Austri - 12.01.1995, Blaðsíða 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum, 12. janúar 1995.
Hugarflug um
atvinnu
í haust fékk Framfarafélag
Fljótsdalshéraðs til liðs við sig
þrjár konur og þrjá karla frá mis-
munandi stöðum á Héraði til að
taka þátt í hugarflugi um atvinnu-
mál með stjóm félagsins. Sérstak-
ur fundarstjóri og ritari skráðu í allt
25 hugmyndir, en síðan hefur verið
unnið og er áfram unnið með tíu
þeirra.
Til þess að aðrir fjórðungsbúar
fái að velta þessum hugmyndum
fyrir sér og e.t.v. finna leiðir til að
koma þeim eða afbrigðum af þeim
í framkvæmd, er ætlunin að birta
þær hér, enda vill Framfarafélagið
alls ekki sofa á þeim, og er fegið að
hver sem er taki einhverja upp eða
hagi henni eftir aðstæðum hjá sér.
Hér er talið upp í sem stystu máli,
en hægt er að fá frekari upplýsingar
hjá undirrituðum eða öðmm úr
stjóm félagsins.
Framleiðsla á HRÚTABERJA-
VÍNI, notkun á VILLTUM
SVEPPUM, t.d. bæði tvennt með
hreindýrakjöti á fínum veitinga-
stöðum.
Setja saman grófa BEKKI,
FUGLAKER/HÚS eða ýmsa
GARÐSSKRAUTMUNI úr ís-
lenskum skógarviði.
HANSAGARDÍNUHREINSUN,
GLUGGAÞVOTTUR utan sem
innan—líklega arðvænlegt út frá
eða á nokkrum stöðum í fjórðungn-
um.
Ferðamenn, innlendir sem er-
lendir, PLANTI SÍNUM EIGIN
TRÉ/TRJÁM; e.t.v. fá það sent til
sín aftur eða sækja sem jólatré eftir
nokkur ár.
GÆSLUVELLIR, LEIKSVÆÐI
þar sem ferðamenn koma—sveitar-
félagið geri þeim þannig auðveld-
ara að staldra við. Atvinna fyrir
gæslumennina, sem ferðamenn og
heimamenn greiða fyrir að hluta.
UMHVERFISFEGRUN þar sem
ferðamenn koma að sveitarfélagi,
t.d. við flugvöllinn á Egilsstöðum.
Skapar atvinnu óbeint.
ENDURVEKJA/FULLNÝTA
möguleika GISTIHÚSSINS Á EG-
ILSSTAÐABÝLI.
UPPÁKOMUR í ATLAVÍK,
sem er þegar þekkt hjá íslending-
um—selja þeim eða útlendingum
ýmsa þjónustu þar.
SAMEIGINLEGT BLAÐ
AUSTFIRÐINGA, ÓFLOKKS-
BUNDIÐ, þar sem ritstjóri (helst í
afdal vegna hins óhóflega hreppa-
rígs!) fær fréttir og þjóðmálaum-
ræðu frá mörgum riturum og öllum
stöðum í gegnum tölvumótald.
Að SVÆÐISÚTVARP flytji á
föstudagsmorgnum “FRAMFARA-
POTTINN”. þar sem hugmyndarík-
ir menn hvaðanæva að úr fjórð-
ungnum geri tillögur um framfara-
mál Austurlands.
Til sem flestra lesenda: Endilega
ræðið þessar hugmyndir ykkar á
milli! Hafið einnig samband ef þið
viljið. Megi þær og sem flestar
aðrar hugmyndir rætast og verða
okkur í fjórðungnum til framfara.
Philip Vogler, s. 11673.
Get-
raun
Uthlutað úr
Menningar sj óði
KASK
Nýlega var úthlutað úr Menning-
arsjóði Austur-Skaftfellinga, en
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga á-
vaxtar þann sjóð. Alls hlutu 17 að-
ilar úthlutun en 23 aðilar sóttu um
styrk úr sjóðnum.
