Austri - 12.01.1995, Qupperneq 5
Egilsstöðum, 12. janúar 1995.
AUSTRI
5
Flugfarþegum
fækkaði árið 1994
Flugfarþegar á Austurlandi voru á árinu 1994 alls 72.407 en árið á
undan voru þeir 73.018. Lendingar voru alls 4.774. Farið var í 238
sjúkraflug á síðasta ári, þar af voru 136 flug farin frá Egilsstaðaflug-
velfi, 61 frá Höfn og 27 flug frá Vopnaflrði. Ekkert var flogið til
Bakkafjarðar á síðasta ári.
Þetta kemur fram í nýrri töflu sem umdæmisstjóri Flugmálastjórnar
sendi frá sér nýlega. Farþegum um flugvöllinn á Egilsstöðum fjölgaði um
700 á á síðasta ári miðað við árið þar áður eða um 1.4%. Um flugvöllinn
fóru 50.773 farþegar árið 1994 en árið 1993 voru þeir 50.074. Næstur í
röðinni er flugvöllurinn á Höfn með 14.672 farþega árið 1994 en árið á
undan 16.137, farþegum fækkaði þar um 1.465 eða -9.1%.
Lendingar árið 1994 voru 4.774 en árið á undan voru þær 4.487.
Lendingar á Austurlandi : 1993 1994 Mism. Mism.%
Vopnafjarðarflugvöllur 586 570 -16 -2.7
Egilsstaðaflugvöllur 2.368 2.609 241 10.2
Borgarfjarðarflugv. 206 186 -20 -9.7
Norðfj.flugvöllur 271 340 69 25.5
Breiðdalsvík 76 43 -33 -43.4
Höfn 959 1.026 67 7.0
Farþegar:
Vopnafjarðarflugvöllur 3.342 3.650 308 9.2
Egilsstaðaflugvöllur 50.074 50.773 699 1.4
Borgarfjarðarflugv. 122 176 54 44.3
Norðfj.flugvöllur 3.257 3.051 -206 -6.3
Breiðdalsvík 167 85 -82 -49.1
Höfn Alls 16.137 73.099 14.672 72.407 -1.465 -9.1
Frakt:
Vopnafjarðarflugvöllur 103.567 108.952 5.385 5.2
Egilsstaðaflugvöllur 576.643 593.095 16.452 2.9
Borgarfjarðarflugv. 30.334 20.907 -9.427 -31.1
Norðfj.flugvöllur 26.289 41.793 15.504 59.0
Breiðdalsvík 239 97 -142 -59.4
Höfn 154.455 149.747 -4.708 -3.0
Alls var flutt um 914.591 kg. af fragt um flugvelli Austurlands, þar af
593.095 kg. um Egilsstaðaflugvöll. MM
SKAK
Fyrsta mót Skáksambands Aust-
urlands á árinu var atskákmót, sem
haldið var sunnudaginn 8. janúar á
Reyðarfirði. Þátttakendur voru 8 og
tefldar voru 5 umferðir eftir Mon-
rad-kerfi. Umhugsunartími hvers
keppenda var 25 mínútur.
Sigurvegari varð Jónas A.Þ.
Jónsson, Seyðisfirði, sem fékk 4
vinninga. í öðru sæti varð Jóhann
Þorsteinsson, Reyðarfirði, með
31/2 vinning, og í þriðja sæti varð
Guðmundur Ingvi Jóhannsson, Eg-
ilsstöðum, einnig með 31/2 vinn-
ing. Við stigaútreikning varð Jó-
hann einu stigi hærri, en stig reikn-
ast í hlutfalli við vinningatölu
mótherjanna. G.I.J.
Frambjóðendur B - listans boða
til funda á Austurlandi dagana
15. -19. október sem hér segir:
Á Seyðisfirði, sunnudaginn 15. janúar kl. 17,oo að Fjarðargötu 8 efrí hœð.
Frummœlendur, Jón Kristjánsson og Jónas Hallgrímsson.
Á Eskifirði í Verkalýðshúsinu, kl. 20.30.
Frummœlendur, Jón, Sigrún Júlía og Valgerður Sverrisdóttir, gestur fundarins
Á Höfn Þriðjudaginn 17. janúar í Framsóknarhúsinu kl. 20.3o.
Frummœlendur Halldór, Jón, Ólafur Sigurðsson og Ingibjörg Pálma-
dóttir, gestur fundarins,
Á Breiðdalsvik Miðvikudaginn 18, janúar að hótel Bláfelli kl 20.3o.
