Austri - 12.01.1995, Blaðsíða 6
Jafnþrýstibúnaður.
Oryggi
Stundvísi
Þjónusta
Þægindi
Ávailt þrír í áhöfn
Morgunflug - síðdegisflug.
Frídagar í Reykjavík
Helgarhátíð í Reykjavík
Söguferð til Reykjavíkur
Skemmtun Hótel íslandi
14 ferðir í viku.
FLUGLEIÐIR
traustur íslenskur ferðafélagi.
Egilsstöðum, 12. janúar 1995. 2. tölublað.
Akkur hf. leitar að nýjum
togara í stað Klöru Sveins
Austramynd: MM
Akkur hf. á Fáskrúðsfirði leitar
nú að nýjum togara erlendis eftir að
það seldi togara sinn Klöru Sveins-
dóttur SU 50 ásamt kvóta. Að
sögn Ingólfs Sveinssonar fram-
kvæmdastjóra Akks hf. var gert til-
boð í kanadískan frystitogara fyrir
jól en því tilboði var hafnað í síð-
ustu viku, svo nú er verið að skoða
málin betur. Hann segir að stefnt sé
á úthafsveiðar með nýju skipi.
Hlutafélagið Teisti hf. sem stofnað
var um kaupin á Klöru Sveinsdótt-
ur er skrásett á Fáskrúðsfirði en að
fyrirtækinu standa íshúsfélag ís-
firðinga, Togaraútgerð ísafjarðar,
Gunnvör hf. og Ritur hf. á ísafirði.
Ingólfur sagði að Klara hefði land-
að rækju oftast á Eskifirði en
einnig í Færeyjum og Húsavík. Að
sögn Guðmundar Agnarssonar
framkvæmdastjóra hjá Rit hf. á ísa-
firði, verður áhöfnin á Klöru
Sveinsdóttur ráðin áfram fram í
Klara Sveinsdóttir í höfn á Fáskrúðsfirði.
febrúar en ekki sé búið að ákveða
framhaldið. Með Klöru fylgir 1387
tonna rækjukvóti, en Guðmundur
segir að rækjan verði sennilega
unnin fyrir vestan. Það er því Ijóst
að stór hluti af þeim mannskap sem
hefur unnið hjá Akki hf. kemur til
með að missa atvinnuna í febrúar
ef ekki verður búið að finna nýtt
skip á þeim tíma, en hjá fyrirtækinu
hafa unnið í kringum 20 manns.
MM
Framkvæmdir hafnar við verk-
smiðjuhús Loðnuvinnslunnar hf.
í síðastliðinni viku hófust fram-
kvæmdir við undirstöður verk-
smiðjuhúss Loðnuvinnslunnar h/f á
Fáskrúðsfirði. Verkið var boðið út
og var gengið til samninga við
Krapp S/f sem er sameignarfyrir-
tæki þriggja aðila, Þorsteins
Bjamasonar, Fáskrúðsfirði, Röra
og hellusteypunnar, Fáskrúðsfirði
og Fjarðaverks á Djúpavogi. Tilboð
þeirra félaga hljóðaði upp á 36,3
milljónir króna sem er 91 % af
kostaðaráætlun. Aætlað er að öllum
verkþáttum verði lokið um miðjan
maí. Loðnuvinnslan h/f yfirtók um
áramót fiskimjölsverksmiðju Kaup-
félags Fáskrúðsfirðinga og er fyrir-
hugað að koma þar fyrir hluta af
búnaði þeim sem keyptur hefur
verið frá Japan, þannig að hægt
verður að hefja loðnubræðslu þar
fljótlega. Þá er verið að setja upp
hreinsibúnað fyrir hrogn og flokk-
unarbúnað fyrir loðnu á Fáskrúðs-
firði og standa kaupfélagið og
Loðnuvinnslan í sameiningu að
þeirri framkvæmd. Einnig hefur
frystirými í frystihúsinu verið auk-
ið en þar voru nýlega settir upp þrír
nýir frystiskápar. Hoffellið fór á
veiðar upp úr áramótum og hófst
vinna í frystihúsinu þann 10. janúar
síðastliðinn. AÞ
Nýbygging félags eldri borgara
tekin í notkun á nýársdag
Félag eldri borgara á Borgarfírði
eystra tók á nýársdag í notkun nýtt
hús sem félagið hefur byggt yfir
starfsemi sína. Byggingin sem er
120 m2 steinhús er fullklárað, utan
þess að eftir er að ganga frá lóð og
hefur félagið flutt þangað alla starf-
semi sína. Húsið er byggt fyrir
gjafafé frá mæðginunum Gyðu
Arnadóttur og Gesti Arnasyni, en
þau gáfu félaginu tvær íbúðir í
Reykjavík, lausafé, og einnig hús-
muni og bækur. I húsinu hefur ver-
ið innréttuð sérstök Gestsstofa sem
er búin húsgögnum Gests, en hús-
gögn og búnaður í húsinu er allur
úr búi gefenda, utan þess að keypt
hafa verið borð og stólar. Gestur
sem var prentari að iðn átti mikið
og gott bókasafn og hefur því að
hluta verið komið fyrir í húsinu,
einnig áttu þau mæðgin gott safn
málverka sem nú prýðir veggi nýja
hússins. Margir litu inn hjá eldri
borgurum í tilefni dagsins m.a.
