Austri - 26.07.1990, Síða 6
6
AUSTRI
Egilsstöðum, 26. júlí 1990.
Bændur skera sjálfa sig
gamals bónda um riðumálin
Hugleiðingar
Hvar sem tveir eða fleiri hittast
á þessu voru, hefur talið borist að
þeirri skyndilegu ákvörðun, að
skera niður allan fjárstofn bænda á
Héraði, milli Lagarfljóts og Jökuls-
ár á Dal, til útrýmingar riðuveiki á
svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
urðar Sigurðssonar yfirdýralæknis
í Árbók Stéttasambands bænda,
var fyrst staðfest riðuveiki í sauðfé
hér austanlands árið 1969, bæði í
Borgarfirði og Norðfirði. Taldar
mestar líkur á, að riðan hefði bor-
ist með heyi, sem keypt var í Eyja-
firði, líklega á kal- og grasleysisár-
unum 1965-1969. Árið 1971 var
veikin staðfest í Breiðdal, 1976 á
Brú á Jökuldal og 1979 í Fossár-
dal, Berufirði. Byrjað var á niður-
skurði haustið 1982 í Breiðdal, á
nokkrum riðubæjum. Skipuleg
slátrun vegna riðu hefst svo á Aust-
urlandi 1986, með förgun alls fjár
á 10 bæjum. Síðan skipulögð stór-
felld förgun 1987 og 1988 en færra
1989.
í Borgarfirði og víðar var byrjað
1979, að farga öllum kindum, sem
sýndu byrjunareinkenni, jafn-
harðan og reynt var að velja til
ásetnings stofna, sem haldið var að
þyldu betur veikina. Ekki töldu
borgfirskir bændur sig geta búið
við það afhroð, sem riðan gerði á
bústofni þeirra. Var samþykkt
heildarförgun í Borgarfirði og alla
strandlengjuna til Breiðdals
haustið 1987, nema í Mjóafirði
1989. Einnig fargað öllu fé á Hér-
aði, austan Lagarfljóts, nema í
Skriðdal árin 1987-88.
Laugardaginn fyrir páska, 14.
apríl 1990, var almennur sveitar-
fundur haldinn í Fljótsdal, um
riðumálin. Búnaðarsamband Aust-
urlands, ásamt formanni Sauðfjár-
veikivarna á Austurlandi, boðuðu
til fundarins. Fundurinn var
óvenju vel sóttur og gagnstætt
venju voru þar margar konur.
Fundarstjóri var Jónas Magnússon
bóndi á Uppsölum. Hófst fundur-
inn með ræðu formanns Búnaðar-
sambandsins, Aðalsteins Jóns-
sonar bónda í Klausturseli, sem
var skipulega fram sett. Endaði
hann ræðu sína eitthvað á þessa
leið: — Ég bið ykkur, bændur
góðir, að íhuga rólega þetta mál,
og taka þá ákvörðun, sem ætla má
að öllum bændum á svæðinu verði
fyrir bestu —.
Það geta allir sagt sér, að vandi
er á höndum og mörgum tilfinn-
ingamál, þegar fyrirvaralaust er
boðaður niðurskurður heilbrigðra
fjárstofna. Ekki voru allir sam-
mála ræðu formannsins. En það er
nú bara svo í hverju máli, og sjálf-
sagt að sitt sýnist hverjum.
Búnaðarsambandið hafði að
vísu sent bréf á öll sauðfjárheimili
á svæðinu, dagsett 4. apríl 1990.
Þar er fremst bréf og greinargerð
til landbúnaðarráðherra, undir-
ritað af stjórn Búnaðarsambandsins.
Segir í bréfinu, að vetrarfóðraðar
kindur á svæðinu milli Lagarfljóts
og Jökulsár á Dal, séu rúmlega
13.000 á 55 býlum. Kostnaður við
aflífun fjárins og hreinsun húsa er
áætlaður 200 milljónir kr., og má
það kallast vel sloppið. Landbún-
aðarráðherra ábyrgist, með inn-
sigli sínu, að greiða alla súpuna.
