Fréttablaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 2
TÓNLIST „Við eigum í góðum sam­ skiptum við eigendurna. Það eru engin leiðindi þó að það sé fúlt að missa þakið ofan af starfseminni,“ segir Daníel Friðrik Böðvarsson, upptökustjóri og einn fremsti gítar­ leikari landsins – og þótt víðar væri leitað. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku hefur Höfðatorg óskað eftir því að rífa Katrínartún 12 og 12a, sem áður hýsti meðal annars skrifstofur WOW air. Þar er einnig upptökustúdíó Daníels sem Rabbi heitinn byggði upp og starfaði það lengi undir merkjum Hljóðhamars. Það hafa margir komið með sinn takt inn í stúdíóið, eins og Woofer, hljómsveit Hildar Guðnadóttur forðum daga, Ólafur Gaukur tók upp tónlistina við Benjamín dúfu þar á bæ og Leaves og Botnleðja töldu í eftirminnilega tóna í stúdí­ óinu sem brátt hverfur. „Hér hafa verið tekin upp mörg lög sem lands­ menn hafa sungið með þó ég þekki ekki söguna alveg 100 prósent. Í dag er fullt af tónlistarmönnum við alls konar vinnu hérna og þetta er eitt af örfáum atvinnustúdí­ óum í miðbænum. Það var stúdíó við Skúlagötu sem var rifið fyrir nokkrum árum og stúdíóin eru öll að færast út á borgarjaðarinn.“ Daníel segir að beiðni sé um að öll starfsemi verði farin úr húsinu sem fyrst en töluverður suðupottur mannlífs er í Katrínartúninu af skapandi fólki. „Hér er mikið mann­ líf og ég veit alveg að fólk er óánægt með að fá svona lítinn tíma til að fara burt með sína starfsemi. Það verður sjónarsviptir að þeirri starf­ semi sem hefur verið hérna. Hér hefur verið iðandi mannlíf í mörg ár og stúdíóið okkar hefur haft mikla starfsemi. En því miður erum við komin í þá stöðu að fara að kíkja í kringum okkur,“ segir hann. Tónlistarmönnunum í Katrínar­ túni hefur verið boðið húsnæði í Árbæ en það er hrátt iðnaðarhús­ næði og þá á eftir að byggja stúdíó­ ið. „Því miður er það ekki alveg besti kosturinn fyrir okkur sem búum í miðbænum og kjósum bíllausan lífsstíl. En vonandi finnst hentugra húsnæði. Við vonum það besta.“ Hann segir að í miðbæinn vanti húsnæði fyrir hljóðver og minni tónleikastaði en ekki hótel eða verslunarhúsnæði. Huga þurfi að menningunni en ekki endilega glerinu sem hýsir verslanir og skrif­ stofur. Sérstaklega á þessum síðustu og verstu tímum. „Hljóðverið á sér langa og merkilega sögu. Hér erum við 15 með aðstöðu og mikil gróska, bæði hér og í húsunum í kringum okkur. Það er svolítið fúlt að sjá þetta allt fara.“ benediktboas@frettabladid.is Hér hefur verið iðandi mannlíf í mörg ár og stúdíóið okkar hefur haft mikla starfsemi. Daníel Friðrik Böðvarsson Veður Vaxandi suðlæg átt vestan til í dag, 8-15 seinnipartinn, en öllu hvassari á norðanverðu Snæfellsnesi. Hægari suðlæg átt um austan- vert landið. Bjartviðri norðan- og austantil, annars skýjað með köflum og fer að rigna vestast seint í kvöld. Hiti 3 til 9 stig. SJÁ SÍÐU 12 Tré fyrir fyrsta konuforsetann Rán Flygenring af hendir Andra Snæ Magnasyni, stjórnarformanni Yrkju, ávísun fyrir 4.108 trjám. Það er eitt tré fyrir hverja selda bók um Vigdísi fyrsta konuforsetann eftir Rán, sem kom út hjá forlaginu Angústúru fyrir síðustu jól. Af hendingin fór fram við heimili Vigdísar á Aragötu. María Rán Guðjónsdóttir útgefandi og Vigdís Finnbogadóttir fylgjast með. Það var Rán sem teiknaði þessa veglegu ávísun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Miðbærinn snauður af stöðum fyrir tónlist Ef Katrínartún 12 verður rifið mun sögufrægt tónlistarstúdíó hverfa úr mið- bænum. Þar hafa verið sungnir margir af þekktustu slögurum Íslandssögunn- ar. Daníel Friðrik Böðvarsson upptökustjóri segir þetta leiðinlegan missi. Daníel segir að það vanti húsnæði fyrir hljóðver og minni tónleikastaði í miðbænum, huga þurfi betur að menningu á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DÓMSMÁL Landsréttardómarinn Arnfríður Einarsdóttir víkur ekki sæti í meiðyrðamálum tengdum Hlíðamálinu svokallaða. Stefn­ endur málsins kröfðust þess að hún viki sæti á grundvelli meintrar neikvæðrar afstöðu Arnfríðar til lögmanns þeirra, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar. Vilhjálmur f lutti Landsréttarmálið svokallaða fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Í munnleg um málf lutning i um kröfuna í Landsrétti í síðasta mánuði vísaði Vilhjálmur einkum til athugasemda alþingismannsins Brynjars Níelssonar á Facebook og yfirlýsingar sem hann sendi Mannréttindadómstól Evrópu. Hélt Vilhjálmur því fram að eigin­ maður Arnfríðar tengdi málið persónu sinni sem ylli því að aðrir umbjóðendur hans gætu ekki treyst því að mál þeirra fengju hlutlausa meðferð fyrir dómi sem Arnfríður situr í. Í úrskurði Landsréttar sem kveðinn var upp á föstudag segir að engin gögn hafi verið lögð fram í málinu um neikvæða afstöðu Arnfríðar til lögmannsins. Þá verði vinátta eða fjandskapur við maka dómara ekki lögð að jöfnu við fjandskap eða vináttu við dómarann sjálfan og var kröfu um að Arnfríður viki sæti því hafnað. Vilhjálmur segir úrskurðinn verða kærðan til Hæstaréttar. – aá Kærir meint vanhæfi til Hæstaréttar Vilhjálmur H. Vilhjálmsson LÖGREGLUMÁL Lögreglan rann­ sakar banaslys sem varð í Gríms­ nesi á föstudagskvöld er maður á fertugsaldri brann inni í húsbíl. Lögreglu bárust ekki upplýsing­ ar um brunann fyrr en á laugardag þrátt fyrir að neyðarlínu hafi bor­ ist tilkynning á föstudagskvöld. Í tilkynningu frá ríkislögreglu­ stjóra og 112 sem barst fjölmiðlum í gær er harmað að tilkynning um brunann til Neyðarlínu hafi ekki skilað sér til slökkviliðs og lögreglu á svæðinu. Tæknilegum annmarka hafi verið um kenna sem valdið hafi því að lögregla fékk ekki til­ kynningu um atburðinn áður en innhringjandi sleit símtali. Unnið er að úrbótum á hugbúnaði til að slíkt endurtaki sig ekki. Fram kom í kvöldfréttum RÚV í gær að lögregla hefði rætt við fjölda vitna vegna rannsóknar­ innar en líklegast sé um slys að ræða. – kdi Lögregla og 112 harma mistök 1 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.