Austri - 14.01.1993, Qupperneq 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 14. janúar 1993.
Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi.
Skrifstofa Austra Lyngási 12, 700 Egilsstaðir,
pósthóif 73, sími 97-11984, fax 97-12284.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson.
Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir.
Blaðamenn: Arndís Þorvaldsdóttir og Marinó Marinósson.
Auglýsingar: Sími 97-11984, Sigrún Lárusdóttir.
Áskrift: Sími 97-11984, Svanfríður Kristjánsdóttir.
Áskrift kr. 95 pr. blað. Lausasöiuverð kr. 100.-
Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum.
Austri kemur út á fimmtudögum.
Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 föstudaga.
Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Evrópskt
efnahags-
svæöi
Með atkvæðagreiðslu á Alþingi hefur verið ákveðið að
Islendingar taki þátt í Evrópsku efnahagssvæði. Með því
er málinu þó engan veginn lokið. Það á eftir að ganga
frá endanlegum samningi vegna þess að Sviss hefur á-
kveðið að vera ekki með a.m.k. um sinn. Það sem skiptir
mestu máli er framhaldið og hver lokaniðurstaðan verð-
ur.
Það eru flestir sammála um að við Islendingar verðum
að semja um samskipti okkar við Evrópu. Stærsti hluti
úflutnings fer á þennan markað og íslenskir atvinnuvegir
verða að búa við sambærileg samkeppnisskilyrði og
helstu keppinautar. Sem betur fer virðist vera um það
víðtæk samstaða að Islendingar hafi ekkert að gera í Evr-
ópubandalaginu. Þótt einstaka menn í stjórnarflokkunum
viðri slíkar skoðanir er ekki að heyra að þær hafi almennt
fylgi.
Flestar EFTA-þjóðanna hafa sótt um aðild að EB og því
bendir allt til þess að stofnanakerfi EES verði lagt niður
með einum eða öðrum hætti. Þessi framvinda mun vænt-
anlega þýða að aðild íslendingar að EES mun breytast í
tvíhliða samning milli EB og íslands. Verulegur ágrein-
ingur hefur verið um EES en miðað við þann málflutning
sem flokkamir hafa haft á Alþingi er grundvöllur fyrir
því að ná víðtækri samstöðu um framtíðarstefnu.
Framsóknarflokkurinn hefur flutt tillögu á Alþingi sem
gerir ráð fyrir því að taka nú þegar upp viðræður við EB
um stöðu Islands þegar og ef hinar EFTA-þjóðirnar
ganga í EB. Talsmenn annarra stjórnarandstöðuflokka
hafa tekið undir hana og forustumenn stjórnarflokkanna
hafa talað á svipuðum nótum. Framsóknarflokkurinn
mun leggja á það áherslu að Alþingi móti skýra stefnu í
þessum málum á yfirstandandi þingi.
Þau miklu átök sem orðið hafa um EES má m.a. rekja
til þess hvernig núverandi ríkisstjórn hefur haldið á mál-
inu. Ef ríkisstjórnin hefði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu
á síðasta ári er enginn vafi að mun meiri friður og eining
ríkti um málið. Þrátt fyrir allt sem er að baki er ennþá
möguleiki til að ná samstöðu um framhaldið. Með því að
biðja nú þegar um viðræður við EB um framtíðarstöðu
Islands í samfélagi Evrópuþjóðanna væri stigið mikil-
vægt skref.
Utanríkisráðherra hefur fram til þessa ekki viljað hafa
samstarf við stjórnarandstöðuna um þetta mál. Hann hef-
ur því miður alið á illdeilum og verið með stöðugar ýkjur
um þann árangur sem náðst hefur í samningum. Hann
hefur enn tækifæri til að söðla um áður en samningurinn
um EES kemur til framkvæmda.
EES mun því verða á dagskrá á næstu mánuðum. Þann
tíma þarf að nota vel til að skýra stöðuna og upplýsa
þjóðina öfgalaust um stöðu og hagsmuni Islands. Það er
líklegasta leiðin til að málið fái farsæla niðurstöðu að
lokum. H.Á.
