Austri - 05.06.1997, Side 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum, 5. júní 1997
Snæfell
Trimmmót UÍA í badminton var haldið á Neskaupstað þann 10. maí sl.
Að þessu sinni var um liðakeppni að ræða. Þátttakendum var raðað í
fjögur lið sem kepptu innbyrðis, þrjár umferðir. I liðinu sem var í fyrsta
sæti og hlaut 6 stig voru Edda Egilsdóttir, Jóhann Jónsson, Kristinn ívars-
son, Sigurður Jónsson og Steinunn Aðalsteinsdóttir. í liðinu sem var í
öðru sæti og hlaut 4 stig voru Ása Baldursdóttir, Bjami Stefánsson, Ey-
steinn Gunnarsson, Gunnar Jónsson, Gunnlaugur Friðjónsson, Halldóra
Sigurðardóttir og Sigríður Guðjónsdóttir.
Þátttakendur vom víðsvegar af Austurlandi og á öllum aldri. Þess má
að lokum geta að á nýjum styrkleikalista Badmintonsambands Islands er
einn af UIA svæðinu. Helgi Jónsson í Huginn Seyðisfirði er í 9. sæti í
einliðaleik og 4. sæti í tvíliðaleik ásamt Pálma Sigurðssyni TBR.
Frá vornámskeiði UMFI ,Borgarnesi.
Landsmót í Borgarnesi
3. - 6. júlí 1997
Liðið sem var ífyrsta sœti: Jóhann Jónsson, Sigurður Jónsson, Edda Egilsdótt-
ir, Steinunn Aðalsteinsdóttir og Kristinn Ivarsson.
Kyndilhlaup
Kyndilhlaupi um landið, sem UMFÍ
efndi til í tilefni af Smáþjóðaleikun-
uni'97, lauk 2.júní sl. Þá höfðu verið
lagðir að baki um 2500 km og um 2100
manns tekið þátt. Hlaupinu lauk með því
að kyndillinn, sem farið hefur inn á flesta
þéttbýlisstaði á landinu, var notaður til
að tendra eld leikanna. Hlutverki kynd-
ilsins er þar með ekki lokið því þegar
Smáþjóðaleikunum Iýkur mun Lands-
mótseldur verða tendraður af eldi Smá-
þjóðaleikanna og hlaupið verður með
kyndilinn til Borgarness þar
sem eldurinn logar meðan á
Landsmóti stendur, 3,- 6. júlí.
Þaðan í frá verður tekin upp sú
hefð að láta ávallt eld loga á
Landsmótum sem haldin verða
í framtíðinni.
I heildina má segja að
Kyndilhlaupið hafi gengið vel
þó svo það væru ýkjur að segja
að það hafi verið algerlega
áfallalaust. Fyrst má nefna vá-
lynd veður sem hlauparar
hrepptu, bæði á Suðurlandi,
þar sem varla var stætt fyrir
roki og rigningu, og svo ekki
síst á lokakafla UÍA svæðisins,
á norð-austurhominu, þar sem
þátttakendur lentu í kafaldsbyl
og sannkölluðu vetrarríki. Það
varð forsvarsmönnum hlaups-
ins, bílstjóra og verkefnisstjóra
til happs hversu ævintýragjam
og lunkinn jeppamaður fram-
kvæmdastjóri UÍA er, því hann
dró sumarútbúið farartæki
sunnlendinganna, með þá
undrandi innanborðs, upp á
Hellisheiðina þar sem vaskir Einherjar
tóku við veðurbörðum kyndilbemm.
Forsvarsmenn aðildarfélaga UÍA eiga
hrós skilið fyrir hversu vel var að verki
staðið hvað varðar alla framkvæmd og
skipulagningu á svæðinu.
Sérstaklega ef til þess er litið að UÍA
nær yfir lang stærsta svæðið af öllum
héraðssamböndunum auk þess sem það
er víða erfitt yfirferðar. Annað má hrósa
UÍA mönnum fyrir en það er að lang-
mesta hugmyndaauðgin kom úr þeirra
röðum þegar kom að því að flytja kyndil-
inn því auk „venjulegra“ aðferða s.s. að
hlaupa, ganga, hjóla eða ríða með
kyndilinn, brydduðu þeir upp á að sigla
með hann frá Norðfirði til Seyðisfjarðar,
ganga með hann á gönguskíðum á Fjarð-
arheiði og klikktu svo út með því að
synda með hann í sundlauginni á Egils-
stöðum - geri aðrir betur!
Alls tóku 425 manns þátt í hlaupinu á
UIA svæðinu og er það mjög góð þátt-
Undirbúningur undir Landsmótsferð íþrótta-
fóiks frá UÍA er í fullum krafti og okkar fólk að
vinna, bæði að þjálfun sinna íþróttagreina og í fjár-
öflun til fararinnar. Frá áramótum hefur starfað
nefnd Landsmótseinvalda sem hefur það hlutverk
að útvega keppendur og stjórna ferð okkar á 22.
Landsmót UMFÍ.