Samtals var úthlutað 620 þúsund
krónum úr sjóðnum. Hæstu styrk-
ina fengu Karlakórinn Jökull,
vegna söngmóts karlakórasam-
bandsins Kötlu í maí n.k. 100 þús-
und krónur. Leikfélag Homafjarðar
100 þúsund krónur vegna fram-
kvæmda við aðsetur félagsins,
Hlöðuna.
Sigurður Ragnarsson Keflavík,
hlaut 80 þúsund krónur vegna rit-
unar á æviskrám Austur-Skaftfell-
inga.
Félag aldraðra á Höfn hlaut 40
þúsund krónur vegna ferðalags fyr-
ir aldrað fólk í sýslunni.
Þeir sem hlutu 25 þúsund krónur
vora: Afmælisnefnd Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga vegna hönn-
unar og uppsetningar á minnis-
merki um stofnun kaupfélagsins.
Lúðrasveit Homafjarðar vegna 20
ára afmælishalds og kaupa á hljóð-
færam. Foreldrafélag Tónskóla
Austur-Skaftafellssýslu vegna
ferðalaga nemenda, tónleikahalds
o.fl. Náttúruvemdarsamtök Austur-
lands vegna könnunar á varpi og
útbreiðslu fugla í A-Skaftafell-
sýslu, Samband A-Skaftfellskra
kvenna vegna námskeiða fyrir kon-
ur í sýslunni. Skógræktarfélag
Austur-Skaftafellssýslu til skóg-
ræktar í Haukafelli á Mýrum.
Starfsmannafélag Kaupfélags Aust-
ur-Skaftfellinga og Borgeyjar hf.
vegna endurbóta á Araseli, sumar-
bústað félagsins. Þorleifur Hjalta-
son í Hólum vegna viðgerðar á
Farmal A dráttarvél sem síðar verð-
ur eign Byggðasafnsins.
Þeir sem hlutu 20 þúsund krónur
vora: Jassklúbbur Hornafjarðar til
tónleikahalds, námskeiða o.fl. Af-
komendur Sólveigar Jónsdóttur og
Valgeirs Bjamasonar Höfn vegna
gróðursetningar í minningarreit.
Harmóníkufélag Homafjarðar
vegna tónleika með finnskum tón-
listarmanni. Jón Guðmundsson og
Elín Guðmundsdóttir Höfn vegna
málverkasýningar Tryggva Ólafs-
sonar og Stangveiðifélag Horna-
fjarðar vegna uppbyggingar ný-
stofnaðs félags.
Heimild: KASK-Fréttir.
Vissir þú að níu reikistjörnur
snúast um sólu og jörðin er ein
þeirra? Hér koma nokkrar spurn-
ingar og þrautir fyrir þig lesandi
góður. Þetta er aðalega gert til að
hafa gaman af og vonandi hefur þú
líka eitthvert gagna af þessu líka.
1. Veistu hvað jörðin er talin
gömul?
2. Úr hverju er jörðin og hver
er innsti hlutur jarðarinnar?
3. Skiptist storkuberg í tvo
flokka? Já eða Nei.
4. Er Hrafntinna storkuberg?
5. Hvað er það sem nefnt hefur
verið “Svart gull”?
6. Fullyrðing: Hvað er talið að
falli margir loftsteinar á ári, sem
eru þyngri en 100 grömm? :
10.000 loftsteinar. 19.000 loft-
steinar. eða 25.000 Ioftsteinar.
Krossaðu við eitt svar af þessum
fullyrðingum.
7. Finnast baggalútar (hreðja-
steinar) á Austurlandi ? Má svara
Já eða Nei. Gaman væri að fá nán-
ari staðsetningu ef svarið er Já.
8. Fullyrðing: Ekkert líf getur
þrifist án vatns? Já eða Nei.
9. Fullyrðing: Vatn nemur ná-
lega tveimur þriðju hlutum af
þyngd mannslíkamans? Já eða
Nei.
10. Hvað er talið að bergið í
Gerpi sé gamalt? 5 milljón ára.
13 milljón ára. 17 milljón ára. 20
milljón ára. Merktu við rétta tölu.
