarík í þeirri
umgjörð sem þessi fagri dagur skapaði. Séra
Sjöfn gat m.a. um að á þessum stað hefði
nafn Krists að líkindum fyrst verið nefnt hér
á landi. Pað er Elís Þórarinsson sem heldur
á gjallarhorninu fyrir séra Sjöfn.
Sigurjóna Sigurðardóttir og Jón Kristjánsson voru í hópi nokkurra afbragðs
grillmeistara sem tóku til hendinni í Papey.
Síðasti maður úr sumarferð stígur um borð í bát Stefáns Jóhannssonar, Auð-
björgina. Á myndinni er Broddi B. Bjarnason, formaður KSFA, en allir
þræðir skipulagningar þessarar sumarferðar sameinuðust á skrifborði hans.
Á Hellisbjargi stendur vitinn í Papey. Hann er í um 60 m hæð yfir sjó og var hann byggður sumarið 1922. Þaðan er
gott útsýni sé skyggni á annað borð gott, sem svo sannarlega var sl. laugardag. Lengst til hægri á myndinni má sjá Hall-
dór Ásgrímsson ráðherra.
Myndirnar hér í opnunni tóku: Heimir Sveinsson, Jón Kristjánsson, Sóley Guðmundsdóttir og Broddi B. Bjarnason.