Austri - 14.01.1993, Blaðsíða 8
Byggingavörudeild
Mikið úrval af vörum fyrir hesta og hestamenn.
Verslið þar sem úrvalið er.
Opið mán. - fim kl. 9-18, fös. kl. 9-19, lau. kl. 10-14.
£ LS
Kaupfélag Héraðsbúa, byggingavörur, Egilsstöðum
MALLAND? IÐNAÐAR s
DJÚPAVOGI sími 88131 GOLF
^ Eldhús- og baðinnréttingar Trésmiðja
* Fataskápar Guðna J. Þórarinssonar
* Útihurðir o.fl. Másseli sími 11093
Yopnafjörður:
Bregðist hvöt hjá
bónda og frú
Liðin jól og áramót voru að venju
með rólegu yfirbragði hér norðan
Smjörfjalla. Samgöngur í lofti
voru með stirðasta móti fyrir hátíð-
amar, vegna umhleypinga og tengi-
vegir til annarra byggðarlaga lok-
uðust þá , og hafa ekki verið ruddir
síðan, nema leiðin norður strandir.
Ekki er þó mikill snjór á Vopna-
fjarðarheiði, enda hafa jeppar af og
til skrölt þar um, enda sæmilegar
slóðir yfir verstu skaflana. Þá er og
lítill snjór enn á Hellisheiði, að
sögn þeirra sem farið hafa yfir.
Subaru fólksbíll fór t.d. í síðustu
viku norður að Skarðsbrekku, og
virðist skafl í þeirri brekku eina ó-
færan á leiðinni milli byggða, en
nokkrir aðrir smærri skaflar eru þó
á veginum, þótt þeir loki ekki leið-
inni. í næstu framtíð hljótum við
að gera kröfur til þess, að veginum
verði haldið opnum allt árið, eða í
það minnsta þegar snjóalög eru í
hófi. Jafnframt verður að setja
vegrið á hættulegustu stöðunum og
gera ráðstafanir til að draga úr
hálku, þar sem bratti er mestur.
Atvinnuástand var orðið heldur
slakt undir hátíðar og er enn. Afla-
brögð á bolfiskveiðum hafa verið
léleg í langan tíma og botninn datt
úr loðnuveiðunum eftir miðjan
nóvember. Vinna í frystihúsinu
hefur þó verið samfelld, þar sem
rússneskir togarar hafa landað á
staðnum annað slagið síðan í sept-
ember s.l. Hefur þessi þorskur úr
Barentshafinu bjargað miklu í at-
vinnulífinu og bætt afkomu vinnsl-
unnar og fiskverkafólks. Um fram-
haldið ríkir meiri óvissa, bæði var-
andi framboð á hráefni og söluhorf-
ur og verð afurða. Vonandi fer
loðnan að gefa sig til, svo hjól
fiskimjölsverksmiðjanna fari að
snúast að nýju, en rekstur þeirra
skiptir miklu máli fyrir verkafólk
og þjónustuaðila í byggðarlögunum
á Austurlandi.
Eins og fram kom í síðasta blaði,
fækkaði íbúum Vopnafjarðarhrepps
milli áranna 1991 og 1992, úr 912 í
888. Er það ískyggileg þróun, eins
og raunar í fleiri sveitarfélögum.
Alvarlegt þótti mér líka að sjá í
sömu frétt, að íbúum Jökuldals-
hrepps hafði og fækkað umtalsvert.
Hafði þó oddvitinn, Arnór á
Hvanná, lýst því yfir á fundi sveit-
arstjómarmanna á Egilsstöðum,
haustið 1991, að þar í sveit hefðu
menn fundið ráð við fólksflóttan-
um, það er, að menn bami bara upp
í afföllin. Þegar ég las um fækkun-
ina á Jökuldal, varð til þessi vísa:
Bregðist hvöt hjá bónda og frú,
er býsna fátt til vama.
Arnórs þegnum ekki nú,
í afföll tókst að bama.
Vonandi verður nýbyrjað ár gjöf-
ult og gott í þessum efnum, svo og
öðmm, og enginn yrði skaði skeður
þótt stjómarfarið í landinu batni
ögn frá síðasta ári. Með það í huga
lík ég pistli þessum, með orðum
sem kannski hefðu átt að vera í
upphafi hans, og segi:
Gleðilegt ár.
Kristján Magnússon
Atveislur miklar
undirbúnar
Nú fer sá tími í hönd að lands-
menn setjast að hlöðnum veislu-
borðum og blóta þorra. Hvert
þorrablótið rekur annað og ótrúlegt
magn af “landbúnaðarvanda”
hverfur ofan í veislugesti. í kjöt-
vinnslu Kaupfélags Héraðsbúa er
unnin þorramatur og hófst undir-
búningur að vinnslu, þegar að lok-
inni sláturtíð í haust. Blaðamaður
Austra brá sér á staðinn og átti stutt
spjall við þá Þorstein Pétursson,
kjötiðnaðarmann og Svein Jó-
hannsson, matsvein. Það var matar-
legt um að litast í “skemmu” hjá
þeirn félögum. Unnin hafa verið
um 2 tonn af hefðbundnum súrmat,
sem væntanlega mun á næstu vik-
Höfn:
Fuglatalning á Höfn
um áramótin
í árlegri fuglatalningu á Höfn
þann 29.des. sáust 5369 fuglar,
þar af 49 á takmörkuðu svæði.