Fundurinn samþykkti, með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða, að
taka tilboði landbúnaðarráðherra,
að slátra öllu fé í Fljótsdal að
hausti og verði fjárlaust þar í tvö
ár. Daginn áður hafði svipuð sam-
þykkt verið gerð á sameiginlegum
fundi Fella-, Tungumanna og
Jökuldæla austan Jöklu, í Fellabæ.
Dauðadómur á páskum
Eftir miðnætti, þegar heilög
páskahátíð var í garð gengin, var
kindunum okkar kveðinn dauða-
dómur. Ekki verður sagt að góður
andi hafi svifið yfir vötnunum
þetta kvöld í Végarði. „Það er svo
misjafnt sem mennirnir leita að,
og misjafn tilgangurinn sem fyrir
þeim vakir.“ Sumir bændur á
þessu svæði eru komnir mjög til
aldurs og farnir að hugsa til að
hætta búskap. Fyrir suma var þetta
gullið tækifæri til að fá ríkisstimpl-
aða ávísun fyrir ærnar sínar, allt í
einu og upp úr þurru.
Þó eru þeir margir, sem hirða
lítí um slíkar ávísanir ríkisins, og
vilja heldur vera án þeirra, ef til
þess eru nokkur ráð.
Á einum bæ í Fljótsdalnum var
staðfest riða seint í vetur, einnig í
Fellum og á Jökuldal, ein kind á
hverjum bæ. Eftir að þetta þótti
fullsannað, var eins og skriða félli,
því enginn orðrómur hafði farið
hér á kreik, að til stæðu svona
hreinsanir. Búnaðarsambandið
virðist hafa tekið málið upp á sína
arma. Tíminn var orðinn naumur,
komið eitthvað fram í apríl, og
stutt í að bændur færu að keyra
heim áburði sínum. Varð því að
fara dagfari og náttfari og veitti
ekki af.
í Fljótsdal eru þetta 16 býli, af
25 býlum sem nú eru í byggð, en á
nokkrum öðrum hafði verið
slátrað öllu fé vegna riðu 1988-89.
Ýmsum hér í sveitinni fannst
seint og illa boðað til fundarins.
Fundarboðið var ekki póstlagt fyrr
en sólarhringi fyrir fundardag.
Óvíst að það hefði staðist, ef hengt
hefði verið á laganna krók. Ýmsir
bændur í hinum sveitunum, sem
ekki voru hlynntir svona aðferð-
um, vonuðu að Fljótsdælingar
björguðu málinu á síðustu stundu,
en það fór á annan veg, sem kunn-
ugt er.
Hreinsun fjárhúsa getur orðið
vandamál hér í dalnum, því að á
10 bæjum eru enn í notkun fjárhús
byggð úr torfi og grjóti. Óvíst er
hvort leyfð verður hreinsun þeirra.
Ljós í myrkrinu
Sigurður Sigurðsson yfirdýra-
læknir mætti á fundinn í Végarði.
Skýrði hann faraldur þennan,
skýrt og skilmerkilega fyrir fund-
armönnum, og sýndi skyggnur til
skýringa. Um hreinsun húsanna
sagði hann: — Þið eigið að brenna
torf og grjót húsanna með gasloga,
en gætið bara að kveikja ekki í
þeim, og á eftir má kalka yfir þau.
Þið eigið ekki að leggja gömlu
húsin fyrir róða, sagði dýralæknir-
inn, síðast orða.
Orð hans hljóta að vega þungt,
og eru ljós í myrkrinu fyrir torf-
húsabændur. Fæstir þeirra myndu
hafa nokkur tök á að leggja út í
nýjar byggingar.
Undirrituðum fannst gæta
nokkuð einhliða áróðurs á fund-
inum 14. apríl sl. — og tekur það
ekki aftur — og flausturslega
staðið að því að afgreiða svo mikið
alvörumál. Ekki gafst neinn tími
til að íhuga málið í ró og næði. Það
er einstrengingsleg hugsun að sjá
bara eina hlið á málinu, að þetta
væri það skynsamlegasta. Tíminn
mun leiða í ljós, hvort skynsemin
ber þarna ávöxt. Vonandi að svo
verði. Þegar um stórt er teflt, þarf
lengri aðlögun í hverju máli.
