Fréttablaðið - 13.10.2020, Page 4

Fréttablaðið - 13.10.2020, Page 4
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla. Úrval af felgum fyrir Jeep® og RAM Upphækkunarsett í Wrangler Upphækkunarsett í RAM Falcon demparar ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00 ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK. FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI BREYTINGAR Á JEEP®, RAM OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323 UMBOÐSAÐILI FÉLAGSMÁL Félagsmálaráðuneytið hefur beðið sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu um tillögur að tímabundnu húsnæði fyrir öryggis- vistun. Ákveðið hefur verið að reisa sérútbúna öryggisvistun í Reykja- nesbæ sem þjónusta á allt landið og verið er að móta heildstæða stefnu um öryggisvistun innan ráðu- neytisins. Ekki er reiknað með að húsnæðið verði þó tekið í notkun fyrr en árið 2023. Þangað til þurfi að finna allt að 150 fermetra leiguhúsnæði fyrir tvo til þrjá einstaklinga sem fullnægi viðmiðum um aðgengi og þjónustu af þessu tagi. Hafa sveitarfélögin til 20. október að koma með tillögur. Eins og áður hefur fram komið hefur Reykjavíkurborg viljað losna við öryggisvistun sína í Seljahverfi en þar hafa íbúar kvartað yfir nálægð við hana. Fyrir skemmstu slapp maður úr öryggisvistun á Akureyri og tók barn hálstaki. Samkvæmt áætlunum verður nýja öryggisvistunin í Reykjanesbæ ekki í íbúabyggð eins og þær í Reykjavík og á Akureyri. – khg Leita að nýju húsnæði undir öryggisvistun Félagsmálaráðherra mótar nú heildstæða stefnu um öryggisvist- anir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI LAUGARVATN „Ég tel að sveitarfélag- ið sé skaðabótaskylt ef það verður farið út í þetta,“ segir Jóhannes Helgi Bachmann, sem fær ekki að taka yfir hjólhýsabyggð við Laugar- vatn, sem á að rýma. Sveitarstjórn hafnaði í liðinni viku erindi Jóhannesar um að „taka yfir til eignar og sjá um endurbætur og uppbyggingu“ á hjólhýsasvæð- inu við Laugarvatn. Sveitarstjórnin ákvað í september að svæðið yrði rýmt á næstu tveimur árum. „Ástæðan fyrir því að þetta þarf að víkja snýr að öryggismálum og er verið að bregðast við ábend- ingum lögreglustjórans á Suður- landi, slökkviliðsstjóra Bruna- varna Árnessýslu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar,“ segir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Blá- skógabyggðar. „Þetta er alveg út í hött. Það er búið að leyfa uppbyggingu á margra milljóna króna mannvirkjum og svo á bara að rýma svæðið,“ segir Jóhannes sem kveðst sjálfur hafa skipulagt sumarhúsasvæði á landi Markar í Villingaholtshreppi. „Ég bauð að ég myndi fjármagna allar breytingar og viðbætur. Það þarf að grisja svæðið og stækka það og gera betri fráveitu og betri vatnsmál og eldvarnir. Þetta er alveg hægt en kostar bara peninga. Ég bauð þeim að sjá um þetta og ég fengi svæðið í staðinn til eignar,“ segir Jóhannes. Hjólhýsahverfið við Laugarvatn á sér um hálfrar aldar sögu. Þar eru um 200 hjólhýsi. „Þegar það er leyft að byggja upp, þó svo að það sé ekki í samningi, þá er komin hefð sem verður lögbundin á vissum árafjölda. Með því að leyfa þetta eru þeir búnir að skapa grundvöll fyrir skaðabótaskyldu – ef þeir ætla að láta rýma svæðið,“ fullyrðir Jóhannes. „Ég tel engar líkur á að sveitar- félagið komi til með að þurfa að greiða bætur,“ segir Ásta sveitar- stjóri hins vegar. „Samningar eru til tiltekins tíma og ljóst að verði ekki um framlengingar að ræða þá þurfa leigutakar að fjarlægja sína muni og mannvirki.