Fréttablaðið - 13.10.2020, Qupperneq 12
Sem hjúkrunarfræðingur er ég mjög meðvituð um mikil-vægi heilbrigðrar þarmaflóru
og góðrar meltingar og því fagna
ég allri umræðu um hægðir og
klósettferðir fólks. Í gegnum mitt
starf og einkalíf hef ég áttað mig á
hversu stór partur af heilsu fólks
er tengdur meltingarveginum.
Mér finnst algerlega nauðsyn-
legt að hver og einn hugi að sinni
„hægðaheilsu“ og sem betur fer er
þetta málefni mér engan veginn
óþægilegt eða viðkvæmt. Fjöl-
skyldunni minni finnst þó algjör
óþarfi að ræða þessa hluti við eld-
húsborðið, yfir kvöldmatnum eða
fyrir framan gesti og gangandi en
mér finnst það hið besta mál og vil
leggja mitt af mörkum til að dætur
mínar skilji mikilvægi heilbrigðrar
meltingar. Það að fara á klósettið
og pæla í því sem lendir þar er bara
nauðsynlegt heilsutékk. Þeir sem
þekkja mig vel vita að ég á það til
að vera með hægðir á heilanum.
Ekki í orðsins fyllstu merkingu en
svona allt að því. Ástæðan er ein-
faldlega sú að ég sjálf hef glímt við
meltingarvandamál um árabil sem
kallast hægðatregða og hefur oft á
tíðum gert mér lífið leitt.
Ótalmargir einstaklingar á
öllum aldri glíma við þennan
hvimleiða kvilla og vita nákvæm-
lega hvað ég er að tala um. Ein
líklegasta ástæðan og upphaf þess
að ég fæ þessa meltingarkvilla má
rekja til sýklalyfjagjafar vegna sýk-
ingar í móðurlífi í kjölfarið á barns-
fæðingum. Mikið gríðarlega var ég
þakklát fyrir sýklalyfin og endur-
heimt heilsunnar en eftir sátu
þarmarnir með bakteríuflóruna í
algeru ójafnvægi og reglubundin
hægðalosun heyrði sögunni til. Það
er frekar þreytandi þegar ekkert
er að frétta og þarmarnir bara í
fríi og börnin þín halda að þú sért
komin sex mánuði á leið og eigi
von á systkini. Það er líka mjög
þreytandi að vera alveg stíflaður og
finna þreytu og slen byggjast upp
í takt við þensluna á kviðnum. Nú
fer þetta að verða meira og meira
spennandi, frásagnargleði mín fer
á flug og ég ætla því að fá að deila
með ykkur ferðasögu síðasta árs.
Við fjölskyldan dvöldum á
Tenerife í tæpar tvær vikur í fyrra.
Ég gerði þau skelfilegu mistök að
taka ekki með mér neina góð-
gerla því ég hélt að hægt væri að
kaupa slíkt í næsta heilsuhúsi á
eyjunni í Atlantshafi. Ónei, ekki
aldeilis. Eyjarskeggjar eru eflaust
flestir með fína meltingarheilsu því
hvergi fann ég heilsuhús eða apó-
tek sem seldi slíkar gersemar sem
meltingarensím og fjölgerlar eru.
Að kaupa kröftug laxativ-lyf var
alveg síðasta sort því ég nennti ekki
að ganga í hægðum mínum í fína
sundbolnum á ströndinni. Loks
á degi sjö í hægðastoppi fann ég
einhverja rándýra góðgerlablöndu
en þrátt fyrir að hafa klárað alla
pakkninguna næstu daga hafði það
engin áhrif. Allir gerlarnir greini-
lega löngu dauðir úr hita og ég hélt
áfram að burðast með nokkur kíló
af úrgangsefnum sem sátu sem
fastast. Ég flaug heim til Íslands
töluvert sverari um mig miðja og
tilkynnti fjölskyldunni minni að
einungis eitt grjóthart lambasparð
hefði skilað sér í skálina allt fríið.
Þeim fannst ég ekki fyndin!
Ég hef í mörg ár þurft að taka
inn góðgerla og ég hef ekki tölu á
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Meltingar-
kvillar eru úr
sögunni hjá
Laufeyju eftir
hún fór að taka
inn Bio-Kult
að staðaldri.
MYNDIR/AÐSENDAR
Bio-Kult góðgerlar fyrir alla fjölskylduna. Bio-Kult Candéa og Original
henta fyrir alla, einnig barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn.
Ávallt er mælt með að ráðfæra sig við lækni fyrir inntöku fæðubótarefna.
