Austri


Austri - 04.09.1997, Síða 4

Austri - 04.09.1997, Síða 4
4 AUSTRi Egilsstöðum, 4. september 1997. Spurning vikunnar Ungdómurinn tekinn tali. Hvernig er að vera byrj- aður (uð) í skólanum? Kristján Orri Magnússon, 10. bekk Egilsstaðaskóla: Mér finnst það indælt. Máni Valsson, „busi“ í ME: Það er alveg ágætt. Kristinn Björnsson, 10 bekk Eg- ilsstaðaskóla: Það er í einu orði sagt guðdóm- legt. Heiðrún Ölversdóttir, busi í ME: Það er alveg rosalega gaman. Anna Marín Þórarinsdóttir, busi í ME. Með stæl: Það er frábært. Valborg Vilhjálmsdóttir og Magna Oddsdóttir, nemendur í Egilsstaðaskóla. Valborg: Það er alveg ágætt. Magna: Það er svona Medium. Aðalfundur SSA Háskólamál í brennidepli Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi (SSA), sá 31., var haldinn á Fáskrúðsfirði 28.-29. ágúst. Helsta mál fundarins var um háskólanám á Austurlandi, en á síðasta aðal- fundi var stjóm SSA falin undirbúningur að koma á fót há- skólamenntun í fjórðungnum í samvinnu við stjómvöld og for- svarsmenn skólá á háskólastigi. Var ætlast til að þetta nám væri í nánum tengslum við austfirskt atvinnulíf, og efldi þekkingu og menntun í fjórðungnum. í framhaldi af þessu var skipuð nefnd sem hefur komið sér niður á tillögur, eða kannski frekar umræðugmndvöll, eins og Emil Bjömsson, formaður nefndarinnar, orðaði það. Miðað er að því að stofna miðstöð háskólanáms og endurmenntunar á Austurlandi, sem talið er fyrsta og mikilvægasta skrefið til að efla háskólamenntun í fjórðungnum og þetta skref verði að stíga fljótlega. Hlutverk miðstöðvarinnar væri að skipuleggja nám og veita upplýsingar. Hugmyndir um þann möguleika að koma upp útibúi frá starfandi háskólum kemur einnig fram, þar sem mikilvægt sé að nýta reynslu og þekkingu sem er til staðar í háskólum á landinu. Fundarmenn virtust nánast einhuga um að koma þessu máli áfram og m.a. sagði Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri á Seyð- isfirði, að sér sýndist Austfirðingar sammála um háskólamálið. Hann bætti við að þessa samstöðu ættu menn að taka til eftir- breytni, því stæðu menn saman að hlutunum næðist árangur. Fundurinn samþykkti tillögu þar sem lýst er yfir stuðningi við sameiginlega hugmynd í þingsályktunartillögu þingmanna Austurlands og tillögu háskólanefndar SSA um að hið fyrsta verði komið á fót miðstöð háskóla- og endurmenntunar á Austurlandi. Minnt er á að ríkið eigi að fjármagna verkefni á háskólastigi og því þurfi að leita eftir stuðningi menntamálaráðherra og fá fjárveitingu frá Alþingi þegar á árinu 1998 til að koma miðstöðinni á fót. Staða háskólanáms Niðurstöður könnunar sem HÁSKA- nefndin lét gera var kynnt á fundinum, en hún var unnin af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri og sá Dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson, lektor við háskól- ann á Akureyri um framkvæmdina. Könnuð var staða háskólamenntunar í atvinnulífi á Austur- landi, og tók til ýmissa þátta í rekstri og starfsemi fyrirtækja í kjördæminu. Viðhorf