Austri - 26.07.1990, Qupperneq 8
Borgarfjörður eystri:
Miklu meira um ferða-
fólk en venjulega
Mikið hefur verið um ferða-
menn á Borgarfirði eystra það sem
af er sumri. Að sögn Helga Arn-
grímssonar, framkvæmdastjóra
Álfasteins, hefur verið mun meira
um ferðamenn hjá þeim en venju-
lega. Taldi hann að gestir, sem
komið hefðu í Álfastein í sumar,
væru um 15 til 20% fleiri en venju-
lega, og hefur sala á minjagripum
og öðrum vörum fyrirtækisins auk-
ist nokkuð með auknum ferða-
mannastraumi.
Helgi sagði að meira væri nú um
það en áður að rútur komi með
ferðafólk og teiur hann að Ferða-
miðstöð Austurlands eigi stóran
þátt í þessari aukningu. Munu
a.m.k. fimm rútur, með 20 til 25
manns hver, koma til Borgar-
fjarðar í sumar og gista þeir ferða-
menn í þrjár nætur á Borgarfirði
og skoða sig þar um. Auk þess
koma rútur með ferðafólk, sem
gistir aðeins eina nótt eða fer aftur
samdægurs og eru þá ótaldir ferða-
menn á eigin bílum.
íslendingar eru fjölmennastir, ef
ferðamennirnir eru taldir í heild,
en einnig er mikið um útlendinga
ekki síst meðal hópferðafólksins.
Ferðafólkið, sem komið hefur
með rútunum hefur aðallega gist í
Stapa, þar sem rekin er ferðaþjón-
usta og í félagsheimilinu Fjarðar-
borg, en einnig rekur Ólína Hall-
dórsdóttir gistihús og matsölu í
þorpinu.
Ferðamannahópar, sem gista
t.d. þrjár nætur og skoða sig um á
Borgarfirði, skilja eftir töluverða
peninga á staðnum fyrir gistingu
og fæði og annað sem þeir kaupa
þar. Það er því mikil lyftistöng fyrir
sveitarfélagið og ekki síst þá aðila,
sem vinna við ferðamannaþjón-
ustu, að fá til sín aukinn straum
ferðamanna, ekki síst ef ferða-
mennirnir staldra við og gista þar
nokkrar nætur. G.I.
Töluvert fleiri ferðamenn hafa lagt leið
sína til Borgarfjarðar það sem af er
sumri, heldur en i fyrra.
AUSTRI í sumarfrí
Þetta blað er síðasta tbl. fyrir sumarfrí starfsfólks Austra, sem
standa mun í þrjár vikur. Samkvæmt því kemur næsta tbl. út 23.
ágúst og eru lesendur blaðsins beðnir velvirðingar á þessari ráð-
stöfun. Héraðsprent sf. verður ekki lokað vegna sumarleyfa.
„Með öngulinn í rassinum"
Engirt uppgripa silungsveiði hefur verið það sem af er
sumri í vatnasvæði Lagarfljótsins eftir þeim upplýsingum
sem Austri hefur getað aflað. T.d. hefur veiði í Grímsá verið
mjög treg enn sem komið er a.m.k.
Veiðimaðurinn á myndinni hér að ofan var búinn að berja
vatnsborð Grímsár dágóða stund sl. sunnudag án þess að
verða fiskjar var. Þar sem hann hafði fengið þá flugu í
höfuðið að silungurinn héldi sig við hinn bakka árinnar og
engar vöðlur voru með í ferðinni tók hann það ráð að klæða
sig úr buxunum og vaða út í ána. Ekki dugði það til og fór
hann heim með „öngulinn í rassinum“ eins og sagt er.