Svör merkt: Vikublaðið Austri
Tjarnarbraut 19 700 Egilsstaðir.
merkt Jörð. Góða skemmtun.
Umsjón :
Arndís Þorvaldsdóttir
Eg skal kveða
við þig vel
Ágætu lesendur!
Gleðilegt ár og bestu þakkir fyrir
samskiptin á liðnu ári. Enn eru
að berast botnar við fyrriparta frá
Þórhalli Pálssyni. Brynjólfur
Bergsteinsson, bóndi á Hafrafelli
botnar á þessa leið.
Lífs er slóðin ljót með hörsl
lukkusjóður þunnur mjög.
Skútu þjóðar skelfa bösl
skekkir róður áraslög.
Á heiðum sjatna silungsvötn
seiðin rotnuð falla á botn.
Veiði skatna vex þá jötn
valdið þrotnar og yfirdrotn.
Jóhannes bóndi á Skjögrastöðum
kvað:
Fallin lofar margur maður
margan kauðann.
Ætli ég verði annálaður
eftir dauðann.
Eftirfarandi vísu lét Jóhannes
fylgja skattframtali sínu:
Gamla mín á gamlan rokk
gríðarlega útleikinn,
og svo á ég minn skakka skrokk
skoðið þið, þama er “statusinn”
Skáldkonan Guðfinna Þorsteins-
dóttir (Erla) yrkir um dýrð sum-
arsins:
Brekkur anga, allt er hljótt
aðrir ganga að dýnu.
Sárt mig langar sumamótt
að sofna í fangi mínu.
Skáldið Steinn Steinarr átti það
til að varpa fram einni og einni
ferskeytlu þó oftar væri skáld-
skapur hans á aðra lund:
Kalt er jafnan konulausum
Fellur ofan fjúk og snær,
flest vill dofa hjá mér.
Myrk er stofan, mannlaus bær,
má ég sofa hjá þér?
Forboðin ást
Margt er það sem miður fer,
mikinn þótt ég rói.
Ekki má ég unna þér,
álfakroppurinn mjói.
Hjá Þura í Garði kveður við ann-
an tón:
Varast skaltu viljann þinn,
veik era manna hjörtu.
Guðaðu samt á gluggann minn
en gerðu það ekki í björtu.
Um mannlegt eðli og breyskleika
mannanna yrkir Jón Ólafsson:
þegar blóðið er heitt og hjartað
ungt
er hægt að freistast, en sigra
þungt.
Að dæma hart það er harla létt,
en hitt er örðugra að dæma rétt.
Fleira verður ekki kveðið að
sinni. Lesendur mættu gjaman
fara að dæmi Þórhalls og senda í
þáttinn fyrriparta handa hagyrð-
ingum til að spreyta sig á að
botna. Einnig eru vísur frá líð-
andi stund vel þegnar.
Með bestu kveðju.
Islandsflug fær vottun á
viðhaldsstöð sína
íslandsflug hefur hlotið vottun á
viðhaldsstöð sína frá Evrópusam-
bandi flugmálastjórna. Vottun þessi
er skv. JAR 145 staðli sem er nýr
staðall evrópskra flugmálastjóma
byggður á gæðastaðlinum ISO 9000.
Frá áramótum þurfa allar flugvélar í
flugrekstri í Evrópu, þ.e. flugvélar
sem notaðar eru í atvinnuskyni, að
vera í viðhaldi hjá viðurkenndri við-
haldsstöð. Þetta opnar íslandsflugi
aukna möguleika á viðhaldsverkefn-
um bæði innan- og utanlands og hef-
ur mikla þýðingu fyrir félagið út á
við. f viðhaldsstöð íslandsflugs
vinna 10-12 starfsmenn en stöðin er
til húsa í 2.400 fermetra flugskýli fé-
lagsins á Reykjavíkurflugvelli.
Fréttatilkynning.
Þessi mynd er af Askirkju í Fellum. Þessi kirkja er merkileg fyrir
það að hún er ein af fáum kirkjum landsins sem eru á jörð í
bœndaeign.
Myndina tók Þorsteinn Sveinsson.