Yfirstjórn Sauðfjárveikivarna
setti það inn í niðurskurðarlögin,
að leyft var að taka lömb eftir 2-3
ár, þótt búast mætti við, að riða
kæmi upp allt í kring. Þar hefði átt
við að flýta sér hægt.
Margt bendir til, að bændum
fækki við niðurskurðinn. Helsta
ástæðan er sú, að þeir eru margir
orðnir aldnir og munu því ekki
taka fé að nýju, en hefðu haldið
áfram búskap einhver ár enn, við
óbreyttar aðstæður. Hér í Fljóts-
dal er aðeins eitt kúabú. Ólíklegt
finnst mér að fólk fari aö sökkva
sér í skuldafen með nýjum fjós-
byggingum, þótt þar sé kannske
einhver lífsvon.
Þegar riðan kom upp í Teigaseli
á Jökuldal 1981, var fénu ekki
fargað fyrr en 1987. í 6 ár gerir
hún eitthvað vart við sig þar.
Slátrað var kindum sem sáust ein-
hver einkenni á. En Riðunefnd
hefur þar vissa afsökun. Meðan
ekki var kominn kvóti á innlegg
kindakjöts, var þetta talin skerð-
ing á afkomu heimilanna og því
illa séð. Ein mikil mistök Sauðfjár-
veikivarna, voru að reyna ekki að
koma upp girðingum, eftir að
riðan varð útbreidd í landinu. Af
því höfðu menn þó nokkuð góða
reynslu á mæði- og garnaveikiár-
unum. Á það var ekki minnst.
Þetta er auðvitað góð spegil-
mynd af þeirri stefnu, sem á seinni
árum hefur rutt sér til rúms hér á
landi, sem gengur út á það að
fækka bændum, jafnvel hvað sem
það kostar ríkiskassann. Girð-
ingar hefðu stuðlað að viðhaldi
sauðfjárbúskapar. Við hefðum
sjálfir getað girt, það voru okkar
mistök, þegar séð var að hverju
dró. Miklar líkur eru til, að með
girðingu yfir heiðina milli Lagar-
fljóts og Jöklu, hefði t.d. mátt
bjarga allri norðurbyggð
Fljótsdals.
Lítið um vinnu á Egils-
stöðum
Meðan búskapur blómstraði á
Héraði gátu uppgjafabændur
komið sér vel fyrir á Egilsstöðum
og margir þeirra unnið við land-
búnað eða störf honum tengd. Síð-
ustu árin hefur sú vinna dregist
saman vegna minnkandi afurða
bænda, og leggjast kvótakerfið og
riðuslátrunin þar á eitt. Ekki
verður lengur í það skjólið flúið,
fyrir uppflosnaða bændur. Næstu
árin er líka hætt við að halli undan
fæti fyrir rekstri sláturhúsanna, því
jafnmargt fólk þarf til að gæta véla
og húsa þótt fáu sé slátrað.
Ekki vil ég saka Búnaðarsam-
bandsmenn, né aðra sem fyrir
þessu hafa staðið, um undirferli,
þótt það lægi beinast fyrir. Ég segi
bara þetta: Það regúlerar illa í
manni, að hjálparsveit bændanna,
ráðunautarnir, yfirmenn sauðfjár-
veikivarna, skuli hafa forgöngu
um svo stórfelldan niðurskurð
heilbrigðs fjár. Að vel athuguðu
máli veit ég þó að þeim gengur
gott til.
Sigurður yfirdýralæknir sagði á
fundinum í Fljótsdal, að riðuveiki
hefði þekkst í 100 ár. Ætla má að
veiran hafi lengi átt erfitt upp-
dráttar, innan við 90 ár síðan riða
fór að gera nokkurn usla hér á
landi. Hennar er fyrst getið á
Norðurlandi.
