Austri - 05.06.1997, Síða 1
5 U R E Y K J A V í K
Svæðisskipulag Miðhálendisins
Skoðanir skiptar
Þessir galvösku berserkir tóku á öllu sem þeir áttu íreiptogi á sjómannadaginn. Hátíðarhöldfóru velfram hér á Austurlandi, enda
sólstrandarveður. Mynd: Pjesta
Suðurfirðir - Egilsstaðir
Aætlunarferðir leggjast af
Áætlunarferðir af Suðurfjörðum á
flugvöllinn á Egilsstöðum lögðust af
1. júní þegar Indriði Margeirsson
sérleyfishafi á Breiðdalsvík hætti
akstri á leiðinni. Um mánaðamótin
runnu út samningar Indriða við Póst
og síma um póstflutninga, en allur
póstur til og frá Suðurfjörðum er nú
fluttur með póstbíl sem gengur á
milli Reykjavíkur og Egilsstaða.
Póstflutningarnir voru um 70% af
tekjum Indriða af akstrinum og telur
hann því ekki fjárhagslegan grund-
völl fyrir því að halda honum áfram.
Hann verður þó áfram með fólks-
flutningabíla sína í rekstri. Á Suður-
fjörðum er mikil óánægja á meðal
fólks með að áætlunarferðimar skuli
leggjast af og hefur t.d. Félag eldri
borgara á Suðurfjörðum, sem hefur
innan sinna vébanda marga félaga
sem eru háðir almenningssamgöng-
um, mótmælt þessari skerðingu á
þjónustu. Einnig óttast menn að
þetta hafi í för með sér að þjónusta
flytjist úr fjórðungnum suður til
Reykjavíkur, en töluvert er um að
íbúar á Suðurfjörðum hafi skipt við
þjónustufyrirtæki á Egilsstöðum, t.d.
með framköllun á myndum, hreins-
un á fatnaði og kaupum á blómum,
og hefur Indriði haft viðkomu eftir
þörfum í viðkomandi fyrirtækjum.
Hafa þessi viðskipti verið í töluverð-
um mæli þannig að hætt er við að
þjónustufyrirtæki á Egilsstöðum
missi einnig spón úr askinum sínum.
Þá er töluvert um að t.d varahlutir
fyrir sjávarútveginn hafi verið pant-
aðir flugleiðis og sagðist Eiríkur
Olafsson útgerðarstjóri Kaupfélags
Fáskrúðsfirðinga vera mjög uggandi
yfir þessari þróun, sem hann teldi
spor aftur á bak. Hjörtur Ásgeirsson
sérleyfishafi á leiðinni milli Djúpa-
vogs og Hornafjarðar hefur einnig
misst póstflutningana og stendur því
í sömu sporum og Indriði. Hann hef-
ur á hinn bóginn ákveðið að halda
ferðum áfram um sinn, þar sem
Halldór Blöndal, samgönguráðherra
lofaði á fundi á Djúpavogi að gera
honum fjárhagslega kleift að halda
rekstrinum áfram.
Nú er komin fram tillaga að
svæðisskipulagi Miðhálendisins,
sem unnin var af fyrirtækinu Land-
mótun. Skoðanir á tillögunum eru
mismunandi, málsvarar verndunar-
sjónarmiða hér austanlands segja
það gott að svæðið sé tekið til
skipulagningar, en telja á hinn bóg-
inn að skipulagðar framkvæmdir á
því séu enn of miklar. Karen Eria
Erlingsdóttir, formaður samtaka um
verndun hálendis Austurlands, segir
að búið sé að ræða þessa tillögu inn-
an hópsins, án þess að nokkur sam-
þykkt hafi verið gerð. „Það er gleði-
legt að nefnd sem vinnur að skipu-
lagi hálendisins skuli sjá að það er
ekki í lagi að sökkva t.d. Eyjabökk-
unum, en það er að okkar mati ekki
nóg. Við viljum sjá hérna smærri
virkjanir og sjáum ekki tilganginn
með þessum stóru virkjunum. Þeg-
ar menn eru að tala um sölu á raf-
orku til útlanda er verið að tala um
svo lítið magn að það dugir ekki
einu sinni til að lýsa götur Ham-
borgar. Þá sé ég ekki hvernig menn
ætla að keppa á alþjóðlegum mark-
aði, það er of miklu fórnað fyrir of
lítið,“ segir Karen Erla. Hún bætir
við að það verði krafa samtakanna
að tillagan verði kynnt rækilega hér
fyrir austan og víðar út um land,
ekki bara í Reykjavík.
Þorvaldur Jóhannsson, formaður
Orkunefndar SSA, segir að við
fyrstu sýn sé ljóst að það verði hert-
ar þær reglur sem gilda um um-
hverfismat og það kunni að leiða til
þess að gengið verði á þá virkjana-
kosti sem menn hafa verið með í
vinnslu.