Urslit í jólamóti
frjálsíþróttadeildar Hattar
1992 haldið þann 12. desember
Yfirdómari: Helga Alfreðsdóttir
Mótstjóri: Bjöm Ármann Olafsson
Stelpur 8 ára og yngri: Strákar 8 ára og yngri:
Sprettur Sprettur:
1 .Bryndís Káradóttir. 1 .Björn Logi Guðgeirsson
2.Anna G. Gísladóttir 2.Hrafnkell F.Magnússon
3.Sandra Björk Sigþórsdóttir. 3.Hákon Jarl Hannesson
Langstökk án atr.: Langstökk án atr.:
1 .Bryndís Káradóttir 1.80 l.Ágúst F.Einþórsson 1.73
2.Sandra Björk Sigþórsd. 1.63 2.Björn L.Guðgeirsson 1.64
3.Kolbrún Arna Sigurðard. 1.48 3.Hrafnkell F.Magnúss. 1.57
Stelpur 9 til 10 ára: Strákar 9 til 10 ára
Sprettur: Sprettur:
l.Hrafnhildur Unnarsdóttir 1 .Hafþór Húni Guðmundsson
2,Sunna Ólafsdóttir 2.Húni Jóhannesson
3.Sesselja Ósk Friðjónsdóttir 3.Ólafur Sigfússon
Langstökk án atr.: Langstökk án atr.:
1. Sesselja Ósk Friðjónsd. 1.73 1 .Freysteinn Alfreðs 2.00
2. Hrafnhildur Unnarsdóttir 1.70 2.Húni Jóhannesson 1.85
3. Steinrún Ó. Stefánsd. 1.65 3.01afur Sigfússon 1.75
Hástökk Hástökk
1. Sesselja Ósk Friðjónd. 1.03 1 .Olafur Sigfússon 2.00
2. Steinrún Ó. Stefánsd. 1.00 2.Davíð Logi Hlynsson 1.85
3. Bryndís E. Ásmundsd. 0.95 3.Húni Jóhannesson 1.75
Stelpur 11 til 12 ára: Strákar 11 til 12 ára:
Sprettur: Sprettur:
1. Lovísa Hreinsdóttir l.Hjálmar Jónsson
2. Halldóra Malín Pétursdóttir 2.Stefán B.Vilhelmsson
3.Hrafn Jóhannesson
Langstökk án atr.:
1. Lovísa Hreinsdóttir 2.37* Langstökk án atr.:
2. Haldóra Malín Pétursd. 2.10 1 .Hjálmar Jónsson 2.23
3. Jóhanna B. Gísladóttir 2.05 2.Hrafn Jóhannesson 2.15
Hástökk: Hástökk:
1. Lovísa Hreinsdóttir 1.28 l.Hjámar Jónsson 1.45
2. Jóhanna Björk Gísladóttir 1.20 2.Stefán B.Vilhelms. 1.25
3. Halldóra Malín Pétursd. 1.15 3.Hrafn Jóhannesson 1.20
Þrístökk án atr.: Þrístökk án atr.:
1. Lovísa Hreinsdóttir 6.86* l.Hjámar Jónsson 6.29
2. Jóhanna Björk Gíslad. 5.60 2.Stefán B. Vilhelms. 6.04
3. Halldóra Malín Pétursd. 5.36 3.Hrafn Jóhannesson 5.79
Kúluvarp 3 kg: Kúluvarp 3 kg:
1. Jóhanna Björk Gísladóttir 9.25* 1 .Hjámar Jónsson 9.23
2. Lovísa Hreinsdóttir 6.94 2.Hrafn Jóhannsson 8.68
3. Halldóra Malín Pétursd 4.85 3.Stefán B.Vilhelms. 7.36
Telpur 13 til 14 ára: Piltar 13 til 14 ára:
Sprettur: Sprettur:
1 .Elín Rán Bjömsdóttir l.Ingi Björn Jónsson
2.Guðjón Bragi Stefánsson
Langstökk án atr.: Langstökk án atr.:
l.Elín Rán Bjömsdóttir 2.38 l.Guðjón Bragi Stef. 2.60
2.1ngi Bjöm Jónsson 2.21
Hástökk: Hástökk:
l.Elín Rán Bjömsdóttir 1.48 l.Guðjón Bragi Stef. 1.45
2.1ngi Bjöm Jónsson 1.35
Þrístökk án atr.: Þrístökk án atr.:
l.Guðjón Bragi Stef. 7.35
2.1ngi Bjöm Jónsson 6.34
Kúluvarp 4 kg: Kúluvarp 4 kg:
1 .Elín Rán Björnsdóttir 7.86 1 .Guðjón Bragi Stef. 8.41
2.Eyþór Máni Jósefs. 7.70
3.1ngi Bjöm Jónsson 7.36
/ grunnskólanum á Höfn í Hornafirði var efnt til sérstakrar
listaviku nokkru fyrir jól. Auk kennara skólans leiðbeindi
listamaðurinn Örð Ingi. Á myndinni hér að ofan má sjá eitt af
hinum frumlegu listaverkum sem urðu til í vikunni. Gamall
strœtisvagn var málaður í glœsilegum litum og auk þess puntaður
með grenitré. Myndina tók Sverrir Aðalsteinsson.