“ Jóhannes telur sveitarstjórnina ekki átta sig á tekjum sem kastað verði á glæ. Sveitarfélagið myndi fá gjöld af fyrirtæki hans, verktakar fá vinnu og verslanir viðskipti. „Það er vöntun á svona góðu hjól- hýsasvæði,“ segir Jóhannes. „Öll þessi hýsi eru grunnurinn að því að gera löglegt og vandað svæði.“ Meðal þess sem gera þyrfti er að tryggja brunavarnir, betrumbæta vatnsleiðslur og frárennsli og grisja bæði gróður og byggðina, að sögn Jóhannesar. „Ég er sjálfur fyrrver- andi slökkviliðsmaður og veit hvað þarf til. Það þarf að taka annað hvert hús og stækka svæðið þann- ig að það sé lengra á milli húsanna,“ segir hann. Jóhannes kveðst engin rök hafa fengið fyrir því að honum var synj- að. „Það er eins og það liggi eitthvað annað að baki þarna. Flest byggðar- lög myndu berjast fyrir því að fá svona tækifæri.“ gar@frettabladid.is Sveitarstjórinn segir eigendur hjólhýsa ekki fá skaðabætur Jóhannes Helgi Bachmann, sem bauð Bláskógabyggð að taka yfir hjólhýsasvæði sem leggja á niður við Laugarvatn, segir líkt og sveitarstjórnin geri sér ekki grein fyrir þeim tekjum sem fari úr sveitarfélaginu með hjólhýsunum. Hann telur hefð skapa hjólhýsaeigendum bótarétt en sveitarstjóri hafnar öllu slíku. Margar fjölskyldur hafa lengi átt athvarf í hverfi sem nú telur um 200 hjólhýsi við Laugarvatn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI HEILBRIGÐISMÁL Tæplega 300 heil- brigðisstarfsmenn hafa skráð sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu í haust samanborið við rúmlega 1.100 í vor. Þetta kemur fram í svari heil- brigðisráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Á fyrstu tveimur vikunum eftir að tilkynnt var um samkomubann í mars voru meira en 500 skráningar. Í byrjun apríl voru meira en þúsund skráðir og var talan komin upp í 1.159 í lok apríl. Í september, þegar hin svokall- aða þriðja bylgja COVID-19 hófst, var tekin ákvörðun um að endur- vekja bakvarðasveitina, byrja á núlli og óska eftir nýskráningu. Ástæðurnar voru tvíþættar. Bæði höfðu aðstæður þeirra sem höfðu skráð sig breyst auk þess sem heil- brigðisstofnanir óskuðu eftir því að atriðum yrði bætt við skráninguna til að einfalda ráðningar. Frá því að bak varða sveitin var aftur sett á laggirnar 21. september til gær- dagsins höfðu 297 skráð sig. Hlutfallsleg fækkun hefur ekki verið meiri í einum hópi heilbrigð- isstarfsmanna umfram annan. Í vor höfðu 275 hjúkrunarfræðingar skráð sig samanborið við 55 nú. Þá hefur fjöldi lækna farið úr 107 í 35, sjúkraflutningamanna úr 102 í 40 og sjúkraliða úr 238 í 63. Aðeins 31 hefur áður starfað sem bakvörður. Rúmur helmingur þeirra sem skráðir er nú í bakvarðasveitina getur helst sinnt sjúklingum með COVID-19. Þá vilja 190 helst vinna á Landspítalanum og 144 á Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. 25 vilja helst starfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri. – ab Mun færri skráðir í bakvarðasveit en í vor Í gær voru 23 inniliggjandi á heil- brigðisstofnunum með COVID-19. Ný vistun í Reykjanesbæ verður tekin í notkun árið 2023. Samningar eru til tiltekins tíma og ljóst að verði ekki um framlengingar að ræða þá þurfa leigutakar að fjarlægja sína muni og mannvirki. Ásta Stefánsdótt- ir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar 1 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.