Vantar tilraunir
í Æviminningum Tryggva
Emilssonar, sem lesnar voru í út-
varpið nýlega, getur hann um riðu-
veiki á mörgum bæjum í Öxnadal og
Hörgárdal, eftir 1940. Hvaða riða
var á ferð fyrir 50 árum? Flestir
bændur þekkja til heyriðu, eða
Hvanneyrarveiki, eins og hún var
kölluð, eftir að súrheysgjafir byrj-
uðu. Sé þetta sama veiran sem var
í fénu fyrir 50-100 árum, þyrfti að
gera ítarlegar tilraunir með fóðrun
sauðkinda.
í 40 ár hefur féð nær eingöngu
verið fóðrað á áburðartöðu. Nú
eru augu fólks að ljúkast upp fyrir
skaðsemi gerviáburðar fyrir menn
og málleysingja. Ætla má að riðu-
veiran geri meira vart við sig í
sauðfé, sem fóðrað er með töðu af
gerviáburði. Líka má nefna
„Gammatox“-baðlöginn, sem
drap alla færilús á fénu. Liðin er sú
tíð, sem betur fer, þegar sjálfsagt
þótti að eyða öllum smáverum.
Líklega verður þetta bannað innan
fárra ára, eftir ræðum og ritum að
dæma, um þetta efni. Nú eru
þessar smáverur taldar ómissandi
fyrir lífkeðjuna. Það ætti að vera
vandalaust að komast að því, með
tilraunum, hvort fóður og fóðrun
hefur einhver áhrif í sambandi við
Tæknilega séð er ekkert því til
fyrirstöðu að draga stórlega úr
loftmengun með því að blanda
hreinum vínanda saman við bensín
og díselolíu. Vínanda má m.a.
framleiða úr hveiti og víða á Vest-
urlöndum eru uppi hugmyndir um
að aðlaga hefðbundinn landbúnað
að lífrænum orkubúskap.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að
bensín sem hefur verið blandað
saman við vínanda (etanol) að
fimm hundraðshlutum gefur 15 til
20 prósent minni kolsýru (CO) frá
sér við bruna. Ennfremur verður
koltvísýrlingsmengun (C02) mun
minni. Kolsýra og koltvísýrlingur
sleppa út í andrúmsloftið með
útblæstri bíla. Kolsýran er eitruð
lofttegund en koltvísýrlingurinn
getur aftur á móti orsakað gróður-
húsaáhrif.
Víða á Vesturlöndum er mikill
áhugi á lífrænni orkuframleiðslu
meðal stjórnvalda og bænda.
Vonir eru bundnar við að hún
dragi stórlega úr loftmengun,
minnki innflutning á eldsneyti og
efli innlendan landbúnað. Það
hefur þó verið gagnrýnt, aðallega
á þeirri forsendu að innlent hrá-
efni sé of dýrt til þess að slík fram-
leiðsla geti almennt borgað sig.
Það þarf ekki að breyta venju-
legum bílvélum fyrir bensín sem er
hóflega blandað vínanda. Á hinn
bóginn getur of lítill skammtur af
vínandanum lækkað oktanstyrk
bensínsins niður fyrir æskileg
mörk. Það hefur reyndar sýnt sig
að bensín með 5 prósent af vín-
anda uppfyllir báðar kröfur: Það
heldur nægilegum oktanstyrk án
þess að það þurfi að breyta venju-
legum bensínvélum. í Bandaríkj-
unum eru menn m.a.s. farnir að
nota bensínblöndu með 10 prósent
af vínanda með það fyrir augum
að draga enn frekar úr mengun.
Það gegnir aðeins öðru máli um
díselvélarnar. Svo þær gangi fyrir
vínandablöndu þarf að breyta
þeim verulega. Sú gífurlega
„Aðalfundur Búnaðarsambands
Austurlands 1990, fagnar þeirri
þjóðarvakningu sem orðið hefur í
umhverfismálum með aukinni
uppgræðslu landsins og betri
umgengni almennt.