Frummcelendur Jón Kristjánsson og Ólafur Sigurðsson.
Á Neskaupstað Fimmtudaginn 19, janúar, í Framsóknarhúsinu kl 20.3o.
Frummcelendur Jón, Jónas, Kristjana og Sigrún Júlía.
Frekari fundarhöld verða auglýst í ncestu viku.
Frambjóðendur B - listans.
Framsóknarfélag Egilsstaða
Fundir um bœjarmálin verða haldnir í
húsnœði félagsins að Tjarnarbraut 19,
kjallara mánudaginn 23. janúar nk. og
mánudaginn 6. febrúar.
Alltaf kvöldið fyrir bœjarstjórnarfundi
sem haldnir eru á hálfsmánaðar fresti.
0 ISM3Í3MSM3M3M3M3MÖJ3MSM3M3M3M3I3J 3
I Gristriherimrili S | Flókagata nr. 1 | á horni Snorrabrautar | Notaleg gisting á lágu verði miðsvæðis í Reykjavík. | Eins til fjögurra manna herbergi 1] m/handlaug, ísskápi, síma og |j sjónvarpi. Eldunaraðstaða. Verið velkomin! 1 | Svanfríður JónscCóttir Sími 91-21155 og 24647 | Fax 620355 105 Reykjavík í 1 1 I 1 1 i 1 1 1 1 1 1 1 1 1
0 [3MÖMSMSMSM3MSM2M2M3M3M3M2M3M 0
Ókeypis
smáauglýsingar
ATVINNA
Mig vantar vinnu strax. Ég er vanur á
sjó og hef verið á frystitogara og á
línu. Allt annað kemur til greina.
Hjálmar í síma 11364.
Húsnæði - Atvinna
3 herb. íbúð óskast til leigu á Egils-
stöðum.
Góð atvinna óskast á sama stað. Hef
fjölbreytta starfsreynslu. A.A. gráðu í
markaðssetningu frá USA. Allar nánari
uppl. gefur Steinunn Marinósdóttir í
síma 91-10811.
Hitablásari til sölu st. 10 kw. Sími
11230 og 11850.
Smásjá með hitakassa til sölu. Til-
boð óskast. Sími 11920.
Óska eftir brauðvél til kaups. Sími
11218. Inga.
Til sölu nýtt GPS staðs.t í bíl eða
snjósl. Philco w 393 þvottav. kr.
15.000. Xenon videó kr. 8.000.
Brother M-1109 prentari kr. 5.000.
Rauður brúðarkj./samkv.kj. nr. 38-40
kr. 22.000.
Ný rafm. girðing kr. 10.000. Á sama
stað óskast 4ja sæta bekkur í Ford
Econoline.
Sími 91-46665/985-25509.
íbúð til leigu á Egilsstöðum. Uppl. í
síma 97-13815 á kvöldin og um helg-
ar.
Til leigu á Egilsstöðum 4 herb. íbúð í
kjallara. Einnig einstaklingsíbúð á
jarðhæð. Uppl. í síma 11168. Ath.
stutt frá ME.
Til sölu
Polaris snjósleði árg. 1985 til sölu. Er í
góðu lagi. Uppl. í síma v.s. 12228 og
h.s. 12051, Björn.
Til sölu brettakantasett á stuttan
Landcruiser. Brettakantar, stigbretti og
aurhlífar. Smekklegt fyrir 33" dekk.
Verð 20.000 þús. Uppl. í síma 11349.
Góð 70 fermetra íbúð til leigu á Eg-
ilsstöðum. Laus strax. Uppl. í síma
11196.
Til leigu á Egilsstöðum 3ja herb. 70
fermetra íbúð og einstaklingsíbúð 30
fermetra. Uppl. í síma 11065.
Kaffiunnendur! Til sölu ekta, ónotuð
ítölsk cappuccino/expresso kaffivél á
mjög góðu verði, Uppl. í síma 11349,
Ingunn.
Til sölu 7 kw rafmagnshitablásari.
Uppl. í síma 97-11122.
Þrettándinn
Mikil Þrettándahátíð var víða um
land sl. föstudag. Þessar myndir
voru teknar á Egilsstöðum þegar
farin var blysför og genginn hring-
ur um bæinn og endað á íþrótta-
vellinum þar sem safnast var um
stóran bálköst, síðar efndu björgun-
arsveitimar til mikillar flugeldasýn-
ingar við mikinn fögnuð við-
staddra. Mjög fagurt veður var á
Þrettándanum en kalt.