Lifrin er stærsti kirtill líkamans, hún gegnir yfir 100 mismunandi hlutverkum í
líkamanum og er aðal efnaskipta-
líffæri líkamans. Í raun er hún
efnaverksmiðja sem starfar allan
sólarhringinn því án hennar ætti
engin brennsla sér stað í líkam-
anum. Að auki væri blóðrásin ekki
eðlileg, hormónabúskapurinn færi
úr jafnvægi, óhreinindi myndu
safnast í blóði og ótalmargt f leira
færi úr skorðum. Þreyta og þrótt-
leysi geta verið merki um að mikið
álag sé á lifrinni.
Lífsstíll hefur áhrif
Það geta verið margar ástæður fyrir
því að lifrin er ekki að virka eins
og hún ætti að gera og fjölmargt í
lífsstíl okkar sem getur haft áhrif
þar á og ýtt undir fitusöfnun í lifur
sem í daglegu tali kallast fitulifur.
Fitulifur er hægt að laga og gott er
að hafa í huga að það eru ákveðin
matvæli sem ráðlegt er að neyta í
hófi eða sleppa til að viðhalda heil-
brigðri lifur, það eru til dæmis:
n Áfengi og koffín
n Unnin matvara og djúpsteiktur
matur
n Auka-/gerviefni
n Sykraðir drykkir og snakk
Active Liver
Active Liver frá New Nordic er
gríðarlega vinsæl vara og fjöl-
Betri líðan og aukin orka
Lifrin sinnir yfir 100 mismunandi hlutverkum í líkamanum og tengist hún beint eða óbeint allri
líkamsstarfseminni. Active Liver reynist mörgum vel við að viðhalda heilbrigði lifrarinnar.
Jóna Hjálmarsdóttir sjúkraliði: „Ég fann fljótlega mun en orkan jókst og mér finnst auðveldara
að halda mér í réttri þyngd. Ég finn líka mun á húðinni en hún ljómar meira og er mýkri.“
Það að fara á
klósettið og pæla í
því sem lendir þar er
bara nauðsynlegt heilsu-
tékk.
Í kínverskum
lækningum til
forna var sagt: „Læknir
sem getur stillt af starf-
semi lifrarinnar, veit
hvernig á að lækna
hundrað sjúkdóma.“
margir finna fyrir almennt betri
líðan við inntöku. Eins og nafnið
gefur til kynna eflir þetta bætiefni
lifrarstarfsemi og getur aukin orka
verið eitt af einkennum heilbrigðr-
ar lifrar. Active Liver inniheldur
mjólkurþistil, ætiþistil og kólín
sem stuðlar að:
n Eðlilegum fituefnaskiptum
n Eðlilegri starfsemi lifrar
n Eðlilegum efnaskiptum er varða
amínósýruna hómósystein
Að auki inniheldur Active Liver
túrmerik og svartan pipar.
Auðveldara að halda mér
í réttri þyngd
Jóna Hjálmarsdóttir sjúkraliði
hefur lengi notað Active Liver:
„Ég er mjög meðvituð um
líkamsstarfsemina og veit að
fita getur safnast á lifrina. Ég
ákvað að prófa Active Liver
eftir að ég sá að það er gert úr
náttúrulegum efnum. Ég fann
f ljótlega mun á orkunni og mér
finnst auðveldara að halda mér í
réttri þyngd. Ég finn líka mun á
húðinni en hún ljómar meira og
er mýkri.
Ég er mjög ánægð með
árangurinn og mæli með Active
Liver fyrir fólk sem hugsar um
heilsuna og vill halda melting-
unni góðri.“
Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og
Framhald af forsíðu ➛
því hve miklum fjármunum ég hef
eytt í alls konar vörur sem stuðla
að öflugri og betri meltingu og
heilbrigðari þarmaflóru. Sumt
virkar og annað alls ekki. Það er
því með mikilli ánægju sem ég segi
frá reynslu minni af Bio-Kult sem
ég hef notað með hléum undan-
farin ár en sem ég hef nú gefið
meiri gaum og tekið að staðaldri.
Ég ákvað í ljósi minnar reynslu og
tregðu að taka tvöfaldan skammt
í tvær vikur af bæði Bio-Kult og
Bio-Kult Candéa. Með því móti
náði ég að koma öllu vel af stað og
ná jafnvægi. Í dag tek ég ráðlagðan
skammt bæði kvölds og morgna og
finn að það hefur mjög góð áhrif
á meltinguna og garnahljóðin eru
fyrir mér kærkominn og ómfagur
hljómur. Enn fremur þoli ég betur
flestalla fæðu núna.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R