stjómenda til þess hver þörfin fyrir háskólamenntun er var könnuð, sem og framboð slíkrar þekkingar o.fl. Úrtakið í könnuninni voru 364 fyrirtæki og stofnanir, en einungis 132 (36% svarhlutfall) þeirra höfðu skilað inn spumingalistum fyrir júnflok 1997. Flest fyrirtæki, sem tóku þátt í könnuninni, em í verslun og þjónustu og opinberri þjónustu, en fæst í sjávarútvegi, iðnaði, landbúnaði og matvælaiðnaði. Þetta er ekki í fullu samræmi við atvinnuskiptingu á Austurlandi. Nokkrar af niðurstöðum könnunarinnar 49% starfsmanna í fyrirtækjum á Austurlandi eru ófaglærðir. 25,9% starfsmanna em faglærðir, þar af skrifstofustarfsmenn 8,9% og stjómendur 13%. Háskólamenntaðir starfsmenn em 15% heildarstarfsliðs; þar af 24,5% framkvæmda-, bæjar- eða sveitarstjórar; sérfræðingar eru 17,5%, verk- og tæknifræðingar 12,2%, fjármálastjórar 11,4% og bókarar-/gjaldkerar 11,4% (þegar könnunin var gerð voru skólar komnir í sumarfrí og því bárust almennt ekki svör frá þeim stofnunum, en kennarar hljóta að vera hátt hhttfall háskóla- menntaðs fólks ífjórðungnum). 75% forstöðumanna fyrirtækja og stofnana telja þörf fyrir aukna þekkingu almennra starfs- manna 85% forstöðumanna telja þörf á frekari menntun skrifstofufólks og stjórnenda Fyrirtæki skortir tilfinnanlega sérfræðiþekkingu skv. könnuninni og telja forstöðumenn helst vanta í stjómunar og gæðastjómun (41%), sölu- og markaðsmál (36%). Stjómendur telja framboð á sérfræðiþekkingu á þessum sviðum vera lítið á Austurlandi, þó að það sé mikið á landsvísu. Á pplYStnga < Helga Hreinsdóttir, sem á sæti í HÁSKA- nefndinni, sagði í erindi sem hún flutti að það hefði sýnt sig víðsvegar um heim að því lengur sem nemendur gætu stundað sitt nám í heimabyggð, því meirí líkur væru á því að þeir byggju áfram á svæðinu að námi loknu. Auk þess sækifyrirtæki á staði þar sem háskólar eruog þ.m. aukistfjölbreytni í atvinnulífí, end- urmenntun og símenntun eykst og mannlíf verður fjölbreytt- ara. Aftur á móti benti Helga á að ávinningur í þessum efn- um takmarkist að nokkru af staðsetningu skólans. Emil Björnsson, formaður HASKA- nefndarinnar, benti á að aðgengi að menntun hefði hvað mest að segja hjá fólki þegar það veldi sér búsetustað. Háskólastarf vœri mjög mik- ilvægur þáttur þegar litið væri til eflingu byggðar og það vœri undir hælinn lagt hvort Austfirðingar, semfœru í há- skólanám. skiluðu sér aftur ífjórðunginn. síðasta þingi fluttu alþingismennirnir Hjör- leifur Guttormsson, Ambjörg Sveinsdóttir og Jón Kristjánsson tillögu til þingsályktunar um upþlysingá og fræðslumiðstöð háskólastigsins á Austur- landi. Hjörleifur Guttormsson sagði þingmennina ekki hafa talið tímabært að gera kröfu um sjálfstæðan háskóla á Austurlandi, og er það í samræmi við hugmyndir HÁSKA- nefndarinnar. í tillögunni er sagt að verkefna- svið miðstöðvarinnar verði fyrst í stað einkum tvíþætt: „að þróa víðtæk tengsl við skóla og nám á háskólatigi annars stað- ar á landinu og miðla þeim tengslum til nemenda fram- haldsskóla, almennings