Austramynd/Sóley
KURL
Besta veðrið á Seyðisfirði
Þegar Norræna kom til Seyð-
isfjarðar í sl. viku voru meðal
farþega fjölskylda frá Akureyri
sem ferðast hafði um átta Evr-
ópulönd í húsbíl og hafði ferðin
staðið fjórar vikur. Veðrið
hafði ekki beinlínis leikið um
ferðalangana því þeir höfðu á
orði við komuna til Seyðis-
fjarðar að besta veðrið í allri
ferðinni mætti þeim þar.
Þetta mundi nú einhver kalla
að farið hafi verið yfir lækinn til
þess að sækja vatnið.
Skop
„Halló. Eruð þér þjónninn
sem tók pöntunina mína?“
„Já, það mun rétt vera.“
„Ja. Nú er ég hlessa. Ég hafði
búist við að það væri miklu eldri
maður.“
Pabbinn: „Heldur þú ekki að
sonur okkar hafi allar gáfurnar
frá mér?“
Mamman: „Sennilega. Ég
hef mínar ennþá.“
Nýr bátur til sjómælinga í
smíðum hjá Yélsmiðju
Seyðisfjarðar
- tilbúinn um áramót
Hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar er
nú unnið að smíði báts fyrir Sjó-
mælingar fslands. Stefán Jóhanns-
son, forstjóri vélsmiðjunnar, tjáði
blaðinu að verkinu miðaði vel og
væri smíði skrokksins og stýris-
hússins lokið. Ætlunin væri að
ljúka smíðinni í kringum áramót.
Báturinn er 20 metra langur og
er óvenjulegur að því leyti að hann
er úr áli, 8 mm þykku. Þetta er að
sögn Stefáns gert til þess að hann
sé léttari og henti betur á grunn-
sævi, en bátinn á að nota til
mælinga og sjókortagerðar. Þetta
dregur þó ekkert úr sjóhæfni
bátsins. Auk þessa verður hann
búinn sérstökum tækjum til verk-
efna sinna en Vélsmiðja Seyðis-
fjarðar sér um uppsetningu þeirra.
Það er Skipahönnun hf. sem
teiknar þennan bát.
Stefán Jóhannsson tjáði blaðinu
að enn væru engin verkefni fyrir-
sjáanleg hjá vélsmiðjunni þegar
þessu lyki, nema eitthvað í við-
haldsverkefnum, sem ekki nægði
til þess að halda þeirri starfsemi
sem nú er. Nýlega var boðið í
hafnsögubát fyrir Hornafjörð, en
14 tilboð bárust, sem sýnir verk-
efnastöðuna í þessari iðngrein um
þessar mundir.
Egilsstaðir:
Mannlíf á markaðstorgi
Á útimarkaðnum á Egilsstöðum er líf og fjör alla daga og setur það óneitanlega svip
á bæjariífið. Þar hefur verið komið upp 3 sölutjöldum þar sem fólk getur komið og selt
vöru sína og eru þessi tjöld nýtt bæði af einstaklingum og félagasamtökum.
/ sölutjaldi höndla mœðgurnar Margrét
Björgvinsdóttir og Björk Gunn/augs-
dóttir með heimagerða skartgripi og
ýmsa aðra handunna muni. Myndirnar
sem Björk heldur á eru málaðar af Elsu
Reynisdóttur á Neskaupstað.
„Grœnmeti er góðmeti". Sigurður Ananíasson, matreiðslumaður, kynnir mat-
reiðslu á ýmsu framandlegu grænmeti og ávöxtum. AusiramyndirlB.
Karl Hjelm frá Neskaupstað þenur
nikkuna fyrir markaðsgesti.
EGILSSTÖÐUM ® 12020
GRUÍIDI
Gæðanna vegna
Úr - klukkur og skartgripir í miklu úrvali.
Viðgerðarþjónusta.
Birta hf. Egilsstöðum, sími 11606.
Opið:
mán. - föst. 10-12 og 13-18
laugard. 10-12
Staðgreiðsluafsláttur.
versiunin Ný sending af skóm í
KRUMMAFÓTUR. hverri viku.
Egilsstoðum, simi 11155.