börn úr sunnudagaskólanum sem
þar tóku lagið fyrir gesti. Einnig
voru sýndar litskyggnur úr safni
Gests margar hverjar teknar á
Borgarfirði. Þá var Félagi eldri
borgara afhent peningagjöf að upp-
hæð hundrað þúsund krónur frá
hjónunum Valborgu Þorsteinsdótt-
ur og Birni Olafssyni. Bygging
hússins hefur gengið mjög vel, en
fyrsta skóflustungan var tekin þann
24. október fyrir rúmu ári. Húsið
teiknaði Bjöm Kristleifsson, arki-
tekt, en yfirsmiður var Einar Jóns-
son. Stefnt er að vígslu hússins sem
hlotið hefur nafnið Vinaminni í
vor. AÞ
Unnið að
stofnun
leikskóla
á Bakka-
firði
Skipuð hefur verið verkefnis-
stjórn til að undirbúa stofnun leik-
skóla á Bakkafirði. Að sögn Þóru
Jónsdóttur sem situr í verkefnis-
stjórninni er stefnt að því að leik-
skólinn taki til starfa sem fyrst, en
húsnæði fyrir starfsemina er til
staðar í grunnskólanum. Gerð var
könnun um þörf fyrir slíka stofnun
á Bakkafirði í haust og reyndust
foreldrar 8 barna hafa áhuga á
heilsdagsvistun en áhugi var á
hálfsdagsvistun hjá foreldrum 14
barna. Þóra sagði að stefnt væri að
þvi að ráða leikskólakennara til að
veita skólanum forstöðu.
AÞ
Horfðu til
framtíðar!
Þeir sem i
FUJI filmur
framkall
FUJICOLOR
láta gæði og <
verðvei
minningai
Filma án endurgjalds
fylgir með framköllun.
500- fai.
Umboðsmenn um allt
Austurland.
Meiri gæði - betra verð
Dynskógum 4,
Egilsstöðum,
sími 11699
jgjgjgjgjgjgjgjgjgjgjgjgjMMSJBJBJBJBM 0
KURL
I fyrsta tölublaði ársins
birtust í Austra tölur um
mannfjöldaþróun hér í fjórð-
ungi og kom þá í ljós að þar
em búsettir umtalsvert fleiri
karlar en konur. Ekki munu
hafa farið fram rannsóknir á
aldursdreifingu karla í fjórð-
ungnum en Kurlritara er nær
að halda að í hópnum sé að
finna marga seggi komna á
þann aldur að tímabært sé
fyrir þá að leita kvonfangs.
Ætla má hins vegar að þeir
séu margir hverjir á þeim
buxunum að bera sig lítt til
slíkra verka með þeim afleið-
ingum að austfirskar mey-
stelpur sæka sér vatn yfir
lækinn og flytja í aðra fjórð-
unga í leit að maka. Ástandið
varð Sigurði Óskari Pálssyni
að yrkisefni:
Það lifa margir í ljúfum
vonum, löng verður stundum
þeirra bið. Ei er að spyrja að
„ósköponum“ Austfirðinga
með kvenfólkið.
Maður að nafni Benedikt
Vilhjálmsson hefur lengi átt
sæti í blaðstjórn Austra.
Hann hefur oftar en ekki ver-
ið blaðinu innan handar og
m.a. teiknað myndagátuna í
jólablaðið um ára bil. Útgáfu-
stjóra þótti því vel við hæfi
að skenkja Pella jólagjöf fyrir
vel unnin störf og ákvað að
blaðið sendi honum bók í
jólagjöf. Gjöfina tók Bene-
dikt upp eins og vera ber í
faðmi fjölskyldunnar á að-
fangadagskvöld og fer sögum
af, að scnum hans og eigin-
konu hafi verið skemmt þeg-
ar úr pakkanum kom skáld-
saga Einars Kárasonar „-
Heimskra manna ráð“.
GLERAUGU
ÚR & KLUKKUR
SKART & GJAFAVARA
SÍMI 97-12020 /11606 FAX 97-12021
LAGARÁS 8 - PÓSTHÓLF 96 - 700 EGILSSTAÐIR
Birta Einarsdóttir úrsmiður - Sævar Benediktsson sjóntækjafræðingur
30% afsláttur á Camelot skartgripum.
Lokkar m/smellu og pinna.
Nælur og men.
on
TISSOT
Svissnesk
gæðaúr.