Austri - 12.01.1995, Síða 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum,I2. janúar 1995.
Útgefandi: KSFA
Skrifstofa Austra Tjarnarbraut 19, 700 Egiisstaðir,
pósthólf 173, sími 97-11984, fax 97-12284.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson.
Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir.
Blaðamenn: Arndís Þorvaldsdóttir og Marinó Marinósson.
Auglýsingar: Sími 97-11984, Sigrún Lárusdóttir.
Áskrift: Sími 97-11984, Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir.
Áskrift kr. 100 pr. blað. Lausasöluverð kr. 120,-
Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum.
Austri kemur út á fimmtudögum.
Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 föstudaga.
Efni skal skila á diskum eða vélrituðu.
Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Gatt
samningurinn
Samkomulag tókst á Alþingi fyrir áramótin um „full-
gildingu samnings um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnun-
ar“ eins og það heitir á opinbem máli. Hér er um að ræða
Gatt samninginn sem er stærsti samningur um alþjóðavið-
skipti sem gerður hefur verið. Viðræður um hann hófust
árið 1986 í Uruguay, og hann var undirritaður með fyrir-
vara um samþykki þjóðþinga í Marokko þann 15. apríl
1994.
Eins og gefur að skilja var samningaferillinn ekki átaka-
laus og svo var ekki heldur hér á landi. Deilumar hér-
lendis stóðu ekki um samkomulagið sem heild, heldur
vom átök á sínum tíma um tilboð Islands varðandi land-
búnaðrmálin og ekki síður innan ríkisstjómarinnar um
forræðið varðandi innflutnig landbúnaðarvara.
Landbúnaðarkafli samningsins hefur eðlilega verið
mest í umræðunni því að samningurinn veldur mestri ó-
vissu fyrir þá atvinnugrein, og getur, ef samkeppnisstaða
hennar er ekki jöfnuð, haft alvarleg áhrif.
Hins vegar er þetta samkomulag jákvætt fyrir aðrar at-
vinnugreinar, því íslendingar eiga mikið undir því að
njóta bestu kjara í útflutningi. Samkvæmt samningnum
ætti útflutningur fiskafurða á markaði vestan hafs og í
Japan að njóta umtalsverðra tollalækkana. Sama gildir
um iðnaðarvömr. Þessir markaðir em okkur afar mikil-
vægir.
I samkomulaginu sem náðist á Alþingi er ítrekað að
,,þrátt fyrir fullgildingu samningisins gildi óbreytt skipu-
lag á innflutningi landbúnaðarafurða þar til lögum hefur
verið breytt með hliðsjón af samningnum. Landbúnaðar-
ráðherra verði tryggt forræði um allar efnislagar ákvarð-
anir í því stjómkerfi sem varðar landbúnað og innflutning
landbúnaðarvara og komið verður á fót á gmndvelli álykt-
unarinnar.”
Það er fagnaðarefni að almenn samstaða náðist um
þessi mál, því afar mikilvægt er að landbúnaðurinn einn
verði ekki látinn gjalda samningsins. Á þessu reyndist
skilningur á Alþingi, og þess vegna náðist samkomulagið.
Það er nauðsyn að víðsýni ráði í þessum efnum, og það
getur tæpast verið hagur neytenda að knésetja landbúnað-
inn. Það yrði eingöngu til þess að auka erfiðleika í at-
vinnumálum hérlendis, og kæmi niður á neytendum í einu
eða öðm formi.
Ef landbúnaðurinn fær aðlögunartíma getur samningur-
inn einnig gefið möguleika og liðkað fyrir útflutningi
landbúnaðarvara. Þá möguleika þarf að grandskoða.
J.K.
Akið varlega!