og atvinnulífs á Austurlandi, - að stuðla að fræðslu og námi á þessu skólastigi á Austur- landi, m.a. í formi námskeiða og fjarkennslu." Hjörleifur sagði að viðbrögð menntamálanefndar Al- þingis við tillögunni hefðu verið mjög jákvæð. Að lok- um sagði hann að ríkissjóður ætti að leggja til myndar- legt framlag til að koma þessari miðstöð á fót. Kvótinn 1997/1998 Hver fær mest? Hér að neðan er raðað þeim skipum á Austurlandi em hafa mestan kvóta í þorskígildum, kvótaárið 997/1998. Skipunum er raðað eftir heimahöfn. Brettingur NS 50 Þorskígildi. 1,392,928 Vopnafirði Gullver NS 12 1,859,429 Seyðisfirði Blængur NK 117 2,841,310 Neskaupstað Barði NK 120 1,375,009 Neskaupstað Bjartur NK 121 1,477,534 Neskaupstað BörkurNK 122 2,259,000 Neskaupstað Beitir'NK 123 2,102,277 Neskaupstað Hólmanes SU 1 1,432,534 Eskifirði Hólmaborg SU 11 1,968,740 Eskifirði Sæljón SU 104 1,042,181 Eskifirði Jón Kjartansson SU 111 1,729,963 Eskifirði Guðrún Þorkelsd. SU 211 1,442,821 Eskifirði HólmatindurSU 220 1,589,664 Eskifirði Snæfugl SU 20 1,352,137 Reyðarfirði Ljósafell SU 70 3,151,950 Fáskrúðsfj. Sunnutindur U 59 2,782,421 Djúpivogur Jóna Eðvalds SF 20 1,193,316 Höfn Hvanney SF 51 1,766,778 Höfn Þórir SF 77 1,012,408 Höfn Húnaröst SF 550 1,622,538 Höfn Samtals 14,967,487 þorskígildi Fáskrúðsfjörður Rekstur Loðnuvinnsl- unnar gengur vel í ársbyrjun 1996 hóf nýja loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði starfsemi. Allt frá fyrstu dögum rekstrarins hefur hann gengið vel. Nú hefur verksmiðjan birt milliuppgjör eft- ir 6 fyrstu mánuði ársins 1997 og er hagn- aðurinn nær 34 milljónir króna, eftir skatta. Frá áramótum og til 30 júní á þessu ári hef- ur verið tekið á móti 66.000 tonnum af hrá- efni, þar af voru seld frá flokkunarstöð um 5.000 tonn sem fóru til manneldis. Verk- smiðjan hafði framleitt 11.800 tonn af mjöli og 3.700 tonn af lýsi 30.júní sl. í lok ágúst mánaðar hafði svo verksmiðjan tekið á móti 93.000 tonnum af hráefni (tók á móti 75 þús. tn. allt árið 1996) og framleitt 16.000 tonn af mjöli og 7.000 tonn af lýsi. í ágúst- lok er veltan áætluð 950 millj. kr. en var 812 millj. kr. árið 1996. Starfsmannafjöldi í verksmiðjunni er að meðaltali 16. Jan.-jún 31.12’96 Rekstrarreikningur M-^nair 1997 1996 Rekstrartekjur 680.128 812.342 Rekstrargjöld -562.003 -650.933 Fjármagnskostnaður , -25.714 -25.481 Afskriftir -48.207 -85.393 Hagnaður af reglulegri starfsemi 44.204 50.535 Aðrar tekjur og gjöld -10.583 -14.014 Hagnaður tímabilsins 33.621 36.521 1 - 1 Efnahagsreikningur 30/6-97 3t/12 ‘96 Veltufjármunir 208.770 60.589 Fastafjármunir 1.010.604 1.028.396 Eignir samtals 1.219.374 1.088.985 Skammtímaskuldir 179.070 125.361 Langtímaskuldir 477.054 478.558 Eigið fé 563.251 485.066 Skuldir og eigið fé samtals 1.219.375 1.088.985 i Kennitölur 30/6 1997 31/12 1996 — Eignafjárhlutfall 46,19% Veltufjárhlutfall 1,17 Veltufé frá rekstri í millj. kr. 91.864 44,54% 0,48 121.975

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.