Fréttablaðið - 13.10.2020, Page 30

Fréttablaðið - 13.10.2020, Page 30
Hrek k java k a n er á sínum st að í dagatalinu þann 31.  október en þó er nú þegar ljóst að hún verður eitt- hvað bragðdaufari og öðruvísi en venjulega enda getur varla talist til eftirbreytni að fara í hópum milli húsa, banka upp á hjá ókunnugum og troða þar lúkunum í nammis- kálar. „Þetta er ekkert sama örtröðin. Kannski bara sem betur fer og þá er fólk að fara eftir reglunum,“ segir Valgerður Gunnarsdóttir, versl- unarstjóri í Partíbúðinni, þegar ellefu dagar eru í hrekkjavöku og munurinn á stemningunni milli ára er þegar merkjanlegur. Engir sénsar teknir „Við finnum það alveg en það er ekki mikill munur á krökkunum. Það verður eitthvað í skólanum og svona,“ heldur hún áfram og segir ljóst að krakkarnir séu ekki af baki dottnir þótt útlit sé fyrir öðru- vísi hrekkjavöku en þau hafa átt að venjast undanfarin ár. „En við finnum mun á fullorðna fólkinu og ljóst að það verða engin risa hrekkja vökupartí. Við erum nýlega búin að opna netverslun og þar er brjálað að gera og þar finnum við að fólk ætlar greinilega bara að gera sér glaðan dag heima.“ Jóhann K. Jóhannsson, sam- skiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir allt of snemmt að segja til um hvort tekið verði sérstaklega á hrekkjavökunni með tilmælum eða leiðbeiningum. „Við eigum eftir að sjá hvað gerist 19. þegar samkomutakmarkanir innanlands verða endurskoðaðar. Staðan verður endurmetin þá.“ Geislavirkar pláguvarnir Partíbúðin hefur verið í brennidepli í kringum hrekkjavökur síðustu ára og verslunarstjóranum sýnist ljóst að fólk sé almennt nú þegar búið að ákveða að fara sérlega varlega á Halloween núna. „Það sem við heyrum er að fólk ætlar frekar að gera vel við sig heima. Skreyta heima, leyfa krökkunum að vera í búningi en kannski ekkert fara mikið út á við. Við finnum alveg að það er hugur í fólki en það er að fara varlega,“ segir Valgerður og bætir aðspurð við að ýmislegt bendi til þess að veiran hafi einnig talsverð áhrif á búninga- tísku ársins. „Við erum með plágugrímur og svona Chernobyl-galla og mér sýn- ist þetta verða svolítið þannig ár.“ Graskerjateljarar Vesturbærinn hefur verið áber- andi líf legur á hrekkjavökum síð- ustu ára og þar stilla foreldrar og Hallow een-fólk saman strengi sína í Facebook-hópnum Hrekkjavaka í 107 & 101 Vesturbær sem telur um 1.600 manns. Þar er hugur í mannskapnum og stemning fyrir því að skreyta húsin eins og venjulega en láta sælgætið og „grikk eða gott“ heimsóknirnar eiga sig og stefna grímubúninga- klæddum krökkunum frekar í ein- hvers konar ratleiki um hverfið þar sem þau geti talið grasker, haus- kúpur eða aðra slíka hrollvaka. Ekki ósvipað bangsatalningunum sem urðu vinsæl dægradvöl í fyrstu bylgju faraldursins. Með þessu móti geti fólk brugðið á leik sér og krökkunum í hverfinu til ánægju án þess að tefla sóttvörn- um í tvísýnu þar sem hægt sé að umbuna þeim fyrir að ná ákveðn- um fjölda í talningunni með nammi þegar heim er komið. Kynjaverur í Borgarbyggð Fjögur ár eru síðan byrjað var að halda hrekkjavökuna hátíðlega með skipulögðum hætti í Borgarbyggð. Stjórnendur Facebook-hópsins Hrekkjavaka í Borgarbyggð 2020 segja að í ljósi sívaxandi vinsælda hafi verið ákveðið nýlega að halda í hefðina með tilheyrandi varúðar- ráðstöfunum. „Bæjarbúar sem vilja fá heimsókn frá ýmsum kynjaverum setja út hjá sér útikerti eða skreytingar til að krakkarnir viti hvaða hús tekur á móti þeim. Borgarbyggð er með lítil sem engin smit og við viljum halda því þannig,“ segja þau og benda á að upplagt sé að taka þátt með því að skreyta húsin og veifa svo krökk- unum úr glugganum. Þessi áform eru þó öll með þeim fyrirvara að almannavarnir gefi grænt ljós á hrekkjavökugleðina. „Við hlýðum Víði og frestum þessu til næsta árs ef aðstæður verða þannig.“ toti@frettabladid.is odduraevar@frettabladid.is EN VIÐ FINNUM MUN Á FULLORÐNA FÓLKINU OG LJÓST AÐ ÞAÐ VERÐA ENGIN RISA HREKKJAVÖKUPARTÍ. Valgerður Gunnarsdóttir Óvissa hjá almannavörnum á meðan bragðdeyfð hrekkjavaka færist nær Vesturbærinn iðar af lífi á hrekkjavöku sem er orðinn fastur liður þar þegar litskrúðugar forynjur og furðukvikindi fara mikinn og ungir og eldri virðast ekki ætla að láta veiruskömmina spilla allri gleðinni í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Nú getur grikkur fylgt gottinu og allur varinn því góður. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Börn og foreldrar undirbúa öðruvísi hrekkjavöku í skugga heimsfaraldursins sem verður væntanlega helsta hrollvekja ærslakvöldsins 31. október. Almannavarnir bíða átekta á meðan mun rólegra er í Partí­ búðinni núna en venjulega um þetta leyti. 1 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.