Varðandi Eyjabakkana segir Þor-
valdur að menn hafi almennt gert
sér ljóst að það svæði væri mjög
viðkvæmt og því þyrfti að hlífa sem
mest. Hann segir það ákveðin von-
brigði að í þessu skipulagi skuli
ekki vera aðalfjallvegur norðan
Vatnajökuls.
„Það er enginn heimsendir
framundan í þessu, menn mega ekki
túlka það þannig að einhver heims-
styrjöld sé framundan milli okkar
virkjunarmanna og þeirra sem vilja
ganga allra lengst í vemdun náttúr-
unnar. Menn eru bara að nálgast
viss markmið og það þarf að gera af
skynsemi.“ Þorvaldur er sama sinn-
is og merkisberar vemdunarsjónar-
miða að kynning verði að fara fram
hér heima fyrir sveitarstjómarmenn
og almenning. „Ég tel þessu alls
ekki stillt upp gegn þeim virkjunar-
kostum sem verið er að skoða, en
þetta þrengir þá,“ sagði Þorvaldur.
500 þúsund
íslenskar lerki-
plöntur
Islandsflug hætt
Norðfjarðarflugi
íslandsflug hefur hætt flugi til Nes-
kaupstaðar og því er ekkert áætlunar-
flug þangað nú.Omar Benediktsson,
framkvæmdastjóri íslandsflugs, segir
að töluvert tap hafi verið á flug-
leiðinni „Það var hlutfallslega lágt
meðalfargjald og ekki mikið að
flytja,“ segir Ómar. Hann bætir við að
hlutdeild íslandsflugs í farþegaflutn-
ingum frá Neskaupstað væri einungis
40-50%, en stærri hlutdeild myndi
hafa breytt stöðunni mikið. „Með því
að fljúga á Norðfjörð og Egilsstaði
saman drögum við úr markaðsmögu-
leikum á Héraði og í kring, því fólk
vill ógjaman millilenda á Norðfirði.
Beint flug á Norðfjörð hefði ekki
staðið undir sér þannig að það var
skást í stöðunni að fljúga þetta sam-
an, það fríaði okkur frá mesta tap-
inu.Þó að maður sjái varla nokkum
mann fara á klósett á flugleiðinni milli
Egilsstaða og Reykjavíkur virðist vera
að fólk vilji hafa það um borð, því
fylgir ákveðið öryggi og þá vill fólk
rúmbetri vélar.Domier er sú vél sem
ræður lang best við aðstæður á Norð-
firði en hún er kannski ekki besta vél-
in fyrir þetta langa flugleið, 1 klst. og
15 mín.“
Ákveðið hefur verið að ATR vél Is-
landsflugs muni nú fljúga daglega til
Egilsstaða.
Guðmundur Bjamason, bæjarstjóri
í Neskaupstað, segir það bagalegt að
Islandsflug skuli hætta áætlunarflugi
til bæjarins. Hann segir að á fundi
sem haldinn var með bæjarfulltrúum
og forsvarsmönnum Islandsflugs, hafi
verið bent á að sá tími dags sem flug-
ið er á henti mörgum illa og mögulegt
væri að fjölga farþegum væri honum
breytt. „Við ætlum að bregðast við
þessu með því að fara í viðræður við
hið nýja Flugfélag íslands og ræða
við þá samgöngur almennt til Nes-
kaupstaðar,“ segir Guðmundur. Hann
bendir á að hið nýja flugfélag ráði yfir
öðrum vélakosti en Flugleiðir, en
Flugleiðir bám því við er flugi til
Norðfjarðar var hætt að floti þeirra
hentaði illa flugi til Neskaupstaðar.
Norðfirðingar standa nú í sömu
sporum og 1992, þegar Flugleiðir
hættu að fljúga þangað, en nú er búið
að afnema sérleyfi og ekki ólíklegt að
minni flugvellir muni eiga undir högg
að sækja í frjálsri samkeppni. Staðan
er því að öllum líkindum enn verri en
1992.
Barri hefur á þessu ári framleitt
500 þús. lerkiplöntur úr fræi sem
tínt var í Hallormsstaðaskógi
veturinn, '95 til '96. Jón Amarson,
framkvæmdastjóri segir spírun
fræsins ágæta, 30-60%.
Lerki þessu verður að hluta plant-
að út í haust og næsta vor, en Jón
segist vonast til að frælagerinn end-
ist þar til næst verður hægt að fara í
viðamikla frætínslu í íslenskum
skógum.
Jón með bakka af lerki œttuðu úr Gutt-
ormslundi. Austramynd sbb.
- milljónir á laugardögum!