Austri - 04.09.1997, Side 9
Egilsstöðum, 4. september 1997
AUSTRI
9
Þekkir
einhver
þessa
konu?
Þekkir einhver þessa konu?
Myndin er í eigu Ljósmyndasafns
Austurlands, stækkuð í vönduðum
ramma. Hún var afhent Minjasafn-
inu fyrir mörgum árum og hefur
síðan verið í geymslu. Þær upplýs-
ingar sem fylgdu henni á sínum
tíma eru því miður glataðar og er
myndin birt í Austra í þeirri von að
einhverjir lesendur geti komið til
hjálpar. Þeir sem veitt geta upplýs-
ingar eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við Hrafnkel Jóns-
son forstöðumann Héraðsskjala-
safns Austurlands í síma 471-
1417.
+ Jakobína Björnsdóttir
1 Sólvangi, Borgarfirði eystri
Jakobína Björnsdóttir fædd-
ist á Seyðisfirði 22.ágúst 1920.
Hún lést S.ágúst síðastliðinn á
heimili dóttur sinnar. Foreldr-
ar hennar voru Þórína V. Þórð-
ardóttir, ljósmóðir, og Björn
Jónsson, söðlasmiður. Jakobína
var næstelst 7 systkina en nú
eru 4 á lífi.
Jakobína giftist 1940 Aðal-
steini Olafssyni, f. 12.desember
1906, d. 2. júní 1970. Börn Jak-
obínu og Aðalsteins urðu alls 11
en þau misstu 2. Börn Jak-
obínu og Aðalsteins eru: Anna
Ólöf, f. 1939, Birna Þórunn, f.
1940, Ingunn Gyða, f. 1942,
Baldur, f. 1943, Sverrir, f. 1944,
Bjarnþór, f. 1946 d. 1965, Jón-
ína Sesselja, f. 1949, Ólafur, f.
1953, Björn, f. 1955, Björg, f.
1959 og Soffía, f. 1962 d. 1963.
Jakobína eignaðist 29 barna-
börn og 9 barnabarnabörn.
Útför Jakobínu fór fram frá
Bakkagerðiskrikju 16.ágúst sl.
Jæja, þá skilja leiðir okkar
ömmu að sinni og hún hefur loks
fundið friðinn.
Margar minningar og brot frá
liðinni tíð fljúga í gegnum hug-
ann þegar ég skifa þessa grein.
Spilin, kleinurnar, kökurnar,
lakkrísinn, prjónamir, Svínalæk-
urinn og rababarinn. Allt lifir
þetta í minningunni. Ávallt var
gott að koma í heimsókn til
ömmu og oft kom ég að henni
annað hvort með prjónana í
höndunum eða leggjandi kapal.
Þá byrjaði hún á því að spyrja
hvað væri að frétta og spurði svo
hvort ég væri ekki svangur.
Aldrei gat ég sagt nei þegar hún
bauð mér keinur og ískalda
mjólk, sama hvort ég var saddur
eða ekki. Og svo oft á meðan ég
var að gæða mér á góðgætinu þá
fór hún með vísur og spurði svo
ávallt að vísu lokinni: „Kanntu
þessa vísu?“ En svo alltaf þegar
ég var staðinn upp og var að
kveðja, þá stakk hún einhverju
sælgæti í vasann hjá mér, og í
flestum tilvikum var það nú
gamli, góði lakkrísinn sem hún
átti ávallt nóg af.
Jæja, þessir tímar eru liðnir en
auðvitað mun minningin ávallt
lifa í hjarta mínu.
Þér kveðju ég sendi amma mín kœr
og um mig leikur minningin skœr.
um gamla daga, góðar stundir
og í hjarta mér geymi ég hlýjar myndir.
Þig einkenndi umhyggja og ástúð mikil
og dugnað þú hafðir sem lífsins lykil.
Já, minningin góða hún dofnar ei
þó ört frá mér sigli daganna fley.
Að sinni þá kveð ég þig erfiðum tárum
og gleymi þér aldrei á komandi árum.
Þér kveðju ég sendi amma mín kœr
og um mig leikur minningin skcer.
Vertu sæl elsku amma mín. Þá hefur
þú fundið hinn eilífa frið og þið afi getið
loksins verið saman aftur.
Ólafur Bjömsson.
ERT PWAÐ MISSA HARIÐ?
Eða átt þú við önnur hárvandamál að stríða?
Vissir þú að næstum því- ein af hverjum þremur konum og
einn af hverjum fimm körlum eiga við hárvandamál að stríða.
Vissir þú að til viðbótar við góða umhirðu þarf hárið einnig
nauðsynleg næringar-og grunnefni til uppbyggingar.
Arcone-Tisane ® hefur stöðvað hárlos hjá konum og körlum
og í mögum tilfellum aukið örvað og þétt hárvöxtinn.
Arvone-Tisane ® vinnur innanfrá.eykur blóðflæði í háræðunum
og eykur þannig flutning næringarefna og vítamína til hársekkjana.
Dautt og líflaust hár fær aukna næringu og verður
fallegra og heilbrigðara.
Arcone-Tisane ® er náttúrulegt fæðubótarefni sem inniheldur
þykkni unnið úr jutinni fenugreek, ásamt völdum vítamínum
og steinefnum.
Arcon vörumar fást í Apótekum,, heilsuverslunum og
mögum hársnyrtistofum um all land.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Alþjóða Verslunarfélagið ehf
sími 511-4100
Slöngur - Barkar - Tengi
‘UmSoðsmenn
um aíít CancC
Smiðjuvegi 66
Kópavogi
Sími 557 -6600
CFa^557-8500
Landvélar hf,
Nýbakaðar vöfflur á 3 mínútum
Augíýsing um
ga tnagerðargjöíd
ftjá ŒýiísstadaSæ
Athygli er vakin á því að þann 1. september n.k. tekur
gildi ný gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld í Egilsstaða-
bæ. Gjaldskrá þessi er nokkuð frábrugðin þeirri sem
verið hefur í gildi til þessa. Þeir sem áhuga hafa á því
að kynna sér gjaldskrána geta nálgast hana hjá bæjar-
tæknifræðingi á opnunartíma bæjarskrifstofunnar.
Pessi nýja gjaldskrá gildir einungis fyrir þær lóðir sem
úthlutað verður eftir 01.09.’97.
1947-1997 Egilsstaðabœr
Bæjarstjóri