Frekar lítið hefur verið um flæk-
ingsfugla þar um slóðir i vetur,
sennilega vegna þess hve vetur
byrjaði snemma í ár. Þó sást t.d.
gráþrösur, dvergkráka og starr-
ar á þessu svæði.
A hverju ári eru taldir fuglar um
land allt og þá á sömu stöðum ár
eftir ár. Einn af þeim sem telur
fugla er Benedikt Þorsteinsson sem
hefur talið fugla við Höfn í nokkur
ár. Hann sagði að lítið væri um
flækinga nú í vetur, en þó kæmu
alltaf einhverjir vetrargestir til
landsins og t.d. sáust núna 4
dvergkrákur og 2 gráþrestir í taln-
inguinni. Benedikt sagði að undan-
fama vetur hefðu sést nokkrir
fjöruspóar og lappajaðrakan með
þeim á vappi við ósanna og inná
víkunum. En þeir hyrfu burt á vor-
in og kæmu svo aftur í júlí.
Þeir fuglar sem sáust þann 29
des. sl. voru:
Stokkönd 462
Æður 2313
Hávella 144
Svarbakur 710
Silfurmáfur 384
Hvítmáfur 243
Hrafn 83
Snjótittlingur 181
Sendlingur 300
Tjaldur 89
Tildra 4
Dílaskarfur 46
Rauðhöfði 41
Bjartmáfur 1
Stormmáfur 1
Toppönd 1
Æðardrottning 1
Fíll 110
Sefhœna, fremur sjaldgœfur flœkingur.
Mynd: BB
Duggönd 1
Ogreindir máfar 200
Hettumáfur 1
Músarindill 1
Skógarþröstur 6
Starri 30
Snjótittlingar 5
Gráþröstur 2
Dvergkráka 3
Auðnutittlingur 3
Þess má geta að hlýtt var þennan
dag og því lítið um snjótittling.
Starramir hafa komið á haustin til
Homafjarðar og verið fram í apríl.
Eitthvað mun vera um að þeir verpi
þar. MM.
Þorsteinn Pétursson, kjötiðnaðarmaður og Sveinn Jóhannsson með þorratrog hlaðið
góðgceti. Austramynd: AÞ
um kitla bragðlauka Austfirðinga
og renna ljúflega niður með viðeig-
andi munngát. Þorsteinn sagði að
ekki væri enn ljóst hve mikið yrði
framleitt af hangikjöti, því það væri
unnið jafnóðum eftir eftir hendinni.
Aðspurður um reykingaraðferð,
svaraði hann því til, að það væri
auðvitað atvinnuleyndarmál, en
Framhald á bls. 5
KURL
Með allt á hreinu..
í Gistihúsinu á Egilsstöðum
var gestabók, þar sem menn
áttu að skrifa nafn sitt og síðan
voru tveir dálkar: “Hvaðan
komið”, og “Hvert farið”. Ein-
hverju sinni gistu þar togarasjó-
menn frá Neskaupstað, sem
auðvitað allir skráðu sig í gesta-
bókina eins og venja var til.
Einn þeirra svaraði spumingun-
um, hvaðan komið og hvert far-
ið þannig: “Kem af karfaveið-
um og fer á kvennafar.
Úr fundargerð bæjar
stjórnar á Egilsstöðum
Við umræðu um hækkun
sorphreinsnigjalda í bæjarstjóm
á Egilsstöðum hafði fulltrúi
sjálfstæðismanna eftirfarandi
um málið að segja.
Bæjarstjóm svarta með baugana
berst nú við hækkunardraugana.
Fyrir fimmþúsundkall
ég fer með minn dall
og fleygj’onum sjálfur á haugana.
Alltaf sami heiðurs-
maðurinn
Hagyrðingurinn kunni Har-
aldur á Kambi var búsettur á
Siglufirði um skeið og rak á
tímabili meiri háttar hæsnabú,
nokkuð fyrir innan bæinn. Eitt
sinn gerði hann hlé á hæsna-
ræktinni og brá sér í bæinn.
Nokkuð teygðist úr bæjarferð-
inni og þegar hann hafði dvalið
þrjá daga í bænum, jafnan í
glaðara lagi, spurði vinur hans,
hvort hann þyrfti ekki að fara
að gefa hæsnunum. “Ertu vit-
laus maður?” svaraði Haraldur.
“Heldurðu að ég láti hæsnin
sjá mig í þessu ástandi?”
Haraldur orti urn drykkjufélaga:
Aldrei sést hann einn á ferð,
er það mjög að vonum,
því að timburmannamergð
mögnuð fylgir honum.
¥
Pétur Pétursson var að tala um
veðrið í morgunútvarpinu og
sagði m.a.: „Veðurstofan lofar
og leggur við drengskap
sinn,...“
HRAÐ mynd
Miövangi 2-4, Egilsstöðum,
sími 11777
Umboðsmenn á Austurlandi:
Bókaverslun Brynjars, Neskaupstað,
Shell-skálinn, Eskifirði, Kaupfélagið Djúpavogi,
Lykill, Reyðarfirði, Kaupfélagið Breiðdalsvík,
Söluskáli Stefáns Jónssonar, Fáskrúðsfirði,
Kaupfélagið Stöðvarfirði,
Bókaverslun AB og ES, Seyðisfirði.
KLÚBBUR FYRIR ALLA
Með eftirsóknarverðum fríðindum.