Austri - 12.01.1995, Qupperneq 3
Egilsstöðum,12. janúar 1995.
AUSTRI
3
Austfírðingur
ársins valinn
Rúnar Kristinsson, bifreiðarstjóri
á Eskifirði var af hlustendum
svæðisútvarps valinn Austfirðingur
ársins, en Rúnar sýndi mikið snar-
ræði þegar hann bjargaði fjórum
manneskjum úr bíl eftir árekstur á
Fagradal. Næst flestar tilnefningar
fékk Bjöm Andrésson blaðberi í
Fellabæ, en hann bjargaði bami
sem fast var í leðju upp úr hús-
gmnni. Þriðja sætið hreppti Sigríð-
ur Dóra Sverrisdóttir, menningar-
frömuður á Vopnafirði, en hún
vann ótrauð að eflingu menningar í
sínum heimabæ og stóð meðal ann-
ars að því að settar vom þar upp
tvær myndlistarsýningar með verk-
um Errós og Stefáns frá Möðrudal.
Að venju tóku fjölmargir þátt í
valinu og vom alls 52 nefndir til
sögunnar. Austfirðingur ársins fær
til varðveislu farandbikar sem Hót-
el Valaskjálf hefur gefið.
A.Þ.
Myndin var tekin 15. mars á síðasta ári á Fagradal þegar slysið varð og sést að mjög
slœmar aðstœður voru slysstað vegna skafrennings. Austramynd M.M.
Rækjuvinnslan
malar gull
Rækjuvinnsla Hraðfrystihúss
Eskifjarðar framleiddi á síðasta ári
um 3500 lestir af rækju að verð-
mæti 500 milljónir. Engri rækju
hefur verið landað á Eskifirði það
sem af er árinu en verið er að vinna
birgðir sem áætlað er að dugi
vinnslunni til 26. febrúar. Að sögn
Búa Birgissonar, verkstjóra verður
þá vinnsla stöðvuð tímabundið og
farið í nauðsynlegt viðhald og end-
urbætur á húsnæði. Áætlað er að
starfsfólk vinnslunar, um 20 manns
fái störf við loðnufrystingu á með-
an.
AÞ
BÆTT HEILSA
og betra líf
í dag skrifar Þuríður Backman
Umsjón:
Sigurborg Kr. Hannesdóttir.sími 12143
S
Aramótaheitið.
Um áramótin líta flestir yftr farinn
veg og meta stöðu sína. Enn eitt árið
er að baki og við höfum ekki ein-
göngu öðlast meiri þroska og lífs-
reynslu, heldur má einnig sjá og
finna það á skrokknum.
Eftir að hafa vegið og metið lífs-
stflinn, fylgst með aukakflóunum,
hrukkunum og viðurkennt úthalds-
leysið þá sjá margir að við svo búið
má ekki lengur standa. Áramóta-
heitið er því oft í þeim anda að bæta
sig nú og taka upp hollari og betri
lífsstfl. Reykingamenn nota einnig
þessi tímamót til að hætta að reykja.
Hætt er við að heitið standi ekki
lengi ef um skyndiákvörðun er að
ræða. Það að hætta reykingum þarf
góðan undirbúning svo ætlunin
standi.til frambúðar. Að hætta að
reykja er aðeins einn þáttur í nýjum
og betri lífsstfl.
Fátt fer eins í taugarnar á reyk-
ingamönnum og að heyra sögur af
fólki, sem “bara” hætti eins og ekk-
ert væri. Reykingamenn eru mis-
miklir nikotínistar og eðli manna er
misjafnt og því gengur mönnum
misvel í reykbindindi. Nikotín er
mjög sterkt ávanabindandi efni og er
nú flokkað með heróíni og kókaíni.
Því eiga þeir sem eru mjög háðir
efninu ekki að láta hugfallast þó þeir
falli í reykbindindi heldur taka aftur
upp þráðinn, þegar þeim finnst þeir
vera tilbúnir í þá vinnu sem fylgir
því að hætta tóbaksnotkun. Það að
hætta að reykja er vinna,vinna sem
krefst þess að skoða sálarlífið, líðan-
ina almennt, heimilislífið, vinnuum-
hverfið og reyna með því að gera sér
grein fyrir því hvers vegna viðkom-
andi reykir.
Líkamleg einkenni koma fram á
mislöngum tíma hjá einstaklingum
og eins eru þau mismunandi eftir
kynjum. Æðaþrenglsi koma fyrr
fram hjá körlum og óttinn við
kransæðastíflu eða einkenni frá
hjarta hjálpar því körlum að hætta
alveg reykingum. Þeir karlmenn
sem ungir greinast með kransæða-
stíflu eru nær undantekningalaust
reykingamenn.
Sú vitneskja að reykingar geta
valdið getuleysi hjá miðaldra karl-
mönnum hjálpar einnig til að taka á-
kvörðun og standa við bindindi.