Fundurinn telur þetta þó aðeins
vera upphaf að starfi sem verður
að haldast svo lengi sem landið er
í byggð og vill því skora á alla
íslendinga að skipuleggja á hvern
riðuveiki og aðrar pestir sauðfjár-
ins, eða hvort lúsin gegnir þar ein-
hverju hlutverki. í slíkar tilraunir
mætti einnig nota riðuveikar
kindur, sem væru einangraðar í
girðingarhólfum.
Almennt séð virðist það
skynsamlegt að koma upp varn-
argirðingum um landið, til að
fjárpestir eigi ekki eins greiða
útbreiðslumöguleika og nú er, því
varla er riðuveikin síðasta hol-
skefla sauðfjárpesta sem berast til
landsins.
í sumum sveitum styttist í, að
sauðfé verði ekki veitt frjáls haga-
ganga, þar sem mikil fækkun
verður, eða er þegar orðin, og
aðrir geta þurft að minnka afréttir
sínar vegna fólksfækkunar í sveit-
um.
Droplaugarstöðum, 1. júlí 1990
Hallgrímur Helgason.
mengun sem díselvélarnar valda
hafa þó gert það að verkum að
víða á Vesturlöndum er verið að
þróa vélar sem ganga að hluta fyrir
vínanda. Nægir að nefna í þessu
sambandi að þekktir bandarískir
bílaframleiðendur eru að þróa
slíkar vélar, sem eru því miður
enn nokkuð stórar og þungar, og
sænsk stjórnvöld kosta tilraunir á
strætisvögnum sem ganga fyrir
vínanda.
Svíar hafa um árabil rannsakað
möguleikana á að nota vínanda
með hefðbundnu eldsneyti. Þeir
teija að samkeppnisstaða vínand-
ans gagnvart innfluttu eldsneyti
hafi stórbatnað á síðustu árum og
íhuga sænsk stjórnvöld nú að veita
fé í nýja verksmiðju sem fram-
leiðir vínanda úr innlendu hráefni,
til dæmis hveiti.
Það liggur þó ljóst fyrir að elds-
neyti framleitt úr sænsku hveiti er
ekki samkeppnisfært við það inn-
flutta og ráðgerir Mats Hellström,
landbúnaðarráðherra Svía, að
veita 500 milljónum sænskra króna
til landbúnaðarins svo hann aðlagi
sig að lífrænni orkuframleiðslu.
Það er liður í fimm ára umfangs-
mikilli áætlun Svía um að markaðs-
væða þarlendan landbúnað og ætla
sænsk stjórnvöld að verja til þess
alls 13,6 milljörðum sænskra
króna.
Það er hægt að framleiða lífræna
orku úr öðru en hveiti. Austurrík-
ismenn framleiða til dæmis olíu úr
repju sem er ein af fjölmörgum
tegundum fóðurkáls og blanda
henni saman við díselolíuna.
Olían er unnin úr fræjum repj-
unnar og er talið að notkun þess-
arar svonefndu „lífrænu díselolíu“
nemi um 15 prósent af heildar
díselolíunotkun bænda í stærstu
landbúnaðarhéruðum Austurríkis.
Olíuframleiðslan stendur ekki
undir sér en austurrísk stjórnvöld
telja framleiðsluna það mikilvæga
að þau veita henni sérstaka styrki.
Frá Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins.
hátt þeir geta fegrað land sitt sem
mest.
Sérstaklega vill þó fundurinn
hvetja bændafólk til að láta sitt
ekki eftir liggja við að fegra og
bæta sitt nánasta umhverfi. B.S. A.
beinir því til hreppabúnaðarfélaga
á sambandssvæðinu að veita viður-
kenningu árlega til þess býlis, sem
mesta framför sýnir í umgengni."
Jón A. Gunnlaugsson.
Fara bændur að brugga?
Framleiðsla á lífrænu
eldsneyti í landbúnaði
Aðalfundur Búnaðarsambands Austurlands:
Samþykkir ályktun um umhverfismál