Hún leynist víða, hálkan
Umferðarráð
Fundir Alþingis stóðu á milli
jóla og nýárs að þessu sinni. Venj-
an er að ljúka þinghaldinu fyrir jól,
en þó er ekki einsdæmi að fundir
standi milli hátíðanna. Dæmi um
það er árið 1987 er þá stóðu fundir
fram í janúar 1988, vegna stórmála
sem þá voru til afgreiðslu svo sem
löggjafar um kvótakerfi í fiskveið-
um.
Tímahrak
Hins vegar var það athyglisvert
nú að þingið stóð ekki fram yfir
áramótin vegna málafjölda frá rík-
isstjóminni. Satt að segja var ekki
mikið af málum frá henni sem lágu
fyrir utan hinna venjulegu
fylgifrumvarpa fjárlaga, og fjárlag-
anna sjálfra. Hins vegar vom þau
frumvörp komin afar seint fram,
eða rétt fyrir jól. Löggjöf um
breytingar í skattamálum er afar
flókin og vandasöm og það þarf að
skoða vel áhrif þeirra. Það er mjög
leiður siður að vinna þessi mál í
tímapressu um það leiti sem fjárlög
verða að vera tilbúin.
Tafir vegna kosningaumræðu
og afsagnar.
Það var alveg ljóst að þessi
dráttur á framlagningu mála var
vegna þess að það hægði á allri
vinnu ráðuneyta við undirbúning
mála í sumar þegar umtal um al-
þingiskosningar á síðastliðnu hausti
var í hámarki. Einnig var það ljóst
að hinar miklu sviptingar sem urðu
í haust í kring um embætti félags-
málaráðherra seinkuðu málatilbún-
aði og tóku tíma ráðherra og
flokksforingja. Það gengur mikið á
í fjölmiðlum í kring um þessa at-
burði, en það er ekki síður mikið
um að vera á bak við tjöldin í kring
um atburð á borð við þann þegar
ráðherra segir af sér.
Þær staðreyndir voru viður-
kenndar af stjórnarliðum í viðtölum
við fjölmiðla að atburðir síðasta
misseris í stjómarsamstarfinu hefðu
tafið framgang mála.
Afstaða stjórnarandstöðu.
Fjárlög og fylgifrumvörp þeirra
em að sjálfsögðu á ábyrgð stjórnar-
liða hverju sinni. Eigi að síður
vinnur stjómarandstaðan að yfir-
ferð þeirra í Alþingi ásamt þeim og
hefur áhrif í gegn um það, þótt
heildarstefnan sé ríkisstjómarinnar.
Fjárlagafrumvarp tekur ætíð all-
miklum breytingum eftir að fjár-
laganefnd hefur fjallað um það, en
hins vegar ákveður ríkisstjóm og
starfandi þingmeirihluti rammann
og hverju er úr að spila, og meiri-
hluti fjárlaganefndar vinnur sín
verk í samráði við ríkisstjómina.
Stjórnarandstaðan sat hjá við fjár-
laglafrumvarpið sem heild, en
greiddi atkvæði með einstökum
breytingartillögum sem unnar voru
í Alþingi.
Samningar um þinglok
Það hefur löngum verið svo að í
samningum um þinglokin fær
stjórnarandstaðan fram einhver mál
sem hún setur á oddinn. Að þessu
sinni voru tvær breytingar sem
gerðar voru síðustu klukkutímana í
ríkisfjármálunum. Skerðing fram-
kvæmda í flugmálum var lækkuð
um 30 milljónir króna og ákveðið
var að halda embættum héraðs-
lækna á Akureyri og í Reykjavík,
en ætlunin var að leggja þessis
embætti niður.
Gatt samningurinn var staðfest-
ur milli jóla og nýárs, en um hann
er fjallað í leiðara Austra í dag.
Æðarrækt-
*
arfélag Is-
lands undir-
býr rit um
æðarfugl
Æðarræktarfélag íslands sem
varð 25 ára á síðasta ári hefur á-
kveðið að hefja undirbúning að út-
gáfu ritverks um æðarfugl. Þetta
kom fram á aðlafudni félagsins 12.
nóvember. Stjórn Æ.I. hefur skip-
að ritnefnd til að vinna ritverkið.