í flokki sveina 15 til 16 ára var
einn keppandi Sindri Hreinsson og
voru árangrar hans þannig:
Langstökk án atr.: 2.84 Hástökk:
1.51 Þrístökk án atr.: 7.25 Kúlu-
varp 5.5 kg: 7.12
Á móti þessu kepptu flest þau
börn og unglingar sem stundað
hafa skipulagðar æfingar innanhúss
í haust auk nokkurra annarra, enda
var mótið opið þeim sem áhuga
höfðu, en því miður tókst ekki að
fá gesti frá öðrum félögum á mótið
að þessu sinni.
Árangur keppenda á mótinu var á-
gætur og voru m.a. sett þrjú UÍA
met, öll í stelpnafl.:
Langstökk án atr.: Lovísa Hreins-
dóttir 2.37 -áður Aníta Péturdsttir
2.36 sett 20.12. ’91
Prístökk án atr.: Lovísa Hreins-
dóttir 6.86 - áður Droplaug Magn-
úsdóttir 6.53 sett 30.10’84
Kúluvarp 3 kg.: Jóhanna Björk
Gísladóttir 9.25 -áður Elín Rán
Bjömsdóttir 8.22 sett 21.12 ’91
Þjálfarar hjá Hetti í haust hafa
verið þau Kári Hrafnkelsson, Hjör-
dís Ólafsdóttir og Pétur Magnússon
og vonum við að fá að njóta hæfi-
leika þeirra áfram á nýju ári.
Frjálsíþróttadeild Hattar
Til umhugsunar:
Frá Rafmagns-
eftirliti ríkisins
Nú, að liðinni jólahátíð, þegar
fólk fer að tína niður allt skrautið
skal minnt á útiljósa-keðjurnar.
Þær vilja nefnilega býsna oft
gleymast, hangandi neðan í þak-
brúnum allt árið - allt til næstu
jóla. Vakin skal athygli á að þol
þessa búnaðar er ekki slíkt að
hann megi við slíku. Spansk-
græna fellur á peruhöldur og
snertur, auk þess sem einangrun á
leiðslum fúnar og seymar af úti-
verunni. Það væri því ráð að taka
nú inn “seríuna” og geyma hana
hreina og þurra til næstu jóla.
Flestir munu sammála um að
engin prýði er að þessu dinglandi
utan á húsum árið um kring.
Fundarboð
Almennir
stjórnmálafundir á
Austurlandi
Þingmenn og varaþingmenn Fram-
sóknarflokksins á Austurlandi boða
til almennra funda í kjördæminu á
tímabilinu frá 17. janúar næstkom-
andi og 11. febrúar, sem hér segir:
Á Hofi í Öræfum
sunnudaginn 17.janúar kl. 15.00
Djúpavogi
sunnudaginn 17. janúar kl. 21.00
Á Egilsstöðum
mánudaginn 18. janúar kl. 20.30
Á Borgarfirði eystra
þriðjud. 19. janúar kl. 20.30
Seyðisfirði
miðvikudaginn 20. janúar kl. 20.30
Eskifirði
fimmtudaginn 21.janúar kl. 20.30
Reyðarfirði
sunnudaginn 31.janúar kl. 16.00
Fáskrúðsfirði
sunnudaginn 31.janúar kl. 20.30
Neskaupstað
mánudaginn 1. febrúar kl. 20.30
Stöðvarfirði
þriðjudaginn 2. febrúar kl. 20.30
Breiðdalsvík
miðvikudaginn 3. febrúar kl. 20.30
Höfn
fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20.30
Bakkafirði
miðvikudaginn 10. febrúarkl. 20.30
Vopnafirði
fimmtudaginn 11. febrúar kl. 20.30
Fundarefni: Atvinnumál. - staða
EES samningsins. Allir eru velkomnir
á fundina. Fundarstaðir verða auglýst-
ir á viðkomandi stöðum. Fundarboðendur.