Konur hafa notað reykingar til að
halda vigtinni niðri og uppfylla
þannig einhverja tilbúna kvenímynd.
Það er rétt að reykingar auka
brennslu líkamans og það hægir á
henni þegar hætt er að reykja (meðal
þyngdaraukning kvenna er um 3
kg).. Þar sem margar konur reykja
útlitsins vegna þá kaupa þær hold-
arfarið dýru verði, því húðin verður
fölleit og hrukkur í andliti gera við-
komandi mörgum árum eldri. En
það eru fleiri og alvarlegri þættir,
sem reykingamenn eiga að þekkja
til að meta sjálfir hvaða áhættu þeir
eru að taka með því að reykja á-
fram.
Reykingar eru einn aðal áhættu-
þáttur æðasjúkdóma og veldur m.a.
æðakölkun, æðaþelssjúkdómum og
blóðflæðistruflunum. Áhættan
margfaldast ef aðrir áhættuþættir
eru til staðar og hún eykst í réttu
hlutfalli við hve mikið er reykt.
Tóbaksnotkun hefur áhrif á mynd-
un krabbameins víða í líkamanum
og er aðaláhættuþáttur lungna-
krabbameins.
Ef reykingum er hætt minnka
lflcur á kransæðastíflu og skyndi-
dauða um helming á 1-2 árum. Lík-
urnar minnka síðan enn frekar
smátt og smátt á 10-20 árum.
Það er því til mikils að vinna að
ná tökum á fíkninni. Það er mjög
einstaklingsbundið hvemig
reykleysi er best náð. I gegnum
tíðina hafa þróast nokkrar aðferðir
til að hjálpa fólki til reykleysis, en
það skal skýrt tekið fram að engin
þeirra dugar ef reykingamaðurinn
er ekki sjálfur búinn að taka þá á-
kvörðun að hætta og það á við um
áramótaheitið líka.
Að lokum má minna á þá óum-
deilanlegu staðreynd að það að
reykja einn pakka af sígarettum á
dag kostar 100.000.- kr á ári.
Þuríður Backman
fræðslufulltrúi K.í.
íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði
fokhelt á árinu
Nýlega gerði Búðahreppur samn-
ing við Þorstein Bjamason verk-
taka á Fáskrúðsfirði um einn verká-
fanga íþróttahússins á Fáskrúðs-
firði. I þessum áfanga er stefnt að
því að gera húsið fokhelt. Loka
þarf stafni og þakstafni. Gert er
ráð fyrir því að þessum áfanga ljúki
í ágúst á þessu ári.
Fáskrúðsfirðingar gera sér von
um að íþróttahúsið verði tekið í
notkun árið 1997 eða 98. Með
þessu íþróttahúsi og nýja íþrótta-
húsinu í Neskaupsstað ætti að skap-
ast möguleiki til stærri íþróttavið-
burða innanhúss hér austan lands.
MM
Hvers vegna? Vegna þess!
Af hverju eru rauð ljós aðeins
til hliðar við flugbrautina á
Egilsstaðanesinu en ekki fyrir
endanum á brautinni?
Ábendingar hafa komið frá les-
endum Austra að gaman og fróð-
legt væri að fá skýringu á rauðum
ljósum sem búið er að koma fyrir á
ljósastaurunum á Egilsstaðanesi en
vegurinn liggur skáhallt við enda
flugbrautarinnar. Furðu vekur að
ljósin eru aðeins staðsett til hliðar
við flugbrautina (nær Lagarfljóti).
Ingólfur Amarson umdæmis-
stjóri Flugmálastjómar á Austur-
landi sagði í samtali við Austra að
þetta væri samkvæmt reglugerð,
dreginn væri hringur frá vissum
punkti á brautinni og rauð ljós sett
á allar hindranir innan hans.
Þar sem þjóðvegurinn liggur ská-
hallt framhjá brautarendanum lenda
ljósastauramir hægra megin á með-
fylgjandi mynd inni í hringnum en
stauramir fyrir enda brautarinnar
liggja fyrir utan hringinn. Endinn á
flugbrautinni telst ekki til eigin-
legrar brautar heldur öryggissvæði.
Þar með ruglar þetta vegfarendur
því vegurinn liggur á ská framhjá
enda flugbrautarinnar.
Slöngur - Barkar - Tengi
Söluaðilar á
Austurlandi
Bílar og Vélar, Vopnafirði
Síldarvinnslan Neskaupstað
Björn og Kristján, Reyðarfirði
LANDVÉLAR HF
SMIÐJUVEGI 66, KÓPAVOGI
SÍMI 91-76600
Jeppaeigendur
Tvennt ómissandi undir jeppann
General dekk
Snögg og góð inniþjónusta
Keðjur og keðjumrahlutir
Þverklettum 1, Egilsstöðum, sími 12002