Einn ritnefndarmanna, sr. Þorleifur
Kristmundsson frá Kolfreyjustað,
hefur á 39 ára starfsferli sínum
sinnt æðarvarpinu þar með þeim
hætti að það er nú í röð stærri æð-
arvarpa landsins. Fram kom á að-
alfundinum að sala á æðardúni
virðist vera að glæðast og í lok
september sl. voru rúm 2500 kg.
dúns farin úr landi. Á fundinum var
Sæmundur Stefánsson frá Völlum í
Svarfaðardal kjörinn heiðursfélagi
en hann mun fyrstur hafa hreyft
hugmyndinni að stofna félagið.
Formaður Æ.í. er Davíð Gíslason,
Garðabæ. Unnið upp úr fréttatil-
kynningu.
Nýútkomin
bók frá ís-
lenska kilju-
klúbbnum
“Nóttin hlustar á mig” eftir
Þuríði Guðmundsdóttur er 7. ljóða-
bók höfundar. Ljóðin í bókinni eru
í þremur flokkum. Sá fyrsti nefnist
Tjarnljóð, annar Blóm þagnarinnar
og þriðji flokkurinn ber heitið Nótt-
in hlustar á mig.
Knattspyrnudeild
Hattar
með Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð Knattspymu-
deildar Hattar var haldin í Hótel
Valaskjálf 30. desember síðast-
liðinn. Um 80 manns sóttu hátíðina
sem var hin glæsilegasta. Boðið var
upp á skemmtiatriði undir borðum
og á eftir stiginn dans við undirleik
hljómsveitarinnar Austurland að
Glettingi. Á Uppskeruhátíðinni
voru félögum í meistaraflokki karla
og kvenna veittar viðurkenningar.
Eysteinn Hauksson var valinn besti
leikmaður í meistaraflokki karla en
jafnframt hlaut hann viður-
kenningar fyrir að vera markahæsti
leikmaðurinn og fyrir 50 deildar-
leiki. Haraldur Klausen fékk
viðurkenningu fyrir að hafa sýnt
mestar framfarir á tímbilinu og
fyrir 100 deildarleiki. Jón Kristins-
son hlaut einnig viðurkenningu
fyrir 100 deildarleiki og Baldur
Bragason fyrir 50 deildarleiki.
Besti leikmaður í meistaraflokki
kvenna var valin Oddný Freyja
Jökulsdóttir. Hugrún Hjálmars-
dóttir var valin efnilegasti leik-
maðurinn, en viðurkenningu fyrir
flest mörk í meistaraflokki kvenna
fékk Adda Birna Hjálmarsdóttir.
Sem kunnugt er er fjárhagur deild-
arinnar bágur og miklar skuldir
hafa safnast upp, bæði vegna
ferðakostnaðar liðanna og þjálfara
sem oft og tíðum hafa verið
aðkomumenn sem orðið hefur að
sjá fyrir húsnæði og því verið
dýrari í rekstri en ella.
Knattspymumenn hafa snúið
bökum saman og hyggjast breyta
vöm í sókn. Gerðar hafa verið
ákveðnar skipulagsbreytingar og
kannaðar leiðir til tekjuöflunar og
er stefnt að því að gera deildina
skuldlausa á þremur til fimm ámm.
Þjálfari meistaraflokks karla hefur
verið ráðinn og er hann að þessu
sinni heimamaður, Ámi Ólason,
íþróttakennari og hófu leikmenn
æfingar undir hans stjóm í
nóvember. Framkvæmdastjóri
Knattspymudeildar hefur verið
ráðinn Hilmar Guðlaugsson og
mun hann fyrst og fremst beina
kröftum sínum að fjáröflunar-
málum og er þegar komið á
laggimar verkefni sem lýtur að
auglýsingasölu. A.Þ.
Leikið með knöttinn mynd Pétur Eiðsson