I nefndinni starfa:
Bjöm Ármann Olafsson, formaður, Steinn Jónasson,
varaformaður, Jón Kristinn Beck (sund), Ámi Olason
(Knattspyrna), Aðalsteinn Hákonarson (frjálsar íþrótt-
ir), Hannibal Guðmundsson (Körfubolti), Þóroddur
Helgason (glíma), Ólafur Sigurðsson (blak),
Sigurjón Bjarnason (starfsíþróttir), Björn
Hólm Magnússon (skák), Þorvaldur Hjarðar
(bridge), Jósef Valgarð Þorvaldsson (hestaí-
þróttir), Jón Baldursson (golt)
,Margrét Vera Knútsdóttir
(Handknattleikur kvenna), Sól-
veig Svavarsdóttir (íþróttir fatl-
aðra) og Jón Karlsson (Borð-
tennis). Enn fremur á fotmað-
ur UIA seturétt á fundum
nefndarinnar með málfrelsi og
tillögurétt.
Varaformaður nefndarinnar
sótti vornámskeið UMFI sem
haldið var í Borgarnesi ásamt
framkvæmdastjóra UIA m.a. til
að skoða íþróttamannvirki og þann aðbúnað sem
keppendur og áhorfendur fá á komandi móti. Svo
virðist að öll mannvirki séu eins og best verður á kos-
ið svo og tjaldstæði og annar aðbúnaður, einnig virðist
skipulag á öllum hlutum í góðu lagi hjá Landsmóts-
nefnd og framkvæmdastjóra Landsmóts. Stjórn UÍA
hvetur alla á svæði UÍA til að aðstoða okkar keppnis-
fólk á hvern þann hátt sem við verður komið því að
góður íþróttahópur er ein besta kynning sem við get-
um fengið og reynslan sem við fáum þama kemur að
góðum notum því að það kemur í okkar hlut að halda
Landsmót UMFÍ árið 2001 á Egilsstöðum.
Jón Hávarður Jónsson formaður UMF. Vtsis afhendir
Birni gjaldkera Einherja kyndilinn á Hellisheiði.
taka þegar á heildina er litið.
Ég vil nota tækiíærið og þakka öllum
þeim sem tóku þátt í hlaupinu fyrir þeirra
hlut og vona að allir hafi haft ánægju af.
Forsvarsmönnum aðildarfélaga UIA
þakka ég ánægjulegt samstarf og óska
þeim alls hins besta á Landsmóti UÍA að
tveimur árum liðnum.
Brynhildur Barðadóttir
Verkefnisstjóri
UIR
gallinn
f y rir
landsmót UMFI
i Borgarnesi
dagana 3. - 6. júlí 1997
Er til sölu á skrifstofu UIA
sími 471-1353
Samkomutjald til leigu
Leigjum út 200 fermetra sam-
komutjald fyrir ættarmót, gifting-
ar, og til annarra stórviðburða og
skemmtanahalds. Á sama stað
eru til leigu salemisgámar.
Nánari upplýsingar í
síma 471-1353.
Júní
Bikarkeppni knattspyrnu
7. og 8 . Æfingabúðir frjálsar Eiðar
14. Vormót UIA frjálsar 19. Sumarinót UÍ A Egilsstaðir
29. Egilssfaðamaraþon Egilsstaðir
Júlí
3. til 6. Landsmót UMFÍ Borgarnes
11. til 13. Sumarhátíð Eiðar
19. Suðurfjarðamót Leiknis Fáskrúðsfjörður
Bikarkeppni knattspyrnu Ostaðsett
^6. Kvöldmót frjálsar
Agúst
16, Kvöldmót frjálsar Óstaðsett
16. Álfasteinsspark Eiðar
Bikarkeppni UÍA
í knattspyrnu
Dregið hefur verið í Bikarkeppni UÍA 1997 og verð niður-
röðun sem hér segir:
umferð. Sunnud 15.júmkl 17:00 SE - Einherji
Sunnud 15. júnf kl 17:00 Huginn S - BN
Föstud 13. júní kl 19:00 Þristur - Höttur
umferð Sunnud 22.júníkl 19:00 Huginn F - SE
Sunnud 22, júní kl 17:00 Einherji - Huginn S
Sunnud 22. júní kl 19:00 BN - Þristur
umferð Sunnud 29. júníkl 19:00 Huginn S - Huginn F
Sunnud 29. júní kl 17:00 Þristur - Einherji
Sunnud 29. júni kl 19:00 Höttur - BN
umferð Miðvikud 9. júlí kl 19:00 Huginn F - Þristur
Þriðjud 8. júlí kl 17:00 SE - Huginn S
Sunnud 20. júlí kl 17:00 Einherji - Höttur
umferð Mánud 14. júlí kl 19:00 Höttur - Huginn F
Sunnud 20. júlí kl 19:00 Þristur - SE
Sunnud 27. júlí kl 17:00 BN - Einherji
umferð. Sunnud 20. júlí kl 17:00 Huginn F - BN
Sunnud 27. júlí kl 19:00 SE - Höttur
Sunnud 27. júlíkl 19:00 Huginn S - Þristur
umferð Sunnud 10. ágúst kl 17:00 Einherji - Huginn F
Sunnud 10. ágúst kl 19:00 BN - SE
Sunnud 10 ágúst kl 19:00 Höttur - Huginn S
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að koma úrslit- um til skrifstofu UÍAfax 471-1891 strax að leik loknum.
Fréttabréf
Austri